Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Blaðsíða 32

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Blaðsíða 32
HAGSKVRSLUR (SLENSKS IDNADAR Landssamband iðnaðarmanna hefur á árunurn 1974 og 1975 fengist við ýmis konar efnahagslegar athuganir, sem byggðar eru á opinberum iðnaðar- hagsýrslum. í þvi sambandi hafa komið upp vanda- mál, sem ætla verður að menn lrafi almennt áhuga á að kynnast. Hér á eftir verður gerð grein fyrir tilgangi og þýð- ingu iðnaðarskýrslna yfirleilt, en vikið að auki að ýmsum þeim vandamálum, sem upp hafa kornið. Við skýrsluvinnsluna naut Landssambandið mikil- vægrar aðstoðar af hálfu Hagstofu Íslands, Fram- kvæmdastofnunar ríkisins, Þjóðhagsstofnunar og annarra yfirvakla, sem um skýrslugerð fjalla. Hefði alls ekki verið unnt að vinna þetta verk án áhuga þessara aðila á }>ví og virkurn stuðningi þeirra við það. Ennfremur veitti hr. Mogens Höst starfsmönn- um Landssambandsins ómetanlega aðstoð við þær athuganir, sem þeir hafa gert og hér á eftir verður stuttlega lýst, en hr. Höst hefur starfað hér á landi um nokkurt skeið, bæði á vegum Sameinuðu þjóð- anna og á vegunr iðnaðarsamtakanna. Þau dæmi, sem um er fjallað í eftirfarandi grein, eru tekin út úr til að skýra það upplýsingakerfi, sem menn ciga nú við að búa. Það er von Landssam- bands iðnaðarmanna, að þau gefi tilefni tilumræðna á breiðum grundvelli um frekari endurbætur á hag- skýrslugerð í þágu iðnaðarins. Tilgangur hagskýrslna Hagskýrslugerð nær til söfnunar, flokkunar, með- höndlunar og jafnvel einnig túlkunar talnacfnis. Tilgangurinn með hagskýrslum er annars vegar að sýna augnabliksmynd, og vekja tilfinningu fyrir þróun mála á sviðunr, sem teljast mikil- væg og hins vegar að mynda undirstöðu þeirra ákvarðana, sem yfir- völd, samtök atvinnuveganna og fyrirtæki verða að taka. Það er áríðandi að veita því athygli, að tilgangur- inn er að afla talnaefnis, sem geti í senn sýnt ákveð- ið ástand og jafnframt hvert þróunin stejni. Það er við samanburð á talnaefni, sem fæst við tvær eða fleiri athuganir, scm skýrslur öðlast raunverulegt gildi. Það er einnig mikilvægt að veita ])ví athygli, að hagskýrslur þjóna mörgum sviðum samfélagsins. Þar eru ekki aðeins yfirvöldin ein, heldur og samtök at- vinnuveganna og einstök fyrirtæki, sem geta og eiga raunar að nota hagskýrslur sem mikilvægan þátt í áætlanagerð og rekstrarákvörðunum. Afstaða atvinnuveganna til hagskýrslna Það er skoðun manna í ýmsum atvinnugreinum á Islandi, að hagskýrslur séu fyrirbrigði, sem yfir- völdin ein liafi áhuga á, og að fyrirtækjum og ein- staklingum sé lagt á herðar mikið umstang við söfn- un ýmissa upplýsinga. Þessi afstaða er ekki ólík þeim viðhorfum, sem menn hafa fengið að kynnast í flestum öðrum lönd- um Evrópu. Það er hins vegar ekki viðunandi ástand og síst þegar svo er komið, að ísland hefur gerst aðili að Fríverslunarbandalaginu og gert samning við Efnahagsbandalagið, og hafið þannig samstarf við önnur Evrópulönd á sviði efnahagsmála og iðn- aðar. Hvaða áhrif hafa þessir samningar á þróun mála á Islandi? Hvernig vegnar íslenskri framleiðslu á mörkuðum heima og erlendis? Hve arðvænlegur verður iðnaður og iðja, þegar samkeppni fer í vöxt? Hvernig fer með fjárfestingu í iðnaði og iðju? Hverjar verða atvinnuhorfur? Hagskýrslur eiga að geta gefið svör við þessum spurningum og mörgum fleiri. Það eru spurningar, sem fyrirtækjum, samtökum atvinnuveganna og stjórnvöldum ætti að vera sameiginlegt áhugamál að fá svarað. Uppsprettu svaranna er að finna innan fyrirtækjanna. Þegar upplýsingum er salnað hjá þeirn og úr þcim unnið á kerfisbundinn hátt, geta menn fengið raunhæf sviir. Hagskýrslugerðin verður að vera fljótvirk, svo að unnt sé að afla svara, sem síðan rnegi nota til að lag- færa óheppilegar þróunarhneigðir. Það táknar, að alla verður upplýsinga oft og með reglulegu rnilli- bili og vinna úr þcirn á lágmarkstíma. Opinberar hagskýrslur verða enn þýðingaimeiri fyrir fyrirtæki, sem vinnur jafnframt skýrslur um 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.