Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Qupperneq 39
Stjórn Kvenfélagsins
Hrundar. Fremri röö frá
vinstri: Ásta Lárusdóttir,
ritari, Anna Danielsdóttir,
formaður og RagnheiÖur
Kristinsdóttir, gjaldkeri.
Aftari röð frá vinstri: Krist-
in I’ orva rða rd óttir, fjár-
málaritari og Sigrún Stef-
ánsdóttir, varaformaður.
eldskírn sína hlaut íélagið er félagskonum var íalið
að fæða þingheim er lðnþing var haldið í Hafnar-
firði 1965 og tókst þetta með miklum ágætum.
Samvinna félaganna hefur alla tíð verið mikil og
ánægjuleg, og hefur Iðnaðarmannafélaginu verið
mikill styrkur að starfi kvenfélagsins. í byrjun starl's
í Félagsheimilinu voru konum afhentir 15 kassar af
öli og var það framlag Iðnaðarmannafélagsins til
þeirra og jafnframt var þeim falið að reka veitinga-
starfsemi sem fram færi í húsinu. Þetta hefur tekist
l'yrir dugnað margra þeirra, sem lagt liala hönd á
plóginn og eiga þær nú allt sem til þarf í eldhús auk
þess sem þær hafa séð um að salurinn væri ávallt til
sóma og í góðu standi. Þá hafa þær lagt Félagsheim-
ilinu til píanó og margt fleira mætti upp telja.
Þátttaka þeirra í nefndum á vegum Iðnaðar-
mannafélagsins í Hafnarfirði hefur og verið mikil
og má nefna fræðslu- og skemmtinefnd, ferðanelnd
og jólatrésnefnd. Þá störfuðu þær og mikið með
æskulýðsklúbbnum, sem félögin stofnuðu 1965 og
starfaði um nokkurra ára skeið.
Hrund hefur einnig á ýmsan hátt haldið uppi
fjölbreytilegu starfi innan síns félags, verið með
skcmmtiatriði, þær hafa einnig skipst á stökum líkt
og bestu skáklfákar iðnþinga og má hér á eftir sjá
nokkur sýnishorn.
Þakkarkveðjur frá Hrund lil Meistarasambands
byggingarmanna að loknu Iðnþingi 1973.
Karlmannslausar kúrðum við,
en þurftum ei að kvarta,
því meistarafélags meðalið
yljaði manni um hjarta.
Heiður ykkar herramennsku,
hana meta kunnum við.
Ei mun þetta falla í gleymsku,
ástarkveðjur meðtakið.
Og að loknu námskeiði, kveðja til Unnar As-
grímsdóttur.
Vankunnandi vorum við,
það núna best við fundum.
En úr því bætti allt jtitt lið
í góðum kennslustundum.
Flestar konur ættu scnn
í fótspor okkar feta.
Þá myndu þeirra eiginmenn
J>ær betur kunna að meta.
Ástarþakkir við j>ér færum
fyrir þína tilsögn alla.
Allt }>að sem við hjá J>ér lærðum
ei má nú í gleymsku falla.
Hrundarkonur hafa og haldið fjölmörg námskeið,
árlegan sumarfagnað og jólafund og um nokkur ár
séð um dagskrá á opnu húsi fyrir Styrktarfélag aklr-
aðra í Hafnaríirði.
Félagskonur eru nú 87 og er félagið aðili að
Bandalagi kvenna í Hafnarfirði. Fyrsti formaður
félagsins var frú Sigríður Jónsdóttir, en nú er for-
maður Anna Daníelsdóttir og aðrar í stjórn eru Ásta
Lárusdóttir ritari, Ragnheiður Kristinsdóttir gjald-
keri, Sigrún Stefánsdóttir varaformaður og Kristín
Þorvarðardóttir fj ármálaritari.
39