Vikan - 07.04.1960, Page 26
Ást við íyrstu sýn
Framhald af bls. 11.
Laxárholt er niður undir sjó, og
útsýnið er dásamlegt, víður fjalla-
hringur, og á kvöldin sjást ljósin
i Reykjavík i fjarska.
— Er ekki landslagið annars
svipað og annars staðar á Mýrun-
um: berir klapparhryggir og fúin
mýrarsund á milli?
— Jú, það er rétt. Bærinn stend-
ur á einum hryggnuin. Svo erum
við að rækta sundin. Það verður
að þurrka upp hvern skika.
— Er vel húsað hjá ykkur?
— Þvi miður, — ibúðarhúsið er
gamalt. En við höfum verið að
hyggja peningshúsin. Það varð að
ganga fyrir. íbúðarhúsið kemur
kannski einhvern tíma seinna.
— Það «r gott að vera uttgju
samur og óvanalegt á vorum dög-
um. Hafið þið stórt bú?
— Þegar ég kom, voru 30 ær, en
nú eru þær á þriðja hundrað. Svo
höfum við 5 kýr.
— Og þú kannt vel við þig i bú-
skapnum?
— Ég vildi fyrir engan mun
skipta.
— Mikið af ungu fólki þarna í
Hraunhreppi?
— Það fer allt burtu — eða svo
má segja. Það, sem verður eftir
heima, piprar. Ég held, að það sé
piprað fólk á hverjum bæ.
— Hvað er að heyra. Það er
bara eins og á írlandi. Þar er mesta
vandamálið, að unga fólkið giftist
ekki. Það fær ekki atvinnu og flyzt
til annarra landa, og þar nær það
saman. Þetta er kannski eins í
Hraunhreppi?
— Ég veit það ekki. Það er nú
svo margt ungt fólk, s«un f#r á
skóla.
En það versta er, að skemmtana-
lífið er alveg dautt. Við höfum
ekki félagsheimili, aðeins mjög
gamalt þinghús, og fólkið hefur
varla tækifæri til þess að hittast.
— Þetta er mjög einkennilcgt
byggðarlag og vera þó þetta nærri
fjölbýlinu. Hvernig er hugsunar-
háttur manna, við þessar að-
stæður?
— Við skulum ekki tala um
hann.
— Kannski er það bezt, það hef-
ur heldur euginn'leyfi til þess að
skipta sér af því, hvernig menn
liugsa. Hefurðu farið til Danmerk-
ur, slðan þú fiuttist tit íslands?
— Nei.
— Og laugar ekki til?
— Jú, maður lifandi, hvort mig
langar. Ég meina, að mig langar
til þess að skreppa snögga ferð.
— Kannski færðu tækifæri til
þeas i bráð.
— Ekki nema maður verði
snögglega milljónari eða vinni í
happdrætti.
Svo var Akraborgin að fara, og
hún ætlaði með henni upp eftir.
Hún vissi ekki vel, hvernig hún
kæmist vestur i Hraunhrepp frá
Borgarnesi, því að bóndinn átti
ekki bíl og gat ekki náð i hana.
Þau höfðu keypt traktor fyrir
nærri fimmtiu þúsund i fyrra. Það
hal'ði orðið að ganga fyrir. Bíll
kæmi ef til vill einhvern tima síð-
ar, Hún hafði ekki áhyggjur af því.
Nú var hún bara að lyfta sér upp,
og þá hugsaði Jóhann um heim-
ilið. — Hann er svo montinn af
matargerð sinni, sagði hún. — Nú
fær hanu að njóta sín. Svo fer
hann einhvern tima seinna í bæ-
inn, og þá hugsa ég um búið fyrir
hann. Við getum ekki farið bæði
í einu, en við hjálpumst að, og þá
gengur þetta prýðilega. h
Italska sniðið er^
að sigra
Framh. af bla. 19.
er haft ögn aíðara en verið hefur
og hornin aðeins stærri. Jakkinn er
hnepptur með þremur tölum. Bux-
urnar eru þröngar. Ég segi ekki, að
þær standi á beini, en þær eru látn-
ar falla fremur þétt að og engin
uppbrot höfð neðan á þeim. Eins
og ég sagði áðan, hafa ekki allir
vöxt til þess að geta klæðzt svona
fötum, þau fara mun betur grönnum
og liðlega vöxnum mönnum.
— Eruð þið farnir að framleiða
föt með þessu sniði hér?
— Við höfum ekki þorað að
„iager“-sauma þau enn þá. En við
höfum saumað á allmarga einstakl-
inga, ekki sízt menn, sem hafa farið
utan til meginlandsins og orðið
hrifnir af sniðinu.
— Heldurðu, að sniðið falli mönn-
am í geð hér almennt?
— Það eru alltaf að aukast pant-
anir á því, og ég er ekki I vafa um
það, að þetta ítalska snið verður of-
an á hér sem annars staðar eftir
skamman tínta +
Stór er geimnrinn
Framhald af bis. 23.
ins. Aftur á móti yrðum við full
seytján ár að fljúga til sólarinnar.
Og ef við hefðum i hyggju að
setjast að á Plútó, yztu plánetunni
í sólkerfi okkar, yrði hár okkar far-
ið að grána, þegar við næðum þang-
að. Sú flugferð mundi nefnilega taka
okkur Ö45 ár.
10.800 milljónir ára þvert yfir
V etrar brautina.
Ekki yrði leggjandi upp í flug
þvert yfir Vetrarbrautina með slík-
um farkosti, því að sú flugferð
mundi taka að minnsta kosti 10.800
milljónir ára. En þá færi þó fyrst
að kárna gamanið, ef við hygðum
á flugferð eftir henni endilangri,
því að það tæki okkur alltaf 108.000
milljónir ára. Og það væri blátt
áfram frágangssök að ætla að fljúga
með þotu til nálægasta stjarnkerfis,
því að flugið þangað tæki 1.620
milljarða ára, en til yzta stjarnkerf-
isins, sem okkur hefur tekizt að
koma „auga“ á, mundi flugið taka
2.170 milljarða ára.
Það leiðir af sjálfu sér, að við
yrðum að verða okkur úti um hrað-
fleygari farkost en nýtízku-farþega-
þotu til slíkra ferða, — fyrir nú
utan það, að hún þyrfti andrúmsloft
til að fljúga i — ef nokkuð ætti að
ganga. Geimfiaugin verður að ná
11,2 km hraða á sekúndu eða um
það bil 40.000 km hraða á klukku-
stund til að losa sig úr viðjum að-
dráttarafis jarðar. Það verður að
teljast sómasamlegur hraði, en jafn-
vel þótt geimflaugin gæti haldið hon-
um til lengdar, mundi það taka okk-
ur álitlegan tima að fara með henni
ferða okkar um himingeiminn.
Við yrðum að vísu ekki nema eina
klukkustund umliverfis okkar eigin
jörð og ekki nema tíu klukkustundir
til tunglsins og varla þaÖ. Aftur á
móti yrðum við 156 sólarhringa
til sólarinnar og full sextán
ár til Plútós. Og það tæki okk-
ur 2.400 milljónir ára að fljúga
eftir endilangri Vetrarbrautinni og
ekki minna en 54.000.000.000.000
milljónir ára að fljúga til næsta
stjarnkerfis.
Okkar eigin Vetrarbraut er að
lögun til einna áþekkust þunnri,
aflangri pönnuköku, en jörð okkar
er um 30.000 ljósára frá miðdepli
hennar og um það bil 20.000 Ijósára
frá jaðrinum. Þvert yfir pönnukök-
una þá hina miklu eru um 100.000
ljósár, en það tekur ljósið ekki nema
10.000 ár að ná i gegnum hana á
þykktina. Sá geisli, sem lagt hefði
af stað í það ferðalag á ísöld, væri
þvi að komast á leiðarenda um þetta
leytið. Hefði hann hins vegar ekki
lagt af stað fyrr en í þann mund,
sem synir ísraels unnu að þvi í
þrældómi að reisa egypzkum kon-
ungum pýramída, væri hann ekki
einu sinni kominn hálfa leið.
Þegar gras vex sem hraðast,
hækkar það um einn sentímetra á
sólarhring. Það gæti því vaxið um
sextán sentímetra á þeim tíma, sem
það tæki okkur að fljúga með ný-
tizku-farþegaþotu til tunglsins. Á
þeim tima, sem það tæki okkur að
komast með þeim farkosti til sólar-
innar, gæti það — timans vegna —
orðið 63.5 metrar á hæð, en 2.350
metrar, á meðan við værum að sil-
ast leiðina til Plútós — með 1000 km
hraðfl á klukkustund ... +
nytt
X \ ■ JL JL. • « •
ER
Poeui
SEM SKYRIR HARALIT YÐAR
HÁRSKÝRIR . . . SHAMPOO . . . LAGNINGARVÖKVI.
FOCUS gerir háralit ydar skýran og fagran og endist vikum
saman, og hár ydar mun vekja addáun allra, sem á líta. FOCUS
er einnig shampoo.
HAFIÐ ÞÉR ALDREI NOTAÐ LIT?
Þér getid óhræddar notad FOCUS.
Hann er audveldur í notkun og med
AAttim auuvviuu* * flXWW.vv... ...w« ;V-
fullkomlega edlileg litaráhrif, sem *><,
skýra og fegra ydar cigin háralit. . * ■
6 UNDUR-FAGRIR OG
EÐLILEGIR HÁRALITIR— l
Veljid þann, sem hæfir háralit |
ydar.
HEILDVERZLUNIN
HEKLA H.F.
Hverfisgötu I03-Smi 11275. '_,
26
VIKAN