Vikan - 04.05.1961, Blaðsíða 35
Verðlaunakeppni Vikunnar
TJrslit eru kunn í verðlaunakeppni Vikunnar.
Vinningar voru tveir, ískista og isskápur frá
Rafha í HafnarfirSi. Verðmœti þeirra er tutt-
ugu þúsund krónur. Vikunni barst mikill fjöldi
réttra lausna, og sannar það enn frekar, hve
Hafsteini Traustasyni afhent verðlaunin.
íslendingum er tiltækur allur fróðleikur úr
íslendingasögum. Nær tvö þúsund lesendur
Vikunnar svöruðu rétt til um Þormóð Kolbrún-
arskáld, Gretti og Glám, Gunnar á Hliðarenda
og Hallgerði og Skarphéðin á Markarfljóli.
Þegar dregið var úr réttum lausnum, kom
fyrst upp nafn Hafsteins Traustasonar, Brekku-
götu 20, Hafnarfirði, og fékk hann iskistuna.
Hann er lærlingur i Bílasmiðjunni í Reykjavik
og á eftir eins árs nám til að vera fullnuma i
hifreiðasmíði.
Það kom á daginn, þegar Vikan talaði við
Hafstein, að hann ætlar að fara að gifta sig.
Unusta hans er Elisabet Halldórsdóttir frá
Hvolsvelli. Hafsteinn sagði: — Það var mjög
heppilegt að fá kistuna, en ég átti síður en
svo von á þessu. Nú er ekki annað en að taka
við þessu og þakka fyrir sig.
— Þú ert vel heima í íslendingasögunum?
—• Ég á þær allar og hef lesið mikið i þeim.
Harfsteinn er fæddur í Sandgerði. Hann segist
ekki hafa verið mikið á sjó um dagana, en
hefur unnið ýmsa almenna vinnu, bæði á Vell-
inum og annars staðar.
Þegar hann og Elisabet hafa gift sig, er ætl-
unin að búa í Reykjavík fyrst um sinn.
Sá scinni, sem dreginn var út, heitir Ari
Jónsson, Langholtsvegi 184. Þegar Vikan talaði
við Ara, sagði hann: — Þetta var mjög ánægju-
legt og góður páskaglaðningur. Ég hef einmitt
verið að hugsa um, hvenær ég hefði efni á að
fá mér svona tæki, en nú þarf ég þess ekki
lengur.
Ari Jónsson.
— Vissirðu öll svörin?
—• Já, þær voru nú léttar, og þó þurfti ég að
atliuga með Þornióð Kolbrúnarskáld. Ég hélt
reyndar, að það væri hann, en til frekara ör-
yggis gáði ég í söguna.
Við óskum Ara til hamingju með skápinn og
kveðjum.
PRYSTIHÚS
Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár-
um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður
síálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt
er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota-
legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað).
VIKAN 35