Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 12
12 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Þetta málþing er
hugsað fyrir alla sem hafa áhuga
á að átta sig á málum sem tengj-
ast væntanlegu háskólasjúkrahúsi,
staðsetningu og byggingu,“ segir
Gestur Ólafsson, einn aðstand-
enda málþingsins, Nýr Landspítali
– hvar, hvernig og fyrir hverja.
Gestur segir að mikil viðbrögð
sem hann og Árni Gunnarsson,
stjórnarmaður í framkvæmda-
nefnd um byggingu nýs Landspít-
ala - háskólasjúkrahúss, hafi fengið
við aðsendri grein í Morgunblaðinu
hafi sannfært þá um að þörfin fyrir
málþing væri til staðar. Í greininni
er meðal annars bent á að ódýrara
væri að reisa nýtt sjúkrahús austar
í borginni en á reitnum sem nú er
um rætt, við Hringbrautina. Gest-
ur gagnrýnir að ljúka eigi hönnun
hússins áður en lokið hefur verið
við skipulag svæðisins og bendir á
að alls ekki ríki einhugur um stað-
setningu sjúkrahússins.
Á málþinginu taka til máls ein-
staklingar frá ýmsum geirum
sem tengjast byggingu þess. Má
þar nefna Sigurð Guðmundsson,
forseta Heilbrigðisvísindasviðs
HÍ, sem ræða mun fyrir hvern og
hverja spítalinn er, Sigríði Kristj-
ánsdóttur skipulagsfræðing sem
ræða mun staðsetningu nýja spítal-
ans og Magnús Skúlason, formann
Íbúasamtaka miðborgarinnar, sem
mun ræða samspilið við nágrenni
spítalans. Málþingið hefst klukkan
10 á laugardag og því lýkur klukk-
an 15. Það er haldið í húsi Íslenskr-
ar erfðagreiningar. Aðgangur er
ókeypis. - sbt
Málþing fyrir alla er áhuga hafa á málefnum nýs Landspítala-háskólasjúkrahúss:
Ekki einhugur um staðsetninguna
LANDSPÍTALINN VIÐ HRINGBRAUT
Staðsetning nýrrar byggingar verður til
umræðu á málþingi á morgun.
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með til leigu tiltekin rými í
verbúðum við Grandagarð í Reykjavík.
Í skipulagi svæðisins er gert ráð fyrir verslun og þjónustu á
lóðum verbúðanna og Faxaflóahafnir sf. gera ráð fyrir því að í
leigurýmunum verði starfsemi sem dragi að fólk og stuðli að
fjölbreyttu mannlífi við Gömlu höfnina.
Örfirisey var í eina tíð þekkt aðsetur kaupmanna og hefur á
seinni árum eflst mjög á nýjan leik sem vettvangur verslunar,
viðskipta og þjónustu. Þarna er líka og verður miðstöð blómlegs
sjávarútvegs í höfuðborginni og merkilega menningarstarfsemi er
þar líka að finna.
Húsnæðið verður leigt í því ástandi sem það er. Leigjendum
er ætlað að annast innréttingu húsnæðisins að fengnu
samþykki Faxaflóahafna sf. og viðeigandi yfirvalda. Væntanlegir
leigusamningar verða án tímamarka en með gagnkvæmum sex
mánaða uppsagnarfresti.
Leigugjald verður 550 krónur +vsk. fyrir hvern fermetra á mánuði.
Rýmið sem leigt verður út:
randagarður 13: 35 fermetrar.
Grandagarður 15: 139 fermetrar.
Grandagarður 17: 69 fermetrar.
Grandagarður 19: 104 fermetrar.
Grandagarður 21: 104 fermetrar.
Grandagarður 25: 104 fermetrar.
Grandagarður 29: 104 fermetrar.
Grandagarður 35: 104 fermetrar.
Umsóknum skal skilað til hafnarstjóra Faxaflóahafna sf.
fyrir mánudaginn 11. janúar 2010 og skal þar jafnframt gerð
skilmerkileg grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi eða rekstri í
viðkomandi verbúðarrými.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Laxdal, forstöðumaður
rekstrardeildar Faxaflóahafna, í síma 525 8900.
Verbúðir við Grandagarð
Tækifæri til athafna
í Örfirisey
A
T
H
Y
G
L
I
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
Ein gjöf sem
hentar öllum
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að
gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
n
n
),
k
t.
4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
89
1
FÉLAGSMÁL Alþýðusamband
Íslands afhenti á dögunum jóla-
aðstoð Rauða krossins hálfa millj-
ón króna í styrk.
Það var Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, sem afhenti Kristjáni
Sturlusyni, framkvæmdastjóra
Rauða krossins, styrkinn. Jólaút-
hlutun Rauða krossins fer fram í
samstarfi við Mæðrastyrksnefnd,
Hjálparstarf kirkjunnar og fleiri
aðila. Úthlutun fer fram um allt
land og meðal þess sem er úthlut-
að er matur og fatnaður. - þeb
Alþýðusamband Íslands:
Styrkti aðstoð
Rauða krossins
Skemmdarverk unnin á húsi
Rauðu lakki var skvett á hús
Steingríms Wernerssonar í Fossvogi
aðfaranótt föstudags. Í pósti þar sem
tilkynnt er um verkið er tekið fram
að á næstunni eigi að gera slíkt hið
sama við hús Bjarna Benediktssonar
og Karls Wernerssonar.
LÖGREGLUFRÉTT
STJÓRNSÝSLA Lúðvík Geirsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, segir að þrátt
fyrir að nægum fjölda undirskrifta
hafi verið safnað sé ekki hægt að
efna til nýrrar íbúakosningar um
stækkun álversins í Straumsvík
vafningalaust.
„Þetta er ekki ákvörðun sem er
bara á milli bæjarins og íbúanna
heldur er þetta mál sem snýr að
skipulagi þriðja aðila – sem er fyrir-
tækið Rio Tinto. Næsta skrefið er
að taka upp viðræður við álverið
um skipulagið,“ segir Lúðvík.
Eins og kunnugt er felldu Hafn-
firðingar naumlega í íbúakosningu
deiliskipulagstillögu sem fól í sér
stækkun álversins. Stuðningsmenn
stækkunar söfnuðu undirskriftum
til að fá kosninguna endurtekna og
fyrir liggur undirskriftalisti sem
uppfyllir viðmið þar að lútandi í
samþykktum bæjarins. En Lúðvík
segir að áður ný kosning geti farið
fram þurfi að fá á hreint hvernig
álverið vilji haga skipulagsmálun-
um. Skipulagsstjóri bæjarins hafi
þegar rætt við fulltrúa álversins.
„Hann gerði okkur grein fyrir
því í bæjarráði um daginn og í
framhaldi af því var honum falið
að ganga frá formlegum spurning-
um sem snúa að þessu máli þannig
að þá komi formleg og efnisleg svör
við þessum atriðum sem liggja þá
fyrir til grundvallar þegar næstu
ákvarðanir verða teknar um vænt-
anlega kosningu og tímasetningu
á henni. Það þarf að liggja fyrir
alveg á hreinu á hvaða forsendum
það er lagt fyrir og kynnt sem íbú-
arnir eiga þá að kjósa um,“ segir
bæjarstjórinn.
Ólafur Teitur Guðnason, upplýs-
ingafulltrúi Alcan á Íslandi, segist
hins vegar telja að varðandi íbúa-
kosninguna sé boltinn meira hjá
bænum en álverinu. Í raun hafi
álverið enn ekki fengið formlegt
svar við ósk sinni um breytinguna
á deiliskipulaginu sem kosið var
um vorið 2007.
„Við hittumst og fórum yfir stöð-
una með skipulagsfulltrúanum og
það eru engar frekari spurningar
frá þeim, held ég. Við sögðum við
þá eins og við höfum sagt við alla
að við getum í sjálfu sér ekki svar-
að því hér og nú hvort að af þessu
geti orðið. Verkefnið er engu að
síður spennandi. Ein af forsend-
unum fyrir því að taka það aftur
til alvarlegrar skoðunar er að það
liggi þá fyrir að það sé einhver
möguleiki,“ segir upplýsingafull-
trúi Alcan. gar@frettabladid.is
Bíða svara frá Alcan
fyrir álverskosningu
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir álverið í Straumsvík þurfa að svara ýmsum
spurningum formlega áður en efnt verði til nýrrar íbúakosningar um stækkun
álversins. Upplýsingafulltrúi Alcan átti hins vegar ekki von á fleiri spurningum.
ÓLAFUR TEITUR
GUÐNASON
LÚÐVÍK
GEIRSSON
STÆKKUNIN Kosið var um það vorið 2007 hvort álverið í Straumsvík fengi að stækka athafnasvæði sitt austur fyrir núverandi
Reykjanesbraut eins og sést á þessari mynd, þar sem stækkun álversins hefur verið bætt inn á hægra megin. MYND/ARKÍS