Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 24
2. VeÖurkort 23. marz 1963 kl. 17.
Spár um ölduhaö.
Ef fylgja ætti þessari aðferð til þess að spá ölduhæð, yrði fyrst að teikna
spákort fyrir vindinn á hafinu, og þyrftu þau kort að gikla fyrir 12. hverja
klukkustund á spátímabilinu. Siðan yrði ölduspáin gerð í 12 stunda áföngum.
Þetta væri gerlegt, ef um sólarhrings spá væri að ræða, en all-tímafrekt, cf
spáð væri tvo sólarhringa cða meira fram í tímann. Miðað við alla þá óvissu,
sem lilýtur að vera í spám um vindinn svo langt fram í tímann, væri þess
vegna eðlilegast að spá þá aðeins liæð vindöldu, en áætla undiröldu lauslega á
þeim svæðum, þar sem búizt er við, að vindurinn verði hægastur.
Varla þarf að taka fram, að þessar spár gætu aðeins átt við á rúmsjó, en
nálægt ströndum yrði að leiðrétta áætlun ölduhæðarinnar vegna áhrifa landsins.
22
VEÐRIÐ