Veðrið - 01.09.1956, Blaðsíða 21
4. mynd.
Belgnum .ileppt i loft upp.
i
stig loftsins er mjög lágt. Á myndinni er sleppt línuriti fyrir rakastig loftsins
og einnig vindathugunum.
Eins og oft vill verða, |)á var mesti vindhraðinn rétt neðan við veðrahvörfin
eða 40 m/sek. í 10200 m hæð.
Mælitæki þau og sendir, sem hér ræðir um, kallast á útlendu máli radió-sonda.
Þegar belgir springa, falla sondurnar til jarðar, enda finnast margar árlega
lítt eða ekki skaddaðar. — Þær eru hvítar að lit og sjást því oft langt að. — Ekki
þurfa finnendur að koma J)eim til skila.
LEIÐRÉTTING.
Önnur veðurvísan í janúarheftinu var rangt með farin og auk þess skakkt
l'eðruð. Hún er ekki eftir Þorgrím, heldur sonarson hans, Steingrím Baldvinsson.
sem býr í Nesi eins og afi hans og er löngu þjóðkunnur hagyrðingur.
Rétt er vísan svona:
Hafið er skeið liins skamma dags,
skuggar á leiðum flakka.
Vindar greiða fanna fax
fram af heiðar makka.
Jónas Jakobsson.
57