Vikan - 07.04.1960, Side 22
tiac/n eftir Helgu Gisladóttur n drn.
Ævintýraleg sumardvöl
hjálp. Það varð úr, að Tom skyJdi fara.
Þegar karlamir komu með morgunmat-
inn, sem var nú ekki annað en djús og
þurrt brauð, fór Tom að dyrunum og
læddist út. Hann fór upp tröppurnar í
gegnum herbergið fram á gang og að dyr-
unum.
Þegar hann var að komast að dyrunum
fram á ganginn, þar sein tröppurnar voru,
opnuðust dyrnar, en Tom var nógu fljótur
til þess að fara bak við kassa, sem var
þama, en það mátti ekki tæpara standa,
því að í því komu tveir menn inn, gengu
fram hjá Tom, honum til ánægju. Þegar
þeir voru farnir, fór hann aftur af stað.
Loks var hann kominn út í dagsljósið.
Hann var nú ekki lengi að klifra niður. og
FRAMHALDSSAGA
SÖGULOK
hljóp hann síðan af stað heim til herra
Múllers. Þegar hann kom að dyrunum
heima hjá Múller-hjónunum, voru þau
bæði heima, og frú Múller kom til dyra,
þegar Tom bankaði. Tom hélt að það
myndi líða yfir hana, þegar hún kom auga
á hann, svo hissa varð hún. Hún lét spurn-
ingunum rigna yfir hann. En hann mátti
ekki vera að svara því. Hann spurði bara
eftir herra Múlier, en þess hefði hann ekki
þurft að spyrja, þvi að hann kom næstum
því hlaupandi út úr stofunni. Hann þreif
Tom inn með sér, og þeir settust inni í
stofu. Tom sagði honum frá öilu, en herra
Múller skrifaði við og við niður hjá sér
og spurði líka stundum.
Þegar Tom var búinn að segja honum
frá öllu, tók herra Múller símann og hringdi
í Sigurð.
— Er þetta Sigurður? ... Já, komið
þér sælir. Þetta er Múller . ,. Tom er
hérna hjá mér. Honum tókst að fiýja, til
þess að ná i hjálp ... Ég ætla að hringja
í lögregluna og biðja hana að koma í bíln-
um. Tom ætlar með okkur og ætlar að visa
okkur leiðina. Viljið þér ekki koma með
okkur? .. . Já, hað er þá allt í lagi. Ég
bið þá lögregluna að koma við hjá yður ...
Verið þér sælir.
Þegar lögreglan kom, voru herra Múller
og Tom tilbúnir. Þeir fóru upp í bílinn, sem
þegar brunaði af stað. Þeir skildu bílinn
eftir svolítið frá hellisopinu, svo að þeir
sem í hellinum væru, sæju ekki bílinn.
Brátt voni þeir komnir að opinu.
Þeir gengu inn. Fyrst stór og þrekinn
lögregluþjónn, þá Tom og Sigurður, herra
Múller og loks annar lögergluþjónn, lítill
og feitur en mjög liðugur. En tveir urðu
eftir við hellisopið ef einhver skyldi sleppa.
Þegar þeir komu að dvrunum að þrep-
unum, komu þeir beint í fasið á einum af
mönnunum. En sá sem gekk fyrst, var eng-
inn aumingi, og gat hann gripið manninn.
Hann setti á hann handjárn og lét tusku
upp í munnirm á honum, bað svo litla lög-
reglumanninn að fara með hann til hinna
lögreglumannanna. En þeir hinir héldu aft-
ur af stað.
Þegar þeir voru komnir að litla gang-
inum, var Stír, en svo hét litii lögreglu-
maðurinn, búinn að ná þeim. Þeir komu
slysalaust að herberginu. sem krakkarnir
voru í. Þau voru mjög fegin að sleppa úr
haldi. En þau máttu ekki tala hátt, svo
að þau gátu lítið sagt, því að það var eftir
að handtaka smyglarana.
Þau heyrðu mannamál í næsta herbergi.
Þau röðuðu sér upp að veggnum og hlust,-
uðu.
— Við verðum að koma skotvopnunum
undan, áður en við látum krakkabjálfana
lausa, sagði annar mannanna.
— Jæja, ég fer þá tii þorpsins og geri
upp um samninginn við Bretann. Síðan t,ek-
ur hann við öllu.
— Jæja, sjáumst seinna.
Þegar maðurinn kom út, úr herberginu,
greip Stír hann og setti hann i handjárn
og fór með hann í burtu. En stóri lögreglu-
þjónninn og Sigurður og herra Múller fóru
inn í herbergið og náðu hinum manninum
og settu hann í handjám.
Krakkamir fóm upp, og mennimir komu
rétt á eftir. Þegar þau komu upp til hinna,
voru þeir með fjóra menn, og fröken Sör-
ensen var þama líka.
Þeir fóru með fangana í bíl og keyrðu
af stað. Þeir létu krakkana og Sigurð úr
heima í Skógarhlíð. En hinir ætluðu að
fara með fangana á lögreglustöðina. Jörg
og Hæda flýttu sér heim til sín, en hin
flýttu sér heim að tröppunum, þvi að þar
stóð Johanne. Hún var svo fegin að sjá
þau, að hún vissi ekki, hvort hún átti held-
ur að hlæja eða gráta.
Þau fengu ÖH kvöldmat, en svo fóm
krakkarnir að hátta og sofa. Þau voru
mjög þreytt. En á moi'gun ætluðu þau að
fara með Hædu og Jörg, og þau máttu
vera i viku í tjaldi uppi í fjallshlíðinni.
Því að enn var sumarleyfið ekki búið.
Eftir var einn mánuður, og hann ætluðu
þau að nota sér vel. ★
BARNAGAMAN
VITIÐ ÞER
★ að sólin er 1,4 milljón sinn-
um stærri en jörðin,
★ að í Vetrarbrautinni einni
teljast 100 milljarðár sólna.
★ að það fyrirfinnst að minnsta
kosti einn milljarður sólna
í himingeimnum,
★ að nálægasta stjarnkerfið er
í 1,5 milljóna ljósára fjar-
lægð frá Vetrarbrautinni,
★ að það mundi taka 645 ár að
fljúga með hraðfleygustu
þotu til plánetunnar Plútós?
Jörðin snýst með 1667 km hraða
á klukkustund.
Þurfi ég eð skreppa út í „sjopp-
una“ að fevöldi til, finnst mér það
löng ganga, þótt ekki sé nema
um kflómetra leið fram og at'tur.
Konan kvartar á stundum yfir
þvi, að það sé allt of langt á milli
fsskápsins og eldluissborðsins.
En hvað getur eiginlega kall-
azt langt? Og hvað getur kall-
azt hratt eða stórt, þegar við för-
um að hugsa nánar um það?
Veröldin er stór, það hefur
maður bæði lesið og heyrt. Og
vist er það satt. enda þótt við
eigum bá einungis við okkar eig-
in hnðtt. Hann er 40.000 km að
ummáli, en það cr 40.000 sinnum
lengri leið en heiman að frá mér
út i „sjoppuna" og heim aftur
og tiu milljón sinnum lengra en
á milli fsskápsins og eldhúss-
borðsins, — kannski tuttugu
milljón sinnum lengra.
Sólin er ekki stór, — en þó 1,4
milljón sinnum stærri en jörðin.
T>ó eru þeír til, sem kalla jörð-
ina litla. Að rúmfangi til er sólín
1,400.000 sinnum stærri. Og þó
segja sumir. að sólin sé lftil. Það
fyfirfinnast sólir, sem eru 400
sinnum meiri að ummáli en okk-
ar sól.
Það eru 384.000 km til tungls-
ins. Getur það kallazt langt?
.Tú, þvf verður ekki neitað. að
það er drjúgur spölur. En þó cr
mun lengra til sólarinnar, — 150
milljón kílómetrar. og jörðin
okkar fer á einu ári 930 milljón
km langan hring umhverfis þessa
sól. En hvað er það. þegar maður
athugar, að það er þvf sem næst
6000 milljón km löng leið til
Plutós, yztu plánetunnar f okkar
sólkerfi. f samanburði við það
fer að verða skömm leiðin út f
„sjoppuna", að maður minnist nú
ekki á spölinn á milli ísskápsins
og eldhússborðsins.
Þó keyrir fyrst um þverbak,
þegar leiðirnar fara að gerast
22
VIKAN