Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 64
vín&veisla6
5 RAUÐVÍN
Íslendingar þekkja Spán vel
eftir ótal sólarlandaferðir og
margir tekið ástfóstri bæði
við land og vín. Margir eru
þó ekkert sleipir í spænsk-
unni og þegar panta á vínin
vefst það oft fyrir öðrum en
menntuðum vínunnendum
hvað hugtökin eða orðin á
flöskunum þýða. Hér eru þýdd
nokkur algeng í spænskunni.
barrica = tunna
blanco = hvítt vín
cava = freyðandi vín
crianza = Geymt alls í 24 mán-
uði, a.m.k. sex í tunnu
gran reserva = Geymt alls í 60
mánuði, a.m.k. 24 í tunnu
reserva = Geymt alls í 36 mán-
uði, a.m.k. 12 í tunnu
tinto = rautt vín
viño = vínekra
vino = vín
Þýðing spænskra vína
S P Á N N
La Rioja er sjálfsstjórnar-hérað á Norður-Spáni og höfuðborg þess er Log-
roño. Um er að ræða mikið og
fornt vínekruland og þar er upp-
runi La Rioja vína. Meginlands-
loftslagið í La Rioja hentar vel til
ræktunar og vínviðirnir fá skjól
af Kantabríafjöllum, en á Norð-
ur-Spáni getur orðið mjög vinda-
samt.
Elstu skriflegu heimildir um
vínrækt á þessum slóðum eru
frá 873 eftir Krists burð. Veldi
Rómverja teygði sig yfir Spán á
sínum tíma og voru landskikar í
La Rioja meðal annars notaðir til
að verðlauna stríðshetjur og upp-
gjafahermenn. Má leiða að því
getum að þeir hafi ræktað vín á
löndum sínum, enda þóttu guða-
veigarnar lífsins nauðsyn. Campo
Viejo er víntegund sem á rætur
sínar að rekja til þessarar sögu,
þar sem heitið Campo Viejo (Völl-
ur hinna öldnu) er dregið af stað
í Campus Veteranus (Völlur upp-
gjafahermanna).
Campo Viejo víngerðin er gam-
algróið fyrirtæki sem leggur
mikla áherslu á La Rioja þrúgurn-
ar og var eitt það fyrsta í heimin-
um til að selja Rioja-vín út fyrir
landamæri Spánar. Vínþrúgurn-
ar þrjár sem hafa gefið La Rioja
sem vínhéraði sitt einkennandi
bragð er allar að finna í Campo
Viejo vínunum: Tempranillo-þrúg-
an sem nær fullum þroska nokkr-
um vikum fyrr en aðrar þrúg-
ur á Spáni, Mazuelo-þrúgan sem
gefur vínunum gott sýrujafnvægi
og Graciano-þrúgan sem gefur
Campo Viejo vínunum jafnvægi,
höfugleika og breidd.
Campo Viejo í La Rioja á Norður-Spáni:
Paradísarekrur La Rioja
GRÆNIR AKRAR Í La Rioja-héraðinu er vínviður
algengasta plantan sem ber fyrir augu.
N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
S
/G
E
TT
Y
CAMPO VIEJO CRIANZA
Kryddaður ilmur af dökkum berjum, múskat og vanillu. Eikað og
kryddað vín með kirsuberjum,vanillu og rúsínum. Frábært með Tapas
og ostum. Kr. 1.799.
MARQUEZ
DE ARIENZO RESERVA
Ilmur af þroskuðum ávöxtum og fínlegu kryddi. Frekar flókið vín sem
gefur mikið af sér. Töluverður pipar, negull og fínleg eik. Fullkomið með
villibráð, t.d. rjúpu, gæs eða hreindýri. Kr. 2.399.
CODORNÍU CLASICO
SEMI-SECO
Ávaxtarík angan og mjög opin.
Bragð af epli og ristuðu brauði.
Ferskleiki og gott jafnvægi.
Frábært vín með smáréttum
og sætindum. Hnetur og
þurrkaðir ávextir eru frábærir
með Codorníu Clasico Semi-
Seco. Vinsælt freyðivín í
brúðkaupsveislurnar. Kr.
1.859.
RAIMAT ABADIA
Ilmur af plómum, þurrkuðum
ávöxtum og tóbaki. Bragð af pipar og kakó með margslungnum endi.
Frábær blanda af þremur þrúgum gerir vínið mjög spennandi kost.
Raimat Abadia er vín sem hentar við flest tækifæri. Kr. 1.999.
RAMÓN
ROQUETA RESERVA
Þetta Reserva er blanda af Tempranillo og Cabernet Sauvignon og er
það, eins og reglur segja til um í Katalóníu, geymt á eikartunnum í 12
mánuði. Ferskt og vel gert vín á einstaklega góðu verði sem passar vel
með öllum steikum. Verð í Vínbúðum Kr. 1.590.
RISCAL 1860
TEMPRANILLO
CASTILLA Y LEON
Ilmmikið með
þroskuðum svörtum
berjum, kirsuber og
plóma áberandi
ásamt fínlegri ristaðri
eik. Í munni er
vínið kjötmikið,
langt og mikið
eftirbragð.
Gott með
grilluðu eða
steiktu
rauðu kjöti,
kjúklingi og
mildum
ostum.
Verð:
2.093.
MARQUES DE RISCAL
BLANCO RUEDA
Blómaangan ásamt kryddi
og fennel, ferskt í munni og
pínulítið flókið á skemmti-
legan hátt. Þægilegt og
auðdrekkanlegt að öllu
leyti bæði með mat en
einnig eitt og sér. Mjög
gott með fiski í sósum
sem og hvítu kjöti einn-
ig í sósum (en þó má
sósan ekki vera of
öflug), grilluðu lítið
krydduðu lambi með
gufusoðnu eða grilluðu
grænmeti. Verð:
2.190.
ARDALES TEMPR-
ANILLO CRIANZA
EL BARRICA 2006
Vínið er lífrænt
ræktað og er gler,
korkur og miði úr
endurunnu efni.
Einnig er blekið
vatnsblek.
Kirsuberjarautt.
Meðalfylling,
þurrt, ferskt,
miðlungs tannín.
Dökk og rauð ber,
hýði, léttkryddað,
ungt. Kr. 1.989.
ARDALES ARÉN 2008
Vínið er lífrænt ræktað og er
gler, korkur og miði úr
endurunnu efni. Einnig er
blekið vatnsblek.
Fölsítrónugult. Létt fylling,
þurrt, milt. Blóm, ljós
ávöxtur, appelsínubörk-
ur. Kr. 1.889.
COTO VINTAGE CRIANZA
Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, ferskt, þroskuð tannín. Léttur
berjarauði, lyng, vanilla, eik 1.798 kr
5 HVÍTVÍN
Stílhreinn upptakari
frá þýska fyrir tækinu Blomus
Matt krómað stál, lengd 16 cm
Verð 2.690 kr.
Blomus upptakarasett
Veglegur upptakari fyrir vandláta
Sett með upptakara, hníf og auka gormi
Matt krómað stál
Verð 8.990 kr
Vínfl öskurekki
frá Blomus
Glæsilegur vínfl öskurekki sem tekur 8 fl öskur
Ryðfrítt stál – Stærð 74 cm
Verð 11.900 kr.