Veðrið - 01.04.1963, Side 18

Veðrið - 01.04.1963, Side 18
Stefán skáld frá Hvítadal virðist hafa verið veðurnæmur maður. Norðanátt- inni lýsir hann þannig: Ég hef löngum lítinn mátt í leik við norðanátt. Sólskinið verður honum aftur á móti upplyfting og hugarlétting. Það birtir yfir hugans hag við heiðra draurna lag. Nú get ég sungið gleðibrag um góðviðrið í dag. Vorið virðist vera sérstakur vakningatími skálda. Til er urmull af vorvísum, þar sem skáldin prísa batnandi veðráttu og hækkandi sólargang. Þetta er í góðu samræmi við veðurfarsskýrslur, sem sýna, meðal annars, ört hækkandi loftþrýst- ing (sjá línurit). Vetrarkvíðinn er gleymdur og þreytan vegna vetrarins dvínar. Jónas Hallgrímsson lýsir þessu svo: Ekkert betra ég í letri inna má; — svo er vetri vikið frá; uni fleti hver, sem getur, heimskum gærum á. — Önnur er mín þrá. Línurit I sýnir meðalloftvægi í Reykjavík fyrir hvern mánuð ársins, árin 1901 — 1930. Sést á því, að loftþrýstingur hækkar mjög ört frá janúar til maí, en þá er hann hæstur. Hækkunin nemur rúmlega 12 mm kvikasilfurs (Hg) eða 16 millibörum og samsvarar kringum 1,6% breytingu. Þetta þýðir, að loftþunginn eykst að jafnaði um 270 kg á líkama meðalmanns tímabilið janúar—maí. Tveggja til þriggja daga breytingar á loftþrýstingnum samfara djúpum lægðum geta orðið 3—4 sinnum meiri, og má t. d. benda á dagana 22.-24. marz 1963, en þá féll loftþrýstingurinn úr 1025 mb niður í 975 mb á 3 dögum á Suðvesturlandi. Þetta samsvarar um það bil 5% breytingu og þýðir, að loftþunginn á livern íbúa Reykjavíkur minnkaði um 850 kg þessa daga. Á íslandi er veturinn að jafnaði langur og erfiður mönnum og dýrum. Það er því skiljanlegt, að komu vorsins sé beðið með óþreyju. Líkamlegur og and- legur þróttur manna er yfirleitt minnstur á vorin, en vorkoman hefur örvandi áhrif á „huga og hönd". Þessi örvun er samt ekki öllum jafnholl, því að hún 16 VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.