Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 27
var -f 0.10°C árið 1960. Hæð írostmarks frá sjó varð einnig lægri en áður, aðeins
850 metrar, eða 80 metrum lægri cn meðaltal síðustu níu ára. Mest munar um,
hve marz var kaldur. Þar við bætist, að vor- og sumarhitinn var nokkuð undir
meðallagi. Á 3. mynd er gangur liitans frá einum mánuði til annars sýndur.
Þar sést, að hitasveiflan er með meira móti, eða 12.8 gráður í 1000 m hæð.
1 þeirri hæð var marzhitinn lægstur, eða -r-8.0 stig, cn júlíhitinn hæstur, 4.8
stig. Hitafall með hæð var 5.55°C á kílómetra, og er það aðeins minna en í
meðallagi.
í samræmi við lágan einkennishita og lága frostmarkshæð voru hlákur minni
en átta undanfarin ár. Þeir, sem búa í grennd við Reykjavík, munu hafa tekið
eftir því, að fönnin í Esjunni hvarf aldrei alveg um sumarið, en lítil var hún
orðin í ágústlok. ÁreiSanlega hverfur hún í sumar, svo snjólétt er til fjalla
hér syðra.
Að lokum er hér tafla tim hlákurnar á árinu.
VEÐRIÐ
25