Veðrið - 01.09.1956, Síða 30
Eigi hefur batnað fljótt, þótt Góa faeri:
Ei viS hika harSindin,
— hörS er neySaralda;
ein er vika af liSin
EinmánuSi kalda.
Þessari veit ég eigi deili á:
Svalt er nú um sumarmálin, séra góSur.
Hvergi skjól og hvergi ylur,
hörkufrost og norSanbylur.
Betur hefur litiS út, þegar J>essi var gerS (en hún mun sunnlenzkrar ættar):
HjarniS er aS hverfa nú.
helzt J>aS, aS ég vona.
ÞaS verSur ekki þrautabú,
þegar vorar svona.
Þessi visa er líklega kveSin í óþurrki um sláttinn:
Þykkur í austri, þýtur skúr,
J>rár er hann og kaldur;
skýjaglugga gægist úr
grettur rosavaldur.
Margt mætti víst tína til af svipuðu, en J>etta læt ég nægja að sinni.
Með vinsemd og virðingu.
Einar Einarsson.
☆ ☆ ☆
66