Vikan - 15.06.1961, Blaðsíða 26
hljómlist
óskamyndin
*
Að þessu sinni er óskamyndin af
Þorsteini Hallgrímssyni körfuknatt-
leiksmanni. Við hittum hann á heimili
foreldra hans, en eins og flestir sem
stunda langskólanám býr hann hjá
foreldrum sínum. Þorsteinn var við
nám í 5 bekk í Menntaskólanum í
Reykjavik í vetur. Þegar við komum
er hann ekki viðlátinn, hafði skroppið
i iR-heimilið til að hvíla sig frá próf-
lestri, svo við röbbum við föður hans
meðan við bíðum. Faðir Þorsteins,
Hallgrímur Sigtryggsson er eyfirð-
Þorsteinn Hallgrímsson
ingur að ætt og uppruna og sá maður,
sem lengst hefur starfað hjá Samband-
inu. Hann segir okkur að Þorsteinn
sé fæddur 25 júlí 1942 og er hann því
tæplega nítján ára. Loksins birtist
Þorsteinn úr hvíldargöngunni og er
þá hafist handa að spyrja hann um
íþróttaferil hans.
— Hvað varstu gamall þegar þú
fórst að stunda körfuknattleik.
— Ég var 14 ára, þegar ég byrjaði
I 3 flokki körfuknattleiksdeildar iR.
— Þú hefur þá aðeins stundað
körfuknattleik í rúm tvö ár, þegar
þú fórst til Danmerkur með Lands-
liðinu.
— Já. Þá vorum við tveir 16 ára í
Landsliðinu.
— Er það ekki nokkuð ungt fyrir
þátttöku í slíkum leikjum.
— Það er það. En við vorum komn-
landsleikjum, t.d. í öðrum íþróttum.
ir í 2 flokk og þeir taka oft þátt i
— Hvernig er það hjá ykkur núna.
Eru nýir menn að bætast í Landsliðið.
— Það er þannig að Landsliðið er
valið fyrir hvern leik. En meiningin
er að halda saman liðinu, sem lék
seinast og ætlum við að reyna að
æfa vikulega í sumar.
— Hvenær er næsti landsleikur.
Ég veit það ekki, en það verður
liklega ekki fyr en haustið 1962.
— Er áhugi þinn fyrir körfuknatt-
leik alltaf jafn sterkur.
— Já, hann er það.
Við þökkum Þorsteini fyrir viðtalið
og óskum honum góðs gengis.
skálc
„Settu þig aldrei úr færi að segja
skák á kónginn, það gæti kannski
verið mát.“
Þetta var uppáhaldssetning hins
fræga enska skákmeistara Bird, og
auðvitað sagt i gríni. En stundum
getur verið sannleikskorn í slikurri
fjarstæðukenndum reglum eins og
eftirfarandi dæmi sýnir.
Staðan er tekin upp úr bókinni
„Adventure in Chess“. Edward Mason,
London 1948, hafði svart og átti leik-
inn. Þegar hann hafði íhugað stöð-
una dálítið uppgötvaði hann að ef
hann gæti opnað h-liuna, þá gæti
hann mátað á snotran hátt, ef hann
kæmi drottningunni yfir á h8. Þess
vegna byrjaði hann leikfléttuna með
leiknum 1. — Bb5! Þetta er byrjunin
á að ryðja 8. línuna, en ennþá eru 3
menn eftir þangað til drottningin
kemst á h8. En til þess að fara bók-
staflega eftir reglunni fyrrnefndu, þá
verður að skáka hvað sem það kostar.
2. axb5 Rf-g3t 3. Re4x3 Rh5xg3t 4.
hxg3 hxg3t 5. Kgl Hhlt 6. KxHhl
Hh8t 7. Kgl Bc5t 8. RxBc5 Hhlf 9.
ICxHhl. Þetta hefur gengið vel og
núna loksins er búið að ryðja drottn-
ingunni braut. 9. — Dh8t 10. Kgl
Dh2 mát. — Á þennan hátt er hægt
að máta fallega.
kvilcmyndir
*
Anthony Quinn er að mörgu leyti
með sérkennilegustu kvikmyndaleik-
urum í Bandarikjunum. Lengi var
hann eingöngu notaður í indíána- og
glæpamannahlutverk og það bjóst
ekki nokkur maður við því að hann
gerði nokkurn tíma annað, en að vera
vondi maðurinn í kvikmyndum. —
En nú er hann með eftirsóttustu leik-
urum í allar meiriháttar kvikmyndir
og hefur hlotið alls konar verðlaun
fyrir leik sinn. Bæði hefur hann
fengið Óskarsverðlaun og líka verð-
laun hinna ýmsu Evrópulanda. Quinn
er Mexikani, enda bendir útlitið til
blendings af Indíána og Spánverja.
Anthony Quinn
Hér hefur hann sést í myndum eins
og La Strada og Viva Zapata, en fyrir
báðar myndir hefur hann hlotið mik-
ið lof.
—O—
Það er ekki fyrr en nú sem „Ein-
valdsherra“ Chaplins fær að sjást á
tjaldi á Italíu og eru ein þrjú ár síðan
hún var sýnd fyrst í Þýzkalandi og sá
sem þetta skrifar, hlustaði á samtal
tveggja unglinga fyrir utan kvik-
myndahúsið í Berlín, þar sem hún var
sýnd. Var það á þessa leið: „Heyrðu,
ætli sé nokkuð varið í þessa mynd?
— Ertu bilaður maður, þetta er um
Hitler, sérðu það ekki?
Svo við snúum okkur aftur til
Italíu, þá var það gert að skilyrði
fyrir sýningarleyfi, að klippt yrði út
atriði um konu Mussolini. Það voru
jafnvel nokkrir sem fóru fram á að
klippa allt um Mussolini í burt, en
Chaplin neitaði því afdráttarlaust.
*
Tækni
Áttu erfitt með að muna símanúm-
er. Þá má hugga þig með því, að kom-
ið er á markaðinn tæki, sem léttir
af þér slíkum áhyggjum. Ekki nóg
með það, heldur þarftu alls ekki að
velja nema einu sinni sama númerið.
Fái vinur þinn nýjan síma, þá þarftu
aðeins að velja númerið hans í eitt
sinn. Síðan tekur undratækið við
störfum, þannig að I framtíðinni
snýrðu aðeins takka þangað til að
nafn hans kemur í ljós á skifu, svo
velst númerið af sjálfu sér. Hafi
Landssíminn ekki gert ráðstafanir til
að fá svona tæki til landsins, þá ætti
hann að minnsta kosti að fara að
hugsa til þess. Þetta er menningar-
atriði, sem þar að auki kæmi mörgum
að gagni.
Það er engin furða þó við fáum
ekki beztu skemmtikrafta á sviði
hljómlistar hingað til landsins, því
þeir eru svo rokdýrir, að jafnvel
Vestur-Þjóðverjar og Bandaríkja-
menn geta ekki leyft sér að hlusta á
stjörnurnar nema á plötum og i út-
varpi. T. d. varð að hætta við hljóm-
leika með Frank Sinatra í Þýzkalandi
vegna þess, að hann vildi fá hálfa
Elvis Presley
milljón fyrir kvöldið og það þótti
heldur dýrt. Hefði hann komið hingað
og sungið á Iþróttaveliinum í Laugar-
dal og þó verið troðfullt, hefði samt
orðið að selja innganginn á þrjú-
hundruð kall bara til að borga hon-
um. Ekki nokkur skemmtistaður I
Bandaríkjunum hefur efni á að láta
E’lvls Presley syngja hjá sér kvöld-
stund, þvi hann heimtar enn stærri
upphæðir. Þess vegna koma slíkir
menn aðeins fram i kvikmyndum og
sjónvarpi.
Flestir kvikmyndaleikarar og
hljómlistarmenn taka einhvern hlut
fyrir, fatnað eða annað og gera hann
að nokkurs konar vörumerki sínu.
Sumir eru með mjög sérstök hand-
saumuð bindi aðrir með sérstaka
hatta. Frankie Avalon hefur ekki látið
sitt eftir liggja og því gengur hann
ávallt í hvitum skóm.
bréfaviöskipti
Tveir piltar í Ytri-Njarðvík vilja
komast í bréfasamband við stúlkur á
aldrinum 14 til 16 ára. Þeir eru Helgi
V. Jónsson, Holtsgötu 32 og Guðbjörn
Ásbjörnsson, Tunguvegi 12. Helzt vilja
þeir að mynd fylgi. — Sigrún Magn-
úsdóttir, C-götu 4, Þorlákshöfn, lang-
ar að komast í bréfasamband við pilt
og stúlku 13 til 15 ára. — Svo eru
hérna þrír norskir unglingar, sem
vilja komast í bréfasamband við is-
lenzka pilta og stúlkur. Torbjörn
Törrissen, Engebakken Hörsand st
Romedal, Hedmark, vill skrifast á við
stúlkur 14 til 16 ára. Turid Bodin,
Gartneriet, Stange st Hedmark vill
skrifast á við pilt eða stúlku 14 til 16
ára. Gerd-Marie Rosemvinge, Naust-
bukta i Namdalen við stúlkur 14 til
15 ára.
VIKAlll BLAÐID YKKAR
26 VIKAN