Vikan - 15.06.1961, Side 15
XYJAX BANKA
G. Lúðvígssonar. Þeir, sem bera hitann og þungann af rekstri verzlana
gera sér vonir um bjartari framtíð og meiri auraráð fyrir mátt þessa
banka, og fyrir Pétur og Pál hefur útlitið líka batnað, þvi að mögu-
leikinn til að fá víxil á þrengingatímum hefur aukizt um einn.
Vikan birtir nokkrar myndir í tilefni þessa at'burðar sem sýna sjálfa
sýnir fundinn, þegar verzlunarmenn samþykktu að leggja Verzlun-
arsparisjóðinn niður og stofna Verzlunarbanka, aðrar sýna sjálfa
flutningana og að lokum eru nokkrar myndir teknar í hófi, sem
verzlunarmenn efndu til í Lido í tilefni þessa atburðar.
>
Tveir af gamla skólanum:
Egill Guttormsson, stórkaup-
maður og form. bankaráðs
Verzlunarbankans t. v. og
Kristjón Jóhann Kr'stjánsson
í Kassagerðinni, form. banka-
ráðs Iðnaðarbankans.
Starfsfólki bankans var einnig boðið til hófsins. Hér eru, talið frá
vinstri: Unnur líergsveinsdóttir, ritari í innheimtudeild, Bjarni
Ólafsson, gjaldkeri, Erna Nielsen, ritari í sparisjóðsdeild, Unnur
Jónsdóttir, ritari í víxladeild, Björn Eiríksson, fulltrúi í inn'-
heimtudeild og bak við hann Halldór Júlíusson, fulltrúi í hlaupa-
reikningsdeild.
Þeir urðu fyrstir inn, þegar
opnað var. Næstur á mynd-
inni er Jónas Hallgrímsson,
sá er á stærst frímerkjasafn
hérlendra manna.
<1
Þeir skrifa nöfn sín í sparisjóðsbækurnar. Höskuldur Ólafsson, banka-
stjóri, t. v. og Lárus Lárusson, aðalbókari.
Borgarstjórinn sanifagnar verzlunarmönnum. Frá vinstri: Höskuldur
Ólafsson, bankastjóri Verzlunarbankans, Þorvaldur Guðmundsson f
Síld og Fisk, Egill Guttormsson, stórkaupm., þá Geir Hallgrimsson,
borgarstjóri og lengst til hægri Guðmundur Gíslason, stórkaupmaður.
Þeir Björgúlfur Bachmann, aðal-
gjaldkeri og Sigmundur Andrésson,
gjaldkeri, flytja peningatalningavél
bankans.
<C
>
Það lítur út eins og illa heppnað
bankarán, en því fer fjarri, að um
nokkuð slíkt sé r.ð ræða. Iíér er
Iíjörgúlfur Bachmann, aðaigjald-
keri að flytja sjóðinn og hefur við
það lögregluvernd.
VIKAM 1S