Vikan - 04.05.1961, Blaðsíða 13
35S?
-Htier réttir upp l/ikuskei/um ?
íslendingar hafa lengi haft mætur á sterkum mönnum jafnvel svo,
að aðrir hæfileikar eða gáfur þóttu hvergi nærri eins eftirsóknarverð
sem líkamskraftar. Sögur um sterka menn gengu frá kynslóð til kyn-
slóðar, og það var talað um þá með aðdáun. Sjálfsagt hefur krafta-
dýrkunin eitthvað minnkað, en þó hafa menn gaman af hraustlegum
átökum enn í dag.
Nú ætlar Vikan að athuga, hverjir eru sterkir — og ekki sterkir.
Þeir ætla að smíða nokkrar skeifur fyrir blaðið í Hamri, — þeir smíða
skeifur ekki síður en annað, — og síðan ætlum við á stjá. Við munum
koma á fjölmenna vinnustaði, í smiðjur, verkstæði, verksmiðjur, niður
að höfn, í bankana og á skrifstofur, á skemmtistaði, og ekki má gleyma
því, að við ætlum að senda nokkrar skeifur til trúnaðarmanna okkar
úti á landsbyggðinni. Og hvað á svo að gera við allar þessar skeifur?
Jú, það er auðsætt. Það á að finna sterka menn, sem eru þess megnugir
að rétta þær upp. Skeifurnar verða að sjálfsögðu nákvæmlega eins,
og þeir í Hamri sjá svo um, að meðalmaður geti rétt þær um svo mikið
sem einn millímetra. En sá, sem réttir bezt upp Vikuskeifuna, fær verð-
laun: Fallegan og þægilegan ruggustól og auðvitað frá SKEIFUNNI.
Ekki mun af veita að hvíla sig á eftir.
verðlaunin;
VIKAN 13