Vikan


Vikan - 10.12.1959, Blaðsíða 43

Vikan - 10.12.1959, Blaðsíða 43
Laufabrauð. 1 kg. hveiti, % tsk. salt, 5—ö dl. sjóðandi mjólk, fita. Vœtið hveitið meS sjó'ðheitri mjólkinni. linoSiS mjög jjétt deig. BreiðiS út kökur á stærð við meSal disk, svo þunn- ar aS sjáist í gegn. Prýðið kök- urnar með laufskurði og steikið þær síðan í feiti eins og klein- ur. Berið þær fram i'háum stöfl- um með jólahangikjötinu. Kokteilberjakaka. 150 gr. smjör eða smjörliki, 2 egg, % dl. mjólk, 2 dl. sykur, 'Ai tsk. vanillusykur, 150 gr. kokt- eilber, ltsk. lyftiduft, 5 dl. hveiti. Hrærið saman smjör og sykur þar til þaS er ljóst og létt. ÞeytiS saman eggin og mjólkina. Setjið þetta saman við smjörið og syk- urinn og hrærið vel í. Látið kokt- eilberin út í og siðan liveitiS, blandað með lyftidufti og vanillu- sykri. Bakið kökuna í velsmurðu formi, í ca. 1 ldst. við 175° hita. TakiS hana úr forminu áður en hún kólnar alveg. Kakan er betri ef hún er geymd i nokkra daga áður en hún er borðuS, og hún geymist lengi án þess aS versna. Berlínarkransar. 1 harðsoðið egg, I hrátt egg, 60 gr. sykur, 200 gr. hveiti, 125 g. smjörlíki, eggjahvita og molasykur. Takið rauðuna úr soðna egginu og lirærið hana fina og jafna. Blandið hráu rauðunni og sykr- inum saman við og jieytið þar til freyðir. Þvoið smjörlíkið og bland- ið því og hveitinu til skiftis sam- an við eggjafroðuna. Hnoðið deig- ið. Búið til mjóa sívalinga úr deig- inu og skiftið þeim í 14 sm. lang- ar lengjur. Búið til krans úr hverri lengju og leggið endana i kross. DýfiS krönsunum i eggja- hvítu og mulinn sykur. BakiS þá Ijóshrúna við meðalhita. Jólahnotur. 125 g smjörl. 125 g sykur, 2 egg, 240 g hveiti, 1 tsk. lyftiduft 00 g kúrenur. Hrærið smjörl. hvítt með sykr- inum, þeytið eggin, hlandiS öllu saman. Hnoðið degið. Skiftið þvi í 80 bita og búið til kúlur. Bakist við meðalhita. Bessastaðakökur. 250 g smjör, 250 g strá- eða flór- sykur, 250 g liveiti, 1 egg. Sáldið hveiti og sykri saman, myljiS smjörið saman við og hnoðið deig- ið. Látið bíða á köldum stað um stund. Breiðið út fremur þunnt, og mótið kökur. Berið egg, mulinn sykur og saxaðar möndlur ofan á. Bakið við meðalhita. Betra er að skíra smjörið. Möndlustengur. 120 g smjörl., 120 g sykur, 1 egg, 325 g hveiti, 1 tsk. ger, eggjablanda, 25 g möndlur. Hrærið smjörl. hvítt með sykr- inum og egginu. BlandiS öllu sam- an og hnoðið deigið. Búið til mjóa sívalinga. Gerið þá aðeins flata með lófanum. Skerið þá á ská í 8 cm. langar stengur. Skerið möndlur í ræmur og leggið 3-4 ræmur á ská ofan á hverja köku. Bakist ljósbrúnar við meðalhita. Tengdamömmu-terta. 300 g möndlur 275 g sykur, 200 g. srnjörl., 4 eggjarauður, 2 eggja- hvitur, 20 g hveiti, fyllt með epl- um. Skírið smjörið og hrærið það þar til það er Ijóst og létt. Setjið eggjarauðuna í ásamt sykrinum og möndlunum og einnig hveitinu. Þeytið hvíturnar þar til þær eru orðnar að froðu, og setjið þær varlega saman við. SmyrjiS eld- fast form eða venjulegt form. Setj- ið helminginn af deiginu í botninn á forminu og síðan eitt lag af e])lakompott. Leggið því næst liinn helminginn af deiginu ofan á og bakið við meðalliita i 25-30 min. Kakan er mjög góð og ætlast er til að notaður sé með henni joeytt- ur rjómi. Hnetukökur. 300 g smjör, 180 g flórsykur, 150 g hnetur, 1 egg, 2 eggjarauður, 400 g hveiti, börkur af einni sít- rónu. Blandið saman smjöri og flór- sykri. Hrærið eggið, eggjarauðuna, sítrónubörkinn og hveitið, og siðan eru hneturnar settar i. Búið til langar stengur úr deiginu og látið það storkna vel á köldum stað. Berið egg utan á stengurnar og veltið þeim upp úr sykri. Skerið stengurnar niður í sneiðar ca. Vn cm. á þykkt og bakið við með- alhita. Toppar. 7 eggjahvítur, 500 g flórsykur, 300 g finmalaðar möndlur, 300 g finmalaðar linetur, 100 g hakkaður appelsínubörkur, 35 g kakó, 1 egg, 150 g möndlumassi, kanel. Glass- úr, flórsykur og ein eggjahvita. Þeytið eggjahvíturnar og bætið flórsykrinum í smátt og smátt þar til marensdeigið er orðið stíft. Sið- an er sett í möndlur, hnetubörkur- ur, kakó og kanel. Möndlumassinn er hrærður með egginu áður en hann er settur i. Látið deigið biða í eina klst. Búið til smá kúlur úr deiginu, og látið þær bíða um stund áður en þær eru bakaðar, við meðalhita. Meðan kökurnar bakast er glassúrinn blandaður úr eggja- hvítunni og flórsykrinum, og á liann að vera fljótandi. Penslið kök- urnar með glassúrnum. n VÖRUVAL Á ÖLLUM HÆÐUM

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.