Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 24
12. desember 2009 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Sólveig Anna Jónsdóttir skrif-
ar um loftslagsráðstefnuna í
Kaupmannahöfn
Í dag, 12. desember, klukkan 17.30, mun Íslandsdeild Attac-
samtakanna, í samvinnu við Nátt-
úruverndarsamtök Íslands og net-
samfélagið Avaaz.org, standa fyrir
kertaljósavöku á Lækjartorgi, í
Reykjavík. Tilefnið er loftlags-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna í
Kaupmannahöfn þar sem þjóðar-
leiðtogar heimsins munu freista
þess að komast að samkomulagi
um aðgerðir til að stemma stigu
við loftslagsbreytingum af manna-
völdum.
Sams konar kertaljósavökur
hafa verið skipulagðar um allan
heim, og hafa félagasamtök og ein-
staklingar í meira en 130 löndum
hlýtt kallinu. Krafa okkar er skýr:
Sanngjarnt, metnaðarfullt, laga-
lega bindandi samkomulag verð-
ur að nást, veröldin krefst samn-
ings sem heldur!
Rannsóknir vísindamanna sýna
með óyggjandi hætti að styrkur
gróðurhúsalofttegunda í andrúms-
lofti jarðar hefur aukist frá upp-
hafi iðnbyltingarinnar á átjándu
öld, en þó sérstaklega á undan-
förnum áratugum. Orsök aukn-
ingarinnar eru athafnir okkar
mannanna, brennsla olíu og kola.
Vísindafólk er á einu máli um að
aukinn styrkur gróðurhúsaloft-
tegunda í andrúmsloftinu leiði til
hlýnunar jarðar. Af síðustu fjórtán
árum hafa enda ellefu verið hin
heitustu síðan mælingar hófust.
Haldi styrkur gróðurhúsaloft-
tegunda í and-
rúmsloftinu
áfram að auk-
ast án þess að
nokkuð sé að
gert mun það
leiða til stór-
kostlegra breyt-
inga á loftslagi
jarðarinnar,
bráðnunar jökla
og íshellu heim-
skautanna og
þar með hækkunar sjávarborðs,
og óafturkræfra breytinga á vist-
kerfi jarðarinnar.
Fátækustu systkin okkar á suð-
urhveli jarðar, sem þola skort og
búa við erfið skilyrði, eru í mikilli
hættu. Vistkerfi margra þróunar-
landa eru nú þegar mjög brothætt.
Í Sahelbeltinu, þar sem Sahara-
eyðimörkin hefur verið að færa sig
stöðugt sunnar, geta jafnvel tiltölu-
lega smávægilegar loftslagsbreyt-
ingar þýtt uppskerubrest, þurrka
og uppblástur. Í löndum Suðaustur-
Asíu hafa loftslagsbreytingar síð-
ustu ára leitt til stóraukinnar tíðni
hitabeltisstorma sem hafa eyðilagt
uppskeru og vatnsból, og á kóral-
eyjum Indlandshafs getur mjög
lítil hækkun sjávarborðs þýtt að
heilu eyjarnar fara á kaf.
Þessi lönd skortir fé til þess að
grípa til aðgerða sem gætu unnið
gegn afleiðingum loftslagbreyt-
inga. Það dylst engum að Vestur-
lönd bera meginábyrgð á aukn-
ingu gróðurhúsalofttegunda í
andrúmslofti jarðar, og það getur
varla dulist nokkurri manneskju
að íbúum hinna ríku Vesturlanda
ber þvi siðferðileg skylda að koma
fátækustu löndum jarðar til hjálp-
ar.
Baráttufólk og sérfræðingar í
loftslagsmálum fullyrða að raun-
verulegur samningur um samdrátt
í útstreymi gróðurhúsaloftteg-
unda verði að innihalda eftirfar-
andi atriði:
a) Sanngirni – Tryggja verður
200 milljarða Bandaríkjadollara
til að fjármagna aðgerðir í fátæk-
um ríkjum til að takast á við afleið-
ingar loftslagsbreytinga.
b) Metnað – Stefnt verði að því
að útblástur koltvísýrings nái
hámarki eigi síðar en árið 2015
og að styrkur hans í andrúms-
loftinu verði þegar fram í sækir
ekki meiri en 350 ppm (er nú 384
ppm).
c) Lagalega bindandi – Samning-
ur verður að binda ríki heims að
þjóðarrétti.
Okkur hefur verið falið að varð-
veita hið einstaka kraftaverk sem
sköpunarverkið er fyrir komandi
kynslóðir, og okkur ber skylda að
axla þá ábyrgð af ánægju og dugn-
aði, því afkomendur okkar eiga
sama rétt á ávöxtum jarðarinnar
og við.
Sjáumst á Lækjartorgi.
Höfundur skrifar fyrir hönd
Íslandsdeildar Attac.
Veröldin vill samning sem heldur
SÓLVEIG ANNA
JÓNSDÓTTIR
Fátækustu systkin okkar á suð-
urhveli jarðar, sem þola skort
og búa við erfið skilyrði, eru í
mikilli hættu. Vistkerfi margra
þróunarlanda eru nú þegar
mjög brothætt.
UMRÆÐAN
Ólafur Elíasson, Jóhannes Þ.
Skúlason og Ragnar F. Ólafs-
son skrifa um Icesave
Í leiðara Fréttablaðsins hinn 12.09.2009 stillir Jón Sigurðs-
son Icesave-málinu þannig upp að
annaðhvort sé gengið að ýtrustu
kröfum Breta og Hollendinga eða
öll okkar viðskipti við Evrópuþjóð-
ir séu sett í uppnám og þá þurfi að
leita nýrra markaða fyrir fram-
leiðsluvörur Íslendinga.
Þær forsendur sem Jón gefur
sér eru afar hæpnar og vilja und-
irritaðir gera við þær alvarlegar
athugasemdir. Eru Íslendingar ekki
búnir, með lögum um ríkisábyrgð
vegna Icesave frá því í sumar, að
skuldbinda sig til að greiða bætur
vegna innstæðutrygginganna?
Var þetta ekki gert þrátt fyrir að
enginn dómur hafi fallið í málinu
og Íslendingar telji sig ekki laga-
lega skuldbundna til að greiða upp-
hæðina? Hefur ekki fjármálaráð-
herra Hollands sjálfur viðurkennt
að galli hafi verið í innlánstrygg-
ingakerfi ESB og það hafi ekki
verið hannað til að ráða við heild-
arhrun bankakerfis eins og átti sér
stað á Íslandi? Á hvaða forsendum
ætla Bretar og Hollendingar þá að
ná fram samstöðu um viðskipta-
þvinganir gagnvart Íslandi? Af því
að ekki hafi verið gengið að þeirra
ýtrustu kröfum, sem þeir vildu þó
ekki láta dómstóla fjalla um? Það er
einfaldlega óhugsandi að Evrópu-
sambandið myndi beita viðskipta-
þvingunum gegn Íslandi á þess-
um forsendum. En þess má geta
að ESB hefur ekki einu sinni beitt
viðskiptaþvingunum gegn Serbíu,
þrátt fyrir að ríkisstjórn þar hafi
staðið á bak við skelfilegar þjóð-
ernishreinsanir. Sú hræðsla við að
standa vörð um hagsmuni þjóðar-
innar, sem okkur birtist í málflutn-
ingi Jóns Sigurðssonar, er okkur
algerlega óskiljanleg.
Erlendar skuldir í röngum
samanburði
Jón fjallar í leiðara sínum um
skuldastöðu þjóðarinnar og ríkis-
ins á afar yfirborðskenndan hátt.
Það er fráleitt að bera saman heild-
ar erlenda skuldastöðu Íslands
við Bretland og Holland. Mun
nær hefði verið fyrir Jón að bera
saman stöðu Íslands við lönd með
litla eigin gjaldmiðla og lítil banka-
kerfi eins og Ísland er nú. Öll slík
lönd eru með skuldahlutfall undir
130%, sé miðað við heildarskuld-
ir í erlendri mynt sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu. Það er
nokkuð langt undir 310% skulda-
hlutfallinu sem IMF hefur áætlað
fyrir Ísland. Jón kýs að líta fram
hjá þessu og ber þess í stað saman
epli og appelsínur.
Nettóskuldir – alvarleg áhætta
Jón dregur einnig úr alvarleika
stöðunnar með því að beina athygli
lesenda að nettóskuldastöðu þjóðar-
innar. Þetta er sama brella og útrás-
arvíkingarnir notuðu. Rétt fyrir
hrun voru allir bankarnir og eign-
arhaldsfyrirtækin skráð með afar
hátt eigið fé. Síðan hrundu eignirnar
í verði en skuldirnar stóðu eftir. Það
er gríðarleg áhætta fyrir Íslendinga
að vera með hátt skuldahlutfall þrátt
fyrir háa eignastöðu. Afleiðingarn-
ar annars eignafalls gætu orðið mun
verri en við fallið fyrir ári síðan,
því í þetta sinn er öll íslenska þjóð-
in veðsett upp fyrir haus.
Í leiðara sínum fullyrðir Jón að
hagtölur sýni að þjóðin ráði við
greiðslurnar vegna Icesave. Hvað
hefur hann fyrir sér í þessu? Álit
Seðlabankans, sem Hagfræðistofn-
un Háskóla Íslands hefur gagnrýnt
harðlega, m.a. fyrir skort á raun-
hæfum forsendum? Málsmetandi
hagfræðingar, s.s. Jón Daníelsson
og Gunnar Tómasson, telja íslensku
þjóðina alls ekki geta staðið undir
þessum greiðslum og hafa rökstutt
það ítarlega. Engin þeirra áætlana
sem gefnar hafa verið út gera ráð
fyrir því að Íslendingar geti hald-
ið lífsgæðum á svipuðu róli og
nágrannaþjóðir okkar. Allar gera
ráð fyrir svo miklum samdrætti
í innflutningi
að gera má ráð
fyrir að langvar-
andi skömmt-
un á gjaldeyri
þurfi að koma til.
Hættan er sú að
þessi mikla tak-
mörkun á inn-
flutningi leiði til
fólksflótta. Auk
þessa má benda á
að enginn hefur hingað til sýnt fram
á að Íslendingar geti á næstu árum
bæði staðið undir Icesave-greiðslum
og leyst krónubréfavandann.
Hættum að tala um Icesave sem
sjálfsagða skuld
Niðurstaðan er einföld. Fyrirvar-
ar Alþingis í sumar fólu í sér leið til
að borga Icesave-kröfuna að teknu
tilliti til upphæðar hennar, stærðar
íslenska hagkerfisins og fordæma-
lausra aðstæðna hérlendis vegna
hrunsins. Fyrirvararnir fólu í sér
vilja Íslands til að taka á sig byrð-
ar þrátt fyrir galla í lagaumhverfi
Evrópu, en þó þannig að það leiddi
ekki til greiðsluþrots. Fyrirvararn-
ir höfðu þann skýra tilgang að færa
Icesave-samningana nær hinum svo-
nefndu Brussel viðmiðum. Hægur
vandi er að sannfæra Breta og Hol-
lendinga um þessar staðreyndir,
séu þeir ekki nú þegar sannfærðir.
Fyrsta skrefið er að byrja að kynna
málstað Íslands meðal erlendra
ráðamanna og almennings. Í þeim
málflutningi þarf að hætta að tala
um Icesave sem sjálfsagða skuld
og kynna hana frekar sem fram-
lag Íslands til lausnar á vanda inn-
stæðueigenda og innstæðutrygg-
ingakerfis Evrópusambandsins. Sé
málstaður okkar þannig kynntur af
röggsemi er engin hætta á því að
Evrópusambandið setji viðskipta-
hömlur á Íslendinga. Sérstaklega
yrði það þó sterkt gagnvart Evr-
ópusambandinu ef þjóðin kysi það
í þjóðaratkvæðagreiðslu að taka
á sig Icesave-skuldbindingarnar
gagnvart Hollendingum og Bretum
á grundvelli þeirra sjálfsögðu fyr-
irvara sem Alþingi Íslendinga sam-
einaðist um í sumar.
Ólafur Elíasson er tónlistar-
maður. Jóhannes Þ. Skúlason er
grunnskólakennari. Ragnar F.
Ólafsson er félagssálfræðingur.
Yfirborðskenndur málflutningur
ÓLAFUR
ELÍASSON
JÓHANNES Þ.
SKÚLASON
RAGNAR F.
ÓLAFSSON
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með til leigu tiltekin rými í
verbúðum við Geirsgötu í Reykjavík.
Í skipulagi er gert ráð fyrir verslun og þjónustu á lóðum
verbúðanna og Faxaflóahafnir sf. gera ráð fyrir því að í
leigurýmunum verði starfsemi sem dragi að fólk og stuðli að
fjölbreyttu mannlífi við Suðurbugt.
Þetta er athafnasvæði í hjarta Reykjavíkur, örskotslengd frá
miðborginni; meðal annars viðleguhöfn smábáta og áfangastaður
tugþúsunda ferðamanna á leið í og úr hvalaskoðun á Faxaflóa.
Húsnæðið verður leigt í því ástandi sem það er. Leigjendum
er ætlað að annast innréttingu húsnæðisins að fengnu
samþykki Faxaflóahafna sf. og viðeigandi yfirvalda. Væntanlegir
leigusamningar verða án tímamarka en með gagnkvæmum sex
mánaða uppsagnarfresti.
Leigugjald verður 510 krónur +vsk. fyrir hvern fermetra á mánuði.
Rýmið sem leigt verður út við Geirsgötu:
hæð ferm.
Verbúð nr. 1 báðar hæðir 191
Verbúð nr. 2 báðar hæðir 191
Verbúð nr. 3 efri hæð 83
Verbúð nr. 6 jarðhæð 54
Verbúð nr. 7 jarðhæð 108
Umsóknum skal skilað til hafnarstjóra Faxaflóahafna sf.
fyrir mánudaginn 11. janúar 2010 og skal þar jafnframt gerð
skilmerkileg grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi eða rekstri í
viðkomandi verbúðarrými.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Laxdal, forstöðumaður
rekstrardeildar Faxaflóahafna, í síma 525 8900.
Verbúðir við Geirsgötu
Tækifæri til athafna
í hjarta Reykjavíkur
A
T
H
Y
G
L
I
w
w
w
.h
ir
zl
an
.i
s
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
OMEGA
Veggsamstæður
á tilboði:
79.900,-
Verð áður 104.500,-
mál: b.208 cm; h.190 cm
kirsuber
coffee