Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 21
PÁLL BERGÞÓllSSON:
ÖlduhæS á úthafi
í þessu greinarkorni verSur lýst aðferð til þess að áætla ölduhæð á úthafi
eftir veðurkortum, fyrst og fremst eftir vindhraðanum.
Nú má spyrja, hvort ekki sé fullnægjandi að teikna kort yfir ölduhæðina
beinlínis eftir þeim athugunum, sem á henni eru gerðar, bæði á veðurskipum
og mörgum kaupförum. Um þessar athuganir hefur verið skrifað áður í VEÐRIÐ,
í greininni Teikning veðurkorta á skipum.
Við þessari spurningu er því til að svara, að athuganir þessar eru víða
strjálar, ekki sízt kringum ísland, og þa:r segja fátt um annað en þau svæði,
sem skipin eru stödd á. Veðurkortin lýsa liins vegar vindinum með mun meiri
vissu, jjví að auk beinna vindathugana segir loftþrýstingurinn rnikið tii um
vindinn á hafsvæðunum miili skipanna. Einnig er á annað að líta. Vilji menn
spá öidugangi, er fyrsta skiiyrðið að spá vindi, og eftir honum verður síðan að
mcta bylgjurnar. En einmitt spár um öiduhæð eru mjög mikilvægar, ailra helzt
eí þær ná nokkra daga fram í tímann. Takist þær sæmilega, geta skipafélög
sparað stórfé með jrví að haga siglingaleiðum eftir sjóiagi, auk jjess sem betur
fer um fólk og farm.
Hér verður nú farið þannig að, að aldan á hverjum tíma er talin samsett af
vindbáru og undiröldu. Vindbáran er metin eftir vindhraða fyrir sex klukku-
stundum, en undiraldan er eingöngu tafin háð jrví, hver ölduliæðin var í 200
sjómílna fjarlægð fyrir 12 klukkustundum.
Vindbára.
Lengi hafa sjómenn vitað, að milli ölduliæðar og veðurhæðar er ákveðið hlut-
fall, ef vindurinn blæs um tíma af sömu átt og með jöfnum styrk á rúmsjó.
Þetta hlutfall kemur fram í eftirfarandi töflu, sem er samin eftir aljjjóðlegum
leiðbeiningum um veðurathuganir á sjó. Þess skal getið, að ölduhæð er reiknuð
frá öldudal til ölduhryggjar, og rniðað er við hinar stærri og greinilegri öldur.
Vindhraði, hnútar..... 0 10 20 30 40 50 60 70
Ölduhæð, metrar....... 0 0.7 2 4 6 8/, lli/g 14ýó
Ef undiralda er engin, er auðvelt að finna ölduhæð eftir þessu. Er jrá ekki
annað en teikna línur fyrir vindhraðann, 10, 20, 30 hnúta o. s. frv. og merkja
hverja Jjcirra með tilsvarandi ölduhæð samkvæmt töflunni hér á undan. En
vegna þess að jiað tekur nokkurn tíma fyrir sjóinn að laga sig eftir vindi, er
liér farið eftir vindinum eins og liann var sex klukkustundum áður. Eins kæmi
VEÐRIÐ
19