Fréttablaðið - 12.12.2009, Qupperneq 4
4 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
SJÁLFSÆVISAGA
SÍBROTAMANNS
Einstæð frásögn úr
kimum samfélagsins.
Sigurður G. Tómasson,–
útvarpsmaður
Bók sem hlýtur að
vekja áhuga allra.
inar Már Guðmundsson, E
rithöfundur
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Við erum að ýja að því að
menn hafi ekki gætt sín
sem skyldi.
SVEINN ARASON
RÍKISENDURSKOÐANDI
MENNINGARMÁL Göngustígurinn
milli Skólabrúar og Austurstræt-
is á hér eftir að heita Jörundar-
stígur.
„Er tillagan gerð með vísan
til þess að í ár eru 200 ár liðin
frá valdatöku danska ævintýra-
mannsins Jörgens Jörgenssonar á
Íslandi og nú er hafin endurbygg-
ing Austurstrætis 22 í uppruna-
legri mynd,“ segir í greinargerð
sem lögð var fyrir borgarráð.
Stjórnarsetur Jörgens Jörgens-
sonar var áður í húsinu sem varð
Austurstræti 22. „Þykir nafna-
nefnd löngu tímabært að Íslend-
ingar minnist Jörgens Jörgens-
sonar með öðru en spéi og skopi
og noti nafn hans sér frekar til
framdráttar í menningartengdri
ferðaþjónustu.“ - gar
Heiðra hundadagakonung:
Jörundarstígur
samþykktur
JÖRUNDARSTÍGUR Söguslóðir hunda-
dagskonungs verða við hann kenndar.
FÓLK Jólalest Coca-Cola mun keyra
um höfuðborgarsvæðið í dag.
Jólalestin samanstendur af
fimm trukkum sem eru hlaðnir
rúmlega tveggja kílómetra löng-
um ljósaseríum og hljóðkerfi.
Lestin mun aka um svæðið og
spila jólalög frá klukkan fjög-
ur í dag og fram til klukkan átta
í kvöld. Komið verður víða við á
höfuðborgarsvæðinu. Lestin verð-
ur á ferð um bæði Laugaveg og
Smáralind á milli klukkan 17 og 18
í dag. - þeb
Keyrt um höfuðborgina:
Jólalest Coca-
Cola fer af stað
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
4°
2°
3°
7°
3°
-1°
2°
2°
23°
7°
15°
5°
25°
3°
5°
12°
2°
Á MORGUN
3-8 m/s.
MÁNUDAGUR
Fremur hæg SA-átt V-til
annars hæg breytileg.
10
10
8
6
8 6
8
8
9
8
13
5
8
7
7
7
7
4
10
65
4
9
9
5 6
7
8
8
7 5
6
ÓVENJU HLÝTT
UM ALLT LAND
Regnhlífi n mun
koma að góðum
notum í dag því
það verður talsverð
rigning sunnan og
vestanlands og yfi r-
leitt fremur hægur
vindur að minnsta
kosti fyrri partinn.
Veðrið á morgun
verður upplagt fyrir
hvers kyns útivist
eða miðbæjarrölt.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
SPURNING DAGSINS
LÖGREGLUMÁL Engan sakaði þegar
strætisvagn lenti utan vegar í
miklu hvassviðri á Kjalarnesi í
gærmorgun. Vagninn var á leið
frá Akranesi þegar atvikið varð.
Kona sem ók strætisvagninum
er sögð hafa brugðist hárrétt við
þegar hún reyndi ekki að streit-
ast á móti snarpri vindhviðu held-
ur stýrði bílnum út af veginum.
Vagninn stöðvaðist í mýri tugum
metra frá veginum og var annar
bíll sendur til að sækja ökumann-
inn og sex farþega sem í bílnum
voru.
Unnið var að því í gær að losa
strætisvagninn, sem er ekki tal-
inn mjög mikið skemmdur. - þeb
Hvassviðri á Kjalarnesi:
Strætisvagn
lenti utan vegar
Rangt var farið með föðurnafn
Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi
hæstaréttardómara, í frétt í blaðinu
í gær.
Ranghermt var í frétt á fimmtudag að
ekki væru lengur framleiddar möppur
í Múlalundi. Framleiðslan er í fullum
gangi og stendur sem hæst um þess-
ar mundir.
LEIÐRÉTTINGAR
Í frétt um leikskólamál í gær komu
fram rangar tölur um fyrirhugaða
hagræðingu á leikskólasviði. Hið
rétta er að hagrætt verður á sviðinu
um 4,1% og 1,85% á leikskólunum
sjálfum.
FJÁRMÁL Draga hefði mátt úr því
tjóni sem Seðlabankinn (SÍ) og rík-
issjóður urðu fyrir við fall bank-
anna í október ef Seðlabankinn
hefði brugðist fyrr við vafasöm-
um aðferðum bankanna við að afla
sér lausafjár. Tap bankans nam 75
milljörðum en ríkissjóður yfirtók
270 milljarða til viðbótar. Lang-
tímaskuldbindingar ríkissjóðs tvö-
földuðust á árinu 2008, sem skýr-
ist að stórum hluta af yfirtöku á
veðlánum Seðlabankans.
Þetta kemur fram í skýrslu Rík-
isendurskoðunar um endurskoðun
ríkisreiknings fyrir árið 2008. Þar
segir að þegar hafi verið afskrif-
aðir 175 milljarðar og af þeim 270
milljörðum sem ríkið yfirtók séu
trygg veð á bak við 51 milljarð.
Tapið í heild gæti numið 400 millj-
örðum þegar upp er staðið.
Þetta gríðarlega tap kom til
vegna ótryggðra veðlána bank-
ans til fjármálafyrirtækja. Fyrir
liggur að hinir föllnu bankar öfl-
uðu sér lausafjár meðal annars
með því að taka lán hjá minni
fjármálafyrirtækjum sem aftur
fengu lán hjá Seðlabankanum
gegn ótryggðum bréfum: Tapið
er til komið vegna þessara við-
skipta eða „leiks“ fjármálafyrir-
tækjanna eins og það er kallað í
skýrslunni.
Sveinn Arason ríkisendur-
skoðandi skýrir þetta orðalag
með þeim hætti að eftir því sem
harðnaði á dalnum hjá stóru bönk-
unum þrem byrjuðu þeir að leita
sífellt meira eftir fyrirgreiðslu
hjá SÍ um lausafé. Bankinn lán-
aði þeim á meðan þeir gátu lagt
fram veð. „Bankarnir gáfu út svo-
kölluð bankabréf, aðrir kalla þetta
ástarbréf, til að nota sem veð við
lántöku hjá minni fjármálastofn-
unum. Þessar stofnanir fengu svo
lán frá SÍ með bankabréfin sem
veð. Þetta er þessi leikur sem við
köllum svo. Við erum að ýja að því
að menn hafi ekki gætt sín sem
skyldi.“ Sveinn segir að grundvall-
arspurningin sé af hverju reglun-
um hafi ekki verið breytt fyrr
eftir að SÍ vissi að farið var fram-
hjá hefðbundnum leiðum til öflun-
ar lausafjár.
Settar voru skorður við þess-
ari leið bankanna í ágúst þegar
Seðlabankinn herti kröfur sínar
um veðtryggingar. Í skýrslunni
kemur einnig fram að þegar regl-
urnar voru hertar mátti finna þess
dæmi að á bak við meirihluta eða
jafnvel öll lán til vissra fjármála-
fyrirtækja voru ótryggð bréf.
svavar@frettabladid.is
Seðlabankinn brást
of seint við lánaleik
Ríkisendurskoðun kallar aðferðir föllnu bankanna við að afla sér lausafjár
„leik“. Gjaldþrot Seðlabankans kostaði þjóðarbúið 345 milljarða. Draga hefði
mátt úr tjóninu ef bankinn hefði gert viðeigandi ráðstafanir í tíma.
YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Í HRUNINU Bankastjórar Seðlabankans Ingimundur
Friðriksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson ásamt yfirhagfræðingi bankans Arn-
óri Sighvatssyni, sem nú er aðstoðarseðlabankastjóri. Ríkisendurskoðun telur ýmsum
spurningum ósvarað um stjórnsýslu bankans og vísar þeim til Rannsóknarnefndar
Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
MENNING Tónlistar- og ráðstefnu-
húsið við Hafnarbakkann hefur
fengið nafnið Harpa. Þetta var
gert opinbert við hátíðlega athöfn
í húsinu síðdegis í gær.
Efnt var til samkeppni um nafn
á húsið í febrúar í fyrra og bárust
alls 4.166 tillögur. Þar af stungu 54
upp á nafninu Hörpu.
Sérstök valnefnd fór yfir tillög-
urnar og raðaði í fimm sæti þeim
tillögum sem best þóttu henta hús-
inu. Krafa var um að nafnið væri
íslenskt, en jafnframt að hægt
væri að bera það fram á flestum
tungumálum.
Listinn með útvöldu nöfnunum
fimm var síðan sendur á fulltrúa
eigenda hússins, Katrínu Jakobs-
dóttur menntamálaráðherra og
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
borgarstjóra, sem tóku endanlega
ákvörðun um nafngiftina.
Ekki verður gert opinbert hvaða
nöfn urðu efst á blaði, en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
var það nafnið Kristallinn sem
háði harðasta baráttu við sigur-
nafnið.
Ekki stendur til að merkja húsið
með nafni að utan.
Í tilefni nafngiftarinnar spil-
aði Stórsveit Samúels Jóns Samú-
elssonar fyrir gesti auk þess sem
boðið var upp á kakó og kleinur.
- sh
„Kristallinn“ laut í lægra haldi í samkeppni um nafnið á tónlistarhúsinu:
Tónlistarhúsið heitir Harpa
HARPA SKÍRÐ Það var Harpa Karen
Antonsdóttir, tíu ára tónlistarnemi í
Reykjavík, sem gaf húsinu nafnið í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur sak-
fellt þrjá menn fyrir líkams-
árás og staðfest þar með dóm
héraðsdóms. Þeir veittust sam-
eiginlega harkalega að manni á
Selfossi og slógu hann ítrekað í
höfuð og andlit þannig að hann
féll í jörðina þar sem þeir börðu
og spörkuðu í hann, meðal ann-
ars í höfuð hans. Fórnarlamb-
ið nefbrotnaði og hlaut ýmis
meiðsli.
Sá er mest hafði sig í frammi
við árásina var dæmdur í átta
mánaða fangelsi, annar í fjög-
urra mánaða skilorðsbundið
fangelsi og hinn þriðji í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Árásarmennirnir skulu greiða
fórnarlambinu 814.831 krónu í
skaðabætur. - jss
Hæstiréttur:
Þrír árásar-
menn dæmdir
Skallaði mann í andlitið
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur
verið ákærður fyrir að ráðast á annan
mann og skalla hann í andlitið. Fórn-
arlambið hlaut nokkra áverka og gerir
skaðabótakröfu að upphæð ríflega
205 þúsund krónur.
DÓMSTÓLAR
GENGIÐ 11.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,5121
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,86 124,46
201,83 202,81
182,77 183,79
24,556 24,700
21,621 21,749
17,509 17,611
1,3919 1,4001
196,98 198,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR