Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Blaðsíða 27

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Blaðsíða 27
Tvísköttun arðs beinir fjármagni frá fyrirtækjum. Er þess farið á leit, að heimilað verði að greiða út skattfrjálsan arð að einhverju marki t. d. í samræmi við lræstu vexti af sparifé. Mótmælt er óhóflegri samkeppni ríkisins við atvinnulífið um sparifé landsmanna með útgáfu verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs. Mótnrælt er álagningu 12% vörugjaldsins og því misræmi sem það veldur á samke]rpnisaðstöðu. Lögð er áhersla á að staðið verði við ákvæði laganna um að gjaldið verði lagt niður um næstu áramót. Vakin er athygli á þeirri mismunun atvinnugreina, sem felst í greiðslu launaskatts, sem leggst mjög þungt á vinnuaflsfrekar atvinnugreinar. Talið er eðlilegra að fjármagna Byggingasjóð rík- isins á annan hátt, sem kæmi jafnt á allar atvinnu- greinar. 5. Verðlagsmál Lögð er áhersla á, að hraðað verði endurskoðun laga um verðlagseftirlit og verðmyndun, sem getið er um í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og þess krafist að sanrtök iðnaðarmanna eigi þátt í slíkri endurskoðun. Þá eru gagnrýndar handahófskenndar afgreiðslur verðlagsyfirvalda, þar sem hækkunarbeiðnir þarf að rökstyðja, en verðlagsyfirvöld telja sig ekki þurfa að rökstyðja synjanir á hækkunum eða breytingar á hækkunarbeiðnum. Núgildandi verðlagshöft vinna gegn eðlilegri tækniþróun og hagrænum vinnubrögðum, þar sem þau taka ekkert tillit til þess kostnaðar sem felst í bættum tækjaljúnaði og vinnuaðferðum. Þetta leið- ir til þess að fyrirtæki fara minnkandi, eins og þró- un síðustu ára hefur sýnt. Auk þess hindra núgild- andi verðlagshöft beinlínis samkeppni á grundveili vörugæða, þar sem eitt liámarksverð er ákveðið fyrir lieila vöruflokka án tillits til gæða vörunnar. 6. Tolla- og gengismál Gengi íslensku krónunnar hefur sem kunnugt er markast við afkomu sjávarútvegsins, eða öllu heldur gengisskráningin miðast við að korna í veg fyrir stiiðvun útgerðar og fiskvinnslu. Hafa þá hagsmunir annarra atvinnugreina og vandamál þeirra því orð- ið að sitja á hakanum eða reynt að leysa þau nreð einhvers konar hliðarráðstöfunum, sem oft hefur dregist úr hömlu að framkvæma og ekki fyrr en stórtjón hefur hlotist af. Vegna þeirrar nýju stefnu, sem tekin var í tolla- málum við inngönguna í EFTA og samningiana við EBE verður að finna einhverja þá lausn á máleln- um iðnaðarins, senr styrkir stöðu hans í vaxandi samkeppni við erlenda aðila, þegar tollar eru smám saman felldir niður. fðnþing tclur rétt, að íslensk- um iðnaði sé opinið leið á erlcnda markaði og auk- in samkcppni stuðli að bættri nýtingu framleiðslu- þátta, en jafnframt verður ríkisvaldið að styðja við bakið á iðnaðinum á þeim tíma, sent hann hefur til þess að aðlagast breyttunr aðstæðum. Á þessu lrefur hins vegar orðið misbrestur á nrörgum sviðum, eins og margoft hefur verið bent á. Má t. d. nefna: 1. Breytingu á skattalögunum 1971, senr að veru- legu leyti voru dregnar til baka árið eftir. 2. Mismunun lrelur átt sér stað við niðurfellingu tolla af hráefnum og öðrum aðföngum í sanran- burði við tolla af fullunnum innfluttum vörum. Vill Iðnþing sérstaklega óska eftir, að staðið verði við fyrirheit unr frekari lagfæringar á toll- skrá í samráði við sanrtök iðnaðarins. 3. Lítill skilningur hefur verið á þörfum iðnaðarins fyrir samræmda, tæknilega og fjárhagslega fyrir- greiðslu. 4. Of lítið tillit er jafnan tekið til málefna iðnað- arins við mikilvægar aðgerðir í efnahagsmálum. 7. Aðstöðumunur A sviði tolla- og skattamála Vakin er atlrygli á að stóriðjuver hafa með lögum verið undanþegin aðflutningsgjöldum og söluskatti, 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.