Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 12
MEDA
GUNNARS
THORODDSEN
IDNADARRÁDHERRA
VID SETNINGD
30. IDNMNGS ÍSUNDINGA
Efnahags7iiál
Síðan núverandi ríkisstjórn var mynduð hafa
efnahagsmálin verði sá meginvandi, sem hún hefur
þurft að glíma við.
„Viðskiptakjör" er það orð, sem einna oftast er
nú nefnt. Með því er átt við hlutfallið milli verð-
lags á útflutningi og innflutningi. í upphafi þessa
árs var því spáð, að viðskiptakjörin myndu versna
á árinu um 15%. Nýjustu spár benda til þess, að
rýrnun viðskiptakjara verður nokkru meiri, eða 17
—18%. Þá var áætlað að þjóðarfraníleiðsla myndi
minnka um 2% og þjóðartekjur rýrna enn meira
eða um 6%, vegna versnandi viðskiptakjara. Þróun-
in hefur orðið enn óhagstæðari, svo að líklega mun
þjóðarframleiðsla í ár rýrna um 3,5% og þjóðar-
tekjur um allt að 8%.
.Staða þjóðarbúsins út á við er mjög erfið. Einn
veikasti hlekkur utanríkisviðskiptanna á þessu ári
og á seinni helming ársins 1974, er minnkandi eft-
irspurn eftir ýmsum helstu útflutningsvörum okkar,
er leitt hefur til óhagstæðrar verðþróunar. Þannig
er gert ráð fyrir, að verðlækkun útflutnings muni
nema um 11% fyrir árið í heild, miðað við svokall-
að fast gengi.
Verð á ýrnsum innfluttum vörum hefur hins veg-
ar hækkað. En þróun innflutnings á árinu sýnir að
innflutningur hefur dregist saman á fyrstu sjö mán-
uðum ársins að magni til um tæp 17%.
Breytingar frá fyrra ári í framleiðslu hinna ýmsu
greina iðnaðarins hafa orðið nokkuð mismunandi.
Framleiðsla hins almenna iðnaðar, að undanskildu
áli og byggingariðnaði, mun á fyrra helmingi þessa
árs vera svipað og á fyrra helmingi ársins 1974. Ál-
framleiðsla hefur hins vegar dregist saman um 12%.
Breytingarnar hafa verið mjög ólíkar eftir iðn-
greinum. Þannig hefur veruleg framleiðsluaukning
12