Vikan - 10.12.1959, Blaðsíða 44
í rikjandi öryggisleysi
er það öruggt að trygg-
ingar yðar eru í góðum
höndum hiá
Smámunir
um Kiljan
Halldór Kiljan Laxness hefur víða
komið við á langri leið. Öllum er
kunnug upphefð hans og frami á er-
Iendum vettvangi. Margar erlendar
alfræðibækur hafa líka birt umsagn-
ir um verk hans og hver á sinn hátt.
í Bibliographical Encyclopedia of
the World, sem út kom í New York
1946, er þekkileg mynd af skáldinu
ásamt glöggu ágripi yfir andleg störf
hans. En að iokum segir Ameríkan-
inn: „Hobbies: Musir and swimming.
Adress: P. O. Box 664, Reykjavík,
Iceland.“
-K-
Þá er annar smámunur um Hall-
dór Laxness, sem fáum bæjarbúum
mun vera kunnugt um. Eggert Stef-
ánsson söngvari hafði sumarið 1957
tvær stórar stofur á leigu í rólegu
húsnæði í vesturbænum. Halldór hef-
ur eflaust heimsótt fornvin sinn og
unað vel í rúmum húsakynnunum.
Það er a. m. k. víst, að núverandi
leigjandi stofanna tveggja við Hjarð-
arhaga 58, 1. hæð til vinstri, er Hall-
dór Kiljan Laxness, og þangað býð-
ur hann gestum sínum stöku sinn-
um.
-K-
f
Jólagjafir við allra hæfi
Elsku Aldís min.
Hvað á ég að gera? Ég er alveg eyðilögð, því
. að ég er yfir mig ástfangin af manninum, sem setl-
ar að fara að giftast henni mömmu. Hún er ekkja,
35 ára, og ég er 16 ára. Maðurinn, sem mamma er
trúlöfuð og er tilvonandi stjúpi minn, er yngri
en hún. Hann er svo góður við mig, og ég er svo
ólukkuleg yfir þessu öllu saman, og það kemur
þannig út, að ég er næstum ókurteis í framkomu
við hann.
Ekki get ég einbeitt huganum við lærdómiim,
mér finnst allt eitthvað svo vonlaust. Bara, að
ég gæti komizt eitthvað í burtu um tima. Mér
þykir voðavænt um mömmu, en þetta er allt.
eitthvað svo erfitt. Elsku bezta, hvað get ég gert?
Sigga.
Kæra Sigga mín.
Já, erfitt er lífið stundum, en nú verður þú
að noía þá heilbrigðu skynsemi og þann
viljakraft, sem þér hefur verið gefinn. Hugs-
aðu út í það, að þú átt allt lífið frammundan.
Móðir þín hefur nú um tíma verið ein um að
ala önn fyrir ykkur báðum. Þetta er kannski
hennar stóra tækifæri til að öðlast hamingju
í lífinu. Gerðu allt, sem í þínu valdi stendur,
til að hún fái að njóta þess.
Svo skal ég segja þér eitt. Þegar maður
er 16 ára, verður maður stundum ákaflega
ástfanginn og það oftar en einu sinni. Það
er því ekkert óeðlilegt, þó að þér finnist þú
vera ástfangin af þessum manni. En þú mátt
alls ekki gera neitt, sem gæti eyðilagt lífs-
hamingju mömrau þinnair. Þ»rð væri oinmitt