Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 25
JÓNAS JAKOBSSON:
Hitastig yfir Keflavík
Veturinn 19f>2—'63 hefur verið mildur og hagstæður. Fyrri hlutann var hiti
nálægt meðallagi, því að þótt nóvember væri heldur kaldari en undanfarin ár,
var desember annað eins fyrir ofan meðallag. Seinni hluti vetrar varð aftur á
móti talsvert hlýrra en venja er. Lætur nærri, að meðalhiti fyrsta fjórðungs árs-
ins 1963 sé tveimur stigum liærri en í meðalári. Munar þar mest um marz, senr
er nálægt þremur gráðum hlýrri en meðaltal síðustu 10 ára.
Hitalínurnar, sem hér fylgja, lýsa vetrinum vel á sinn hátt.
I október var hlý tíð fyrstu þrjár vikurnar, eða fram undir veturnætur. Vindur
var þá lengstum á sunnan og suðaustan og flutti til landsins liafloft, lengst að
sunnan og lilýjast þ. 19. og 20. Eftir Jiað hófst tveggja vikna kuldakafli. Þá voru
lægðir suðaustur af landinu, svo að norðaustlægir vindar voru ríkjandi og báru
að loft frá hafinu fyrir norðan og norðaustan landið.
Um miðja fyrstu viku nóvember hlánaði í bili, en um miðjan mánuðinn var
kuldakafli og annar rétt fyrir mánaðarlokin.
í desember ríkti lilý suðlæg átt fyrstu vikuna. Þá gerði hálfs mánaðar um-
Ideypingakafla. Lægðir bárust norðaustur yfir landið eða rétt hjá Jjví, svo að
skakviðrasamt varð og ógæftir. Hitasveiflur voru jjó ekki ýkja miklar, Jjví að
lægðirnar fóru of hratt lijá til að loft gæti komið mjög langt sunnan eða norðan
að. Um jólin stilltist veðrið, ]>ví að mikið háþrýstisvæði breiddist yfir landið og
hafið umhverfis.
Eftir nýárið héldu stillurnar áfram eins og ljóslega má sjá á liitalínunum
fyrir janúar. Eyrstu tvær vikurnar andaði einkurn á austan og norðaustan, cn
um miðjan mánuðinn J>okaðist liæðin til austurs, svo að áttin varð suðlæg og
veðrið milt. Tvö lítils háttar kuldaköst komu seinast í mánuðinum, en stóðu stutt.
í fyrstu viku febrúar gerði norðan áhlau]>. Kemur J>að mjög greinilega fram
sem kuldadalur á liitalínunum. Með ]>ví barst hrafl af hafís inn undir land
nyrzt á Vestfjörðum, en liann livarflaði fljótlega frá og rak vestur á bóginn, J>ví
að vindur gekk í austrið. Mestan hluta mánaðarins hélzt svo austanátt fremur
hlý og hæg. Var því einmunatíð um allt land.
Góðviðrið liélzt áfram í marz. Loft frá hafinu suður og suðaustur af landinu
var einrátt. Útlit hitalínanna minnir á sumarmánuð, svo litlar eru hitabreyt-
ingarnar. Aldrei gerði neitt kuldakast, og í 500 m liæð var hitinn lengstum yfir
frostmarki.
VEÐRIÐ
23