Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 5
VEÐRIÐ
TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI
KEMUR ÚT TVISVAR Á ARI - VERÐ ÁRG. KR. 40.00
1. HEFTI 1963 8. ÁRGANGUR
RITNEFND: JON EYÞORSSON
FLOSI H. SIGURÐSSON
PÁLL BERGÞÓRSSON
HLYNUR SIGTRYGGSSON
AFGREIÐSLUSTJÓRI:
GEIR ÓLAFSSON
DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131
JÓN EY I>Ó RSSON:
Rasmus Lievog og veðurathuganir hans
í síðasta hefti Veðursins sagði ég sitt hvað af stjörnuturninum á Lambhúsum
á Álftanesi og stjörnumeistaranum Rasmusi Lievog. Þrátt fyrir eftirgrennslan
hefur mér ekki tekizt ennþá að afla frekari vitneskju um uppruna og æviferil
Rasmusar, en úr þvi kynni að rætast síðar.
Framan á kápu þessa heftis er mynd al titilblaði fyrstu veðurbókar Rasmusar.
Þar stendur með þeirrar tíðar stafsetningu og konunglegri viðhöfn:
Meteorologiske O bservationer
som efter kongel. allernaadigste Befaling og Bekostning ere gjorte fra lOde
Augusti 1779 til 30te Junii 1780 paa Sönderlandet i Island af Rasmus Lievog.
Á íslenzku mætti kalla þetta: Veðurathuganir, sem gerðar eru samkvæmt
allramildilegustu skipun konungs og á hans kostnað, frá 10. ágúst 1779 til 30.
júní 1780 í suðurhluta íslands, af Rasmusi Lievog.
Framan við veðurbókina hefur Rasrnus Lievog gert grein fyrir mælitækjum
sínum og hvernig þeim var komið fyrir bæði á Bessastöðum og síðar á Lamb-
liúsum, eftir að hann flulli þangað á jólum 1779. Fer formáli hans hér á eftir
í íslenzkri þýðingu:
ATFIUGASEMDIR UM EFTIRFARANDI VEÐURATHUGANIR
Frá 10. ágúst 1779 til 24. des. sama ár voru athuganir gerðar á búgarði Tho-
dals stiftamtmanns, Bessastöðum, en upp frá því á Lambhúsum, en sá bær
stendur h. u. b. 500 skref vcstur-suðvestur af Bessastöðum.
Loftvogin, sem notuð var til athugana þessara, er gerð af Johan Lerra og
afhent mér af prófessor Bugge við brottför mína frá Kaupmannahöfn. Mæli-
kvarðinn í frönskum einingum, sem sé jjumlungum1), sem skipt er í 12 línur.
1) Franskur þumlungur = 12 llnur = 27,070 millimetrar, 1 lína = 2,250 mm.
VEÐRIÐ — 3