Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 23
grundvöllur til þess að áætla undiröldu 12 klst. slðar. Um leið og veðurkortið
sex tímum síðar er tilbúið, er hægt að sjá af því vindölduna sex stundum eftir
það kort, og þannig má svo halda áfram koll af kolli.
SamanburÖur við athuganir veðurskipa.
Til þess að reyna aðferðina teiknaði ég sjö ölduhæðarkort á 12 tíma fresti
frá 20. marz kl. 17 til 23. marz kl. 17 og gerði um leið samanburð við athuganir
veðurskipa á ölduhæð. Eru þessi veðurskip nierkt með bókstöfum sínum á 1.
mynd, og er rétt að geta þcss, að þar er C-skipið 4.2 gráðum norðar en venja
er til. Alls fengust þannig 53 samanburðarathuganir. Reyndist skekkjan í áætl-
uninni ekki fara yíir einn metra í tvö skipti af hverjum þremur, og aðeins í
einu af hverjum 20 tilvikum varð skekkjan meiri en tveir metrar. Má þetta
teljast sæmilegt, þegar jress er gætt, að yfirleitt jtykir ekki fært að áætla öldu-
hæðina af skipum með meira en hálfs metra nákvæmni.
VEÐRIÐ --- 21