Veðrið - 01.04.1963, Qupperneq 11

Veðrið - 01.04.1963, Qupperneq 11
KNÚTUR KN U J)SHN, veðurfreeöingur: Haust og vetur 1962-1963 September. I mánuðinum var tíð fremur liagstæð. Hitinn var nálægt meðal- lagi, en úrkomumagnið víðast með minna móti, einkurn austan lands. í kringum þann ellefta var víða nokkurt frost, og fcll þá kartöflugras. Sextánda var vindur norðanstæður, 10—11 vindstig austan til á landinu, en skemmdir urðu ekki teljandi. Þann 23. fór djúp lægð norðaustur yfir Breiðafjörð. Fylgdi norðanrok og slydda á Vestfjörðum, en annars staðar vestanátt, víða 10—11 vindstig. Varð af talsvert tjón á bátum og mannvirkjum. Oklóber. Suðlæg átt var ráðandi til 22. Var þá blíðviðri á norðaustanverðu landinu, en vætutíð á Suður- og Vesturlandi. Um ntiðjan mánuðinn urðu skemmdir af völdunt stórrigninga á Vesturlandi og jafnframt fádæma hlýtt norðaustan lands. T. d. komst liitinn á Skriðu- klaustri yfir 17 stig. Síðustu vikuna brá til norðanáttar, fór að írysta, og sums staðar snjóaði dálítið. Fyrsti vetrardagur var 27., og daginn eftir var kornin vaxandi lægð yfir Græn- landshafi. Um kvöldið 28. fór að snjóa á Suðvesturlandi og síðan fljótlega um allt land. 1 birtingu 29. létti til suðvestan lands og síðar um daginn sunnan lands allt til Austfjarða. Þann 30. er lægðin komin austur fyrir land með stöðugri snjó- komu um allt norðanvert landið. Veðrið batnaði, þegar leið á daginn, og um kvöldið voru aðeins smáél. Þetta var langmesta snjókoman í vetur. Fé fennti víða og urnferð tepptist. Algeng snjódýpt á sunnanverðu landinu var 30 cm, en mest var hún á Norð- austurlandi. Á Egilsstöðunt var jafnfallinn snjór 100 crn og ntikið meira utar á Héraði. Nóvember var í meðallagi á vestanverðu landinu, en austantil var ágæt haust- tíð. Vestan lands og norðan skiptust á frost og þíður, en á Suðausturlandi var stöðugt þíðviðri fram í miðjan mánuð. Tók þar af októbersnjóinn á nokkrum dögum. Þann 25. og 2(3. var víða foráttuvestanveður með éljagangi. Hvassast varð á ann- nesjum norðan lands og í Grímsey, en þar stóð vestanrokið í \i/z sólarhring. Olli |tað flóði, sem skolaði með sér 200—300 tunnum af síld. Bæði í Grímsey og á Siglunesi komst veðurhæð í 12 vindstig. VEÐRIÐ --- 9

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.