Vikan - 10.12.1959, Side 5
-> »■> >»> > > >■>■>■»-»>->-»»■>-»»»•»>
3. verðlaun
„ísold hin svarta" sjálfsævisaga Kristmanns
frá BÓKFELLSÚTGAFUNNI
4. verðlaun
Kassi með þrem spilum frá
Verzlunarfélaginu FESTI
*
*
Grýla kallar á 'börnin sín
þegar hún fer að sjóða til jóla:
Komið hingað öll til mín,
Leppur, Skreppur,
Lápur. Skrápur,
Ég var á Fáskrúðsfirði
Það var eins og ég sagði ykkur, — ég fór í land, hvað sem Rasmína
sagði, og varð mér úti urn bringukoll og kál. En ég var alveg ókunnug-
ur í þessum landshluta, og þess vegna sneri ég mér til ykkar, kæru
lesendur. Það stóð heldur ekki á greiðum svörum, og nú er ég búinn
að fá að vita, að ég var á Fáskrúðsfirði. Búðir heita það, víst, og
bryggjan heitir Tangabryggja. Allt þetta fékk ég að vita og miklu
fleira. Samtals bárust mér 246 bréf, og 190 sögðu mér sannleikann.
Svo ætluðu surnir að plata mig, t. d. þessir 13, sem sögðu, að ég hefði
verið á Siglufirði, 14 voru með Norðfjörð, 8 með Eskifjörð, 4 með
Þórshöfn í Færeyjum, 2 með Klakksvík og 2 með Drangsvog I Færeyj-
um. Svo voru 4 með Húsavík, 3 með Seyðisfjörð, og ein uppástunga
kom um ísafj., Reyðarfj,. Dalvík, Stykkishólm, Akureyri og Bíldudal.
Ég er nú samt alveg undrandi á því, hversu margir þekktu staðinn, og nákvæm-
astur var Gestur Guðjónsson, skipverji á m/s Hvassafelli. Hann sagði myndina
tekna hinn 11. júlí 1951. Kannski hef ég verið þarna þá. En hvað um það, ég dró
úr réttum lausnum, og upp kom miði
Guðrúnar Axelsdóttur, Kleppsvegi 52, I. hæð t. v.,
og fær hún verðlaunin: Vikuna í hverri viku árið út og næsta ár fram til jóla.
Með kærri kveðju,
Gissur Gullrass.