Vikan - 15.06.1961, Qupperneq 39
Lubitil
Sputnik
vélin
770.00 Kr. Búðarverð
Heildsölubirgðir
írilnir Kttilssu
Garðarstræti 2.
Þú mátt aka, elskan.
Framhald af bls. 12.
— Þau rifust alltaf sýknt og heil-
agt.
— Já, ég hef heyrt það. En það
skýrir ekki allt, eins og þér skiljið
kannski. Um hvað deildu þau mest?
— Góði, bezti, það skiptir engu
máli. Þau rifust um aJIt milli himins
og jarðar, — alltaf um eitthvað á
hverjum degi. Ef hún sagði, að það
yrði gott veður, þá sagði hann, að
það yrði rigning. Og svona gekk það.
— Skrýtin saga, muldraði Rouke.
Engan mundi það gleðja meira en
mig að geta sagt, að þetta hefði
verið bilslys. En ég fæ ekki skiiið,
hvernig þau komust bæði út úr bíln-
um á leiðinni niður. Bíllinn stöðvað-
ist ekki fyrr en neðar, svo að þau
hljóta að hafa dottið úr á leiðinni
niður. Það liggur alveg ljóst fyrir.
Hann stóð á fætur. og lét á sig
hattinn.
— Jæja, ég verð að fara, en ég
kerrj aftur. Ef til vill dettur yður
eitthvað í hug, sem getur komið að
gagni og þá skuluð þér láta mig
vita.
— Já, þetta með bílinn, sagði
Sara. Það var eins og þau rifust allt-
af mest, þegar hún átti að fá að.aka
honum. Ég man, að sama morgun-
inn, sem slysið vildi til, þá höfðu
þau verið að rifast út af smámunum,
sem hún gat alls ekki lært. Að
minnsta kosti sagði hann það.
— Og hvað var þetta, sem hún
gat alls ekki lært, munið þér það?
spurði Rouke leynilögreglumaður og
gekk að dyrunum.
— Bíðið þér nú, — hvað var það
nú aftur.....Jú, það byrjaði með
því að hann sagði, að hún, sem væri
svo viss um, að hún gæti ekið bil,
ætti að reyna nota handhemlana
einu sinni: Þegar hún stöðvaði bíl-
inn. ★
Enginn er fullkorainn.
Framh. af bls. 16
Snemma næsta morgun slagaði Joe
inn í svefnherbergi þeirra Jerrys.
Jerry æddi þar um gólf eins og í ó-
ráði.
Osgood og hann höfðu dansað tango
alla nóttina. Það hafði verið alveg
óskaplega rómantískt.
„Ég er trúlofaður," söng hann.
„Óska þér til hamingju," sagði Joe.
„Hver er sú hamingjusama ?“
„Það er ég,“ trallaði Jerry. „Os-
good hefur beðið mín. Við höfum
talað um að halda brúðkaupið í júní.“
Lífvörður okrarans.
Framhald af bls. 37.
Joe. Garðyrkjumaðurinn gæti að
minnsta kosti ekki gert leikfimis-
æfingar af þessu tagi.
Háð lögregluforingjans gerði Joe
gramt i geði, meðan hann kom
rannsókninni í kring.
Það hressti þó skapið, að rann-
sóknarmennirnir fundu fáein fingra-
för, nokkra efnisþræði og blóð úr
smáskeinu, og þeir gátu auðveldlega
slegið því föstu, að Edward Hel-
mann hefði skilið þetta eftir í brynj-
unni.
Lögregluforinginn minntist ekk-
ert meira á spurningu Joe. Með
sönnunargögnin í höndunum gekk
hann til atlögu við Helmann, og játn-
ingin var ekki lengi að koma. Ástæð-
an hafði verið peningar og morð
hafði eiginlega ekki verið ætlun
Helmanns. Hann ætlaði aðeins með
valdi að komast yfir nokkra papp-
ira, sem gætu orðið honum hættu-
iegir, sagði hann.
Colmann kinkaði kolli. — Þannig
gengur það oft, þegar fólk er
ástriðufullt, það sýður út úr. Maður
gengur iengra en maður ætlaði sér.
Hugmyndin með brynjuna var stór-
sniðug. Mér þætti gaman að vita,
hvað lengi við hefðum rannsakað
málið, án þess að finna lausnina, ef
garðyrkjumaðurinn hefði ekki ver-
ið hugsunarlaus dýravinur. ★
— Geturðu ekki fundið upp aðra
- leið til að hittaat, Jóní
j
.
.
j
^6'%v v Jv,4
Hn
sófasettið
OMDVEGI
Laugavegi 133
Símar 14707 - 24277
VUCAN 39