Vikan - 10.12.1959, Blaðsíða 31
MYND TIL AÐ LITA.
Þegar litið er á þessa mynd, er dálítið vont að gera sér grein
fyrir, af hverju hún er. Þess vegna er heillaráð að lita hana. Þá
sést strax, hvað er á myndinni. Á fletina, sem merktir eru með R,
málið þið rautt, Br- brúnt, Y- gult, O- bleikt, V- fjólublátt, B- blátt,
G- grænt og P- ljósblátt.
' # ' - • C • ~ . V /. .# í
Teiknarinn var dálítið gamansamur, þegar
að hann teiknaði þessa mynd, því að það eru
hvorki meira né minna en fjórtán skekkjur í
henni. Getið þér fundið minnst tíu skekkjur á
tveimur mínútum? Bezt er að skrifa skekkjurnar
niður, jafnóðum og þær finnast.
Húsið, fuglinn og íkorninn eiga að vera á efri myndinni, — en
hafa verið teiknuð sér, því að þið eigið sjálf að finna, hvar þau eiga
að vera í myndinni, og setja þau þar. Það er ekki sama, hvar
þau eru sett. Litið allt saman, og klippið Iitlu myndirnar út, og
límið þær inn á stóru myndina, þar sem ykkur finnst, að þær eigi
helzt að vera.
Dúsi prófessor er ný-
kominn úr geimferð til
Marz, og hann segir, að
veðráttan hafi verkað svo
einkennilega á sig, að hárið
hafi farið að spretta. Auk
þess sagði hann, að sér
fyndist hann vera minnst
tuttugu árum yngri. Ef
ykkur langar til að sjá,
hvernig Dúsi prófessor leit
út, áður en hann fór í
geimferðina, þá snúið bara
myndinni við.
Dag nokkurn ákváðu systkinin Magga og Gummi að teikna
hlutina, sem stóðu á borðinu. Hvað haldið þið, að þau hafi
teiknað? Þið getið komizt að því með því að draga strik
milli tölusettu punktanna á myndinni. Þið eigið að byrja á
punkti númer 1, draga á 2, síðan á 3 o. s. frv. Síðan skuluð
þið lita myndirnar.