Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 56
MENNING 4
700IS Hreindýraland auglýsti í
haust eftir verkum fyrir hátíð-
ina sem haldin verður á Hér-
aði í mars á næsta ári en það
er í fimmta sinn sem hátíðin er
haldin í nafni póstnúmers og
há fættra hreindýra. Mikill fjöldi
umsókna hrúgaðist inn á Krist-
ínu Scheving, upphafsmann og
listrænan stjórnanda hátíðarinn-
ar, í gegnum gáttir vefsins: 642
umsóknir frá 49 löndum. Hefur
áhugi á hátíðinni aldrei verið
meiri. Hefst nú starfinn við að
velja úr. Þrenn verðlaun verða
veitt í mars en hátíðin er nú sett
á dagana 20.-27. mars. Valnefnd-
ina skipa þau Hrafnkell Sig-
urðsson myndlistarmaður, Sirra
Sigrún Sigurjónsdóttir verkefna-
stjóri, Þórunn Eymundardótt-
ir framkvæmdastjóri, Kristín
Scheving, Íris Lind Sævarsdótt-
ir og Þórunn Hjartardóttir, sem
eru hluti af genginu sem stendur
fyrir 700IS.
Staðfestingar eru þegar teknar
að móta dagskrána: Steina Vasulka
Bjarnadóttir, einn af frumkvöðl-
um vídeólistarinnar í heiminum,
verður þar, Max Hattler, Norioka
Okaku og Johnny Chimbo. Fyrir-
lestrar, gjörningar og margt fleira
verður á dagskránni. Í fyrra var
áhersla á innsetningar með vídeói
og komu átta listamenn austur á
Hérað og voru þar við vinnu sína.
Talið er víst að mun fleiri erlendir
gestir sæki hana heim í mars en
meðal efnis er þríhyrningssam-
starf Norðmanna í Vesterålen,
Íslendinga af Austurlandi og Íra
frá Donegal.
Stefnt er að því fullmótuð dag-
skrá verði birt á vef hátíðarinnar
www.700.is í febrúar en einnig má
tengja sig öngum hennar á Face-
book og Twitter.
Hreindýraland 700IS í fimm ár
Þ
au hjónin fluttust upp
í Borgarfjörð þar sem
þau hafa rekið ferða-
mannasetur við Grímsá
á bænum Fossatúni.
Engan undraði að reksturinn var
stór í sniðum og reynt á nýjar
hugmyndir, en öllum var nokkuð
brugðið þegar Steinar sendi frá
sér myndskreytta barnabók fyrir
tveimur árum um tröll og naut til
þess tilstyrks Brians Pilkington.
Nú er önnur bók komin, Tröllaslag-
ur heitir hún, ævintýri fyrir börn
– og fullorðna.
Við hittum Steinar þar sem hann
var að vasast ásamt Brian suður
í Straumi þar sem Sviðsmyndir
hafa aðsetur. Þeir voru að ganga
frá hausnum hér að ofan en hann
verður til skemmtunar gestum
á Jólatorgi á Hljómalindarreitn-
um svokallaða milli Laugavegs og
Hverfisgötu, þar sem Grammið
var í eina tíð og Plötuportið. Tón-
list er alltaf nærri Steinari. Haus-
inn sá arna verður svo fluttur upp
í Borgarfjörð og er hugmyndin
að hann verði upphafið að mynd-
verkum við göngustíg niður með
Grímsá. Hann er fenginn úr sög-
unni af Tröllagleði en meira verð-
ur ekki um það sagt hér. Hann til-
heyrði í eina tíð tröllinu Bölmóði:
„Við höfum tekið frá reit niðri með
ánni og lagt þangað göngustíga. Við
erum eiginlega að gera tilraunir.
Hvernig stenst hann veðrin, vind
og kulda, hvernig þola efnin vet-
urinn?“ segir Steinar. Hausinn er
gerður eftir leirmynd sem Brian
gerði af fígúrunni, skorinn út með
leysigeisla af mótunarmeisturum
hjá fyrirtækinu OK Hull og svo
varinn og farðaður í Sviðsmynd-
um. Steinar hugsar þennan haus
sem viðbót við ferðaþjónustuna,
en sagan gerist eins og sú fyrri á
heimaslóðum hans í Borgarfirð-
inum. Þá eins og nú tengir Stein-
ar tröllasögur sínar við örnefni í
Borgarfirði og býr til ný, rétt eins
og hann hefur gert sér mat úr þjóð-
sögum við sínar tröllasögur. Hann
vonast til að geta fjölgað í trölla-
byggðinni við Grímsá.
Steinar segir sér ósjálfrátt að
tengja menningarþjónustu við
markaðssetningu. Reyndar sé
mikið fjör í menningartengdri
ferðaþjónustu í Borgarfirðinum,
mest fyrir atbeina aðkomumanna
sem þangað hafi flutt. Í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi hafi Kjartan
Ragnarsson og Sigríður Margrét
hreiðrað um sig og margir hugsi
gott til glóðarinnar að brúðumeist-
arinn Bernd Ogrodnik sé sestur að
með fjölskyldu sína í Englendinga-
vík. Ekki vanti hugmyndir á fund-
um í ferðamálasamtökum Borg-
firðinga, enda blasi verkefnin við:
aðgengi að Surtshelli sé slæmt, eins
sé með Glym í Hvalfirðinum, Eld-
borg og Gerðuberg. Steinar hefur
beitt sér fyrir umbótum í vegamál-
um um Uxahryggi svo tengja megi
Þingvelli og Borgarfjörð með mal-
bikuðum vegi sem opinn verði allt
árið. Þær áætlanir eru til og kostar
sú vegagerð 1,5 milljarða en myndi
stórbæta samgöngur um forna leið
milli Suður- og Vesturlands á sex-
tíu kílómetra spotta.
Steinar er staðráðinn í að halda
áfram að skrifa, segir það veita sér
mikið yndi. Oft sé erfitt að finna
tíma en hann sé staðráðinn í að
leita hans og setjast niður. Ekki
skorti hann hugmyndir, málið sé
að finna tímann. Efniviðurinn blasi
við á hinu makalausa sögusvæði
frá Borgarfirði upp á Snæfellsnes.
Persónur úr Tröllagleði eigi von á
framhaldslífi.
Talið berst aftur að tónlist og
hann segist hafa tekið upp á því
að læra á gítar, og sæki tíma niður
í Borgarnes. Sér þyki fró í því að
sitja einn með hljóðfærinu, það sé
hvíld í því að vera einn með sjálf-
um sér og dútla. Einhverjum kann
að þykja það kyndugt að hálfsextug-
ur maður skipti svo um starfssvið
eins og Steinar hefur gert, en hann
er sönnun þess að menn eiga að
gera það sem hugur þeirra heimtar
og vera óhræddir að reyna eitthvað
nýtt, berja saman vísu, setja saman
sögu, slá strengi hörpunnar og reisa
höggmyndagarð fyrir gnauð andi
vind og glaða sumargesti.
TRÖLLAGLEÐI
OG STEINBÖRN
Steinar Berg Ísleifsson ánetjaðist poppinu strax á
skólaárunum og hlaut það hlutskipti að gera menn-
ingarþjónustu að ævistarfi . Fyrst seldi hann plötur
í kjallara Faco á Laugavegi en gaf svo út Sumar á
Sýrlandi með Stuðmönnum sem var upphaf gæfuríks
ferils hans í útgáfu á íslenskri tónlist. Svo venti hann
sínu kvæði í kross.
MENNING PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Brian Pilkington og Steinar Berg standa gleiðir við hausinn af tröllinu Bölmóði sem verður settur niður í Fossatúni eftir jól.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Steina Vasulka verður einn þátttakenda
á 700IS Hreindýralandi í mars á næsta
ári. Hér er hún að störfum á Seyðisfirði á
opnunardegi Listahátíðar 2008.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
VANTAR ÞIG
ORKU OG ÞREK Í
JÓLAHEINGERNINGUNA?
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
heilsuhillum flestra stórmarkaða.
Énaxin bætiefnið hjálpar
þúsundum manna hvern dag að
auka úthald og þrek.
Fáanlegt í mixtúru og töfluformi.
VIRKAR STRAX!
ERT ÞÚ Á LEIÐINNI
Í PRÓF?
Þarftu hjálp við að auka
úthald og skerpa á
einbeitingunni!
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
heilsuhillum flestra stórmarkaða.
Énaxin er mjög áhrifarík jurtaformúla
og er afar vinsælt hjá prófannafólki í
Danmörku. Nú fáanleg á Íslandi í
mixtúru- og töfluformi.
Virkar strax!