Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 8
8 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Rúmlega 33 þús-
und Íslendingar höfðu í gær
skráð nöfn sín á áskorun til for-
seta Íslands um að synja Icesave-
lögum staðfestingar á vef Ind-
efence-hópsins.
Fjöldi þeirra sem undirritað
hafa áskorun Indefence-hóps-
ins er fyrir nokkru kominn yfir
fjölda þeirra sem skoruðu á for-
setann að synja fjölmiðlalögum
ríkisstjórnarinnar staðfestingar
sumarið 2004. Þá skoruðu 31.752
Íslendingar á forsetann, sem í
kjölfarið synjaði lögunum stað-
festingar með tilvísun í gjá milli
þingvilja og þjóðarvilja í málinu.
Jóhannes Þ. Skúlason, meðlim-
ur Indefence, segist mjög ánægð-
ur með þann mikla fjölda sem
skrifað hafi undir áskorunina. Þó
verði að taka tillit til þess að eftir
sé að keyra listann saman við
þjóðskrá. Það verði ekki gert fyrr
en Alþingi hafi afgreitt Icesave-
frumvarpið.
Ef marka má stikkprufur sem
gerðar hafa verið eru fáar undir-
skriftir rangar, og yfirgnæfandi
meirihluti er frá fólki á kosninga-
aldri, segir Jóhannes. Augljóslega
röngum undirskriftum sé eytt út
daglega.
Samkvæmt nýrri könnun MMR
fyrir Viðskiptablaðið vilja 69,2
prósent þeirra sem taka afstöðu
að forsetinn synji lögunum stað-
festingar og vísi þeim til þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Alls vilja 30,8
prósent að hann staðfesti lögin.
Svarendur í könnuninni voru 924
á aldrinum 18 til 67 ára, valdir
af handahófi úr hópi álitsgjafa
MMR. - bj
Rúmlega 69 prósent vilja að forseti Íslands synji Icesave-lögum staðfestingar samkvæmt könnun MMR:
Rúmlega 33 þúsund skora á forsetann
Áskorun á forseta
Telur þú að forseti Íslands eigi að synja
nýjum Icesave-lögum staðfestingar og
vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu?
Já
69,2%
Nei
30,8%
HEIMILD: KÖNNUN MMR FYRIR VIÐSKIPTABLAÐIÐ
· Stór snertiskjár
· 5MP myndavél
· Tónlistaspilari
· Spilar Divx kvikmyndir
· Styður 3G háhraðanet
Þinn fyrsti LG
Glæsilegur farsími
með snertiskjá
Skíðaferðir
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nánari upplýsingar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Verð á mann í tvíbýli
199.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum og gisting á 3* Hotel Felsenhof
ásamt morgunverði og þríréttuðum
kvöldverði.
Verð á mann í tvíbýli
145.500 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum og gisting á 3* Hotel
Alpenrose ásamt hálfu fæði.
Montafon
St. Gallenkirch
6.–13. febrúar
Verð á mann í tvíbýli
129.800 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum og gisting á Jufa-gistihúsinu
ásamt hálfu fæði.
Montafon
Bartholomaberg
16.–23. janúar / 20.–27. febrúar
Lech
6.–13. febrúar
NÝTT!
NÝTT!
Skíðaparadísin
Austurríki
1. Hver var valin kona ársins af
tímaritinu Nýju lífi?
2. Hvaða litlu karlar fagna nú
30 ára afmæli sínu á Íslandi?
3. Hvað heitir Íslendingurinn
sem skrifaði undir samning við
Liverpool í vikunni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 102
STJÓRNMÁL „Það kemur ekki á
óvart að þau skuli ekki hafa feng-
ist til verksins. Það mun enginn
fást til að vinna svo mikilvægt og
flókið lögfræðiálit á þeim stutta
tíma sem meirihlutinn hefur
ákveðið.“
Þetta segir Höskuldur Þór-
hallsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins, um höfnun Guðrún-
ar Erlendsdóttur og Péturs Kr.
Hafstein, fyrrverandi hæstarétt-
ardómara, á málaleitan Alþingis
um að leggja mat á hvort Icesave-
frumvarpið standist stjórnar-
skrá.
Höskuldur segir Framsókn-
arflokkinn hafa viljað fá þau til
verksins þar sem þau hafi ekki
tjáð sig opinber-
lega um álita-
efnið. Þeir sem
það hafi gert
séu vanhæfir.
Framsóknar-
menn vilja að
stofnunin Cent-
er for Europ-
ean Studies í
Brussel leggi
mat á sum af
efnahagslegum álitamálum Ice-
save-málsins. Forstöðumaður
hennar er Daniel Gros, fulltrúi
flokksins í bankaráði Seðlabank-
ans. Gros varaði við samþykkt
Icesave í Morgunblaðinu í gær.
Spurður hvort þetta samrýmdist
kröfu framsóknarmanna um hæfi
segir Höskuldur það ekki snúast
um persónur heldur stofnanir.
„Við treystum þessari stofnun,
eins og við treystum hagfræði-
stofnun og lagastofnun Háskól-
ans, þó starfsmenn þeirra hafi
tjáð sig,“ segir hann.
Höskuldur ætlun meirihlutans
að taka Icesave-málið út úr nefnd
um miðja næstu viku. Það sé
óraunhæft og þar með brot á sam-
komulagi meiri- og minnihlutans
um vandaða málsmeðferð. Útilok-
að sé að ljúka málinu fyrir áramót
nema fólki verði gefinn sanngjarn
frestur til að ljúka þeim álitum
sem þurfa að liggja fyrir.
- bþs
Höskuld Þórhallsson undrar ekki að Guðrún og Pétur vildu ekki veita lögfræðiálit:
Icesave ætlaður alltof skammur tími
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
SKIPULAGSMÁL Sundlaug verður í
miðri innhöfninni, á Ægisgarði,
ef ráðist verður í framkvæmdir
eftir verðlaunatillögu um skipu-
lag Gömlu hafnarinnar og Örfir-
iseyjar. Skosk arkitektastofa, Gra-
eme Massie, bar sigur úr býtum í
keppninni og fékk í sinn hlut 7,5
milljónir króna.
Athygli vekur að arkitektastofan
er sú sama og sigraði hugmynda-
samkeppni um skipulag Vatnsmýr-
arinnar og um skipulag miðbæjar-
ins á Akureyri.
Tvær tillögur deildu öðru og
þriðja sætinu, annars vegar frá
arkitektastofunni SK arkitektum.
ehf.
Vinningstillagan gerir einnig
ráð fyrir að göng undir hafnar-
mynnið tengi miðbæinn og höfn-
ina, þjónustuhúsi fyrir ferðafólk
og hóteli á nýjum stað í miðbæn-
um, austan Tónlistar- og ráð-
stefnuhússins og að byggður verði
viðlegukantur fyrir skemmta-
ferðaskip. Slippurinn og olíu-
birgðastöðin í Örfirisey verði á
sínum stað.
Bæði var keppt í flokki hönn-
uða og fagfólks, sem þeir skosku
unnu, og eins í opnum flokki þar
sem engin skilyrði voru sett fyrir
þátttöku. Í þeim flokki fengu
nokkrar hugmyndir verðlaun,
meðal annars hugmynd um að
skreyta olíutankana í Örfirisey
með grafflistaverkum, setja á fót
fisk- og kjötmarkað undir þaki á
Miðbakka og að koma upp leikvelli
með sjóræningjaskipi.
Allar tillögurnar verða til sýnis
í Víkinni sjóminjasafni á Granda-
garði til 20. desember.
stigur@frettabladid.is
Skotarnir unnu enn
eina samkeppnina
Skoska arkitektastofan Graeme Massie vann hönnunarsamkeppni um skipulag
Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar. Stofan vann einnig keppni um Vatnsmýri
og miðbæ Akureyrar. Vinningstillagan gerir ráð fyrir sundlaug á Ægisgarði.
VINNINGSTILLAGAN Verði tillagan að veruleika, eins og borgaryfirvöld stefna að, er ljóst að ásýnd Gömlu hafnarinnar mun breyt-
ast töluvert.
VEISTU SVARIÐ?