Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 67

Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 67
vín&veisla 9 Ólfur Björn Guðmundsson Dominique Plédel Jónsson Ólafur Örn Ólafsson Elísabet Alba Valdimarsdóttir Gunnar Páll Rúnarssson LA CHABLISIENNE CHABLIS PREMIER CRU FOURCHAUME Nefið er ferskt og ilmríkt, litur vínsins er örlítið grænn. Vínið er ferskt í munni, góð sýra, sítróna, létt og keimur af grape. Með þessu gæti hentað humarsalat, skelfiskur, kræklingur og jafnvel koli. Dominique Plédel Jónsson Hér finn ég sítrus og græn epli. Það er ferskt. Gunnar Páll Rúnarsson Nokkuð biturt vín og lokað. Ferskir ávextir, greip, mikið af grænum ávöxtum. Ólafur Björn Guðmundsson Vínið er nokkuð gott og ég mundi kaupa aðra af þessu. Það er í góðum balans og frískandi. Ólafur Örn Ólafsson Hér er mikill sítrus. Þetta vín kallar á sumar, að sitja úti í sólinni. Það er hægt að drekka það eitt og sér. Elísabet Alba Valdimarsdóttir PARES BALTA BLANC DE PACS Nefið er opið. Í munni er hunang, ferskjur og aprikósur. Sýran er minni en í nefi og það er þurrt. Gæti hentað vel með Risotto. Dominique Plédel Jónsson Í nefi eru ferskjur og plómur en fer síðan í sítrus. Það er sætt og hálfþurrt. Gunnar Páll Rúnarsson Hérna eru apríkósur, sýra, brennt hunang. Flott vín. Ólafur Björn Guðmundsson Býður upp á mikið í nefinu en nær ekki alveg að uppfylla öll fyrirheitin sem það gefur. Ég fæ minningar af old spice þegar afi kom á jólunum og smellti einum á kinnina. Ólafur Örn Ólafsson Nú erum við komin í sætt vín. Ég finn villiblóm og cassis. Mætti vera meiri balans. Það mætti borða risotto með þessu út af seltunni í því, til aðvega upp á móti fitunni í víninu. Elísabet Alba Valdimarsdóttir LA SEREINE CHABLIS Þetta vín er opið og feimið og andar frekar stutt. Ég finn eik, vanillu, fitu. Vínið stoppar frekar stutt við. Dominique Plédel Jónsson Þetta vín er létteikað og alveg dautt. Gunnar Páll Rúnarsson Ég finn smá alkóhól og eik. Frekar lokað vín. Ólafur Björn Guðmundsson Í byrjun er það sprittað svo best er að láta það standa. Þetta vín er frek- ar stamt og endasleppt og ekki mjög spennandi Ólafur Örn Ólafsson Það er fita þarna á bakvið og svo kemur sýran inn en það fylgir ekkert á eftir. Því miður. Þetta er svona „fílgúddgaur“. Elísabet Alba Valdimarsdóttir CAPE MENTELLE SAUVIGNON BLANC SEMILLON Í nefi er vínið opið, ilmur af sítrónu- grasi og strokleðri, það er grösugt og eik á eftir. Í munni er grófur ávöxtur, krydd og jurtir, góð sýra. Þetta er flott vín með mikið jafnvægi en vínið þarf að opna. Dominique Plédel Jónsson Hér eru ferskar kryddjurtir, strokleð- ur, sítrónugras. Ég giska á Cape Mentelle. Gunnar Páll Rúnarsson Krydd og ávexti má greina hér. Einnig strokleður og smá sýru. Ólafur Björn Guðmundsson Nefið skilar sér í munninum. Alveg framúrskarandi vín og allt við það mjög gott. Ólafur Örn Ólafsson Hér er eitthvað að gerast. Ég finn strokleður, sítrónugras, nefið skilar sér í munninum og mikið af jurtum í eftirbragðinu. Elísabet Alba Valdimarsdóttir MONTES ALPHA CHARDONNAY Hér finn ég smjör og soðið blómkál. Vínið er eikað og sultað. Sýran er góð og það er áfengt. Það vantar jafnvægi. Matur sem passar við gæti verið hamborgarhryggur og reykt og saltað kjöt. Dominique Plédel Jónsson Ég finn smjör og sultaðan sítrus. Vínið er vel eikað. Gunnar Páll Rúnarsson Mér finnst vanta balans í þetta vin. Ólafur Björn Guðmundsson Eikin er alveg yfirgnæfandi fyrst en svo jafnar það sig aðeins eftir að hafa staðið, þá er það í ágætis málum. Dálítið ristuð eik í nefinu og suðrænir ávextir. Ávöxturinn nær ekki alveg í gegn og balansinn mætti vera betri. Ég mundi borða eitthvað salt með þessu, hamborgarhrygg og jafnvel reyktan fisk Ólafur Örn Ólafsson Í þessu víni finnst mér vera of mikil eik. Áfengið nær ekki að samlagast sýrunni. Bananakeimur, þroskaðir sítrusávextir og vel hátt í alkóhóli. Elísabet Alba Valdimarsdóttir HVÍTVÍN RAUÐVÍN J. LOHR CABERNET SAUVIGN- ON 2008 Í þessu víni finn ég sólber, plómur, möndlur og kryddað með bökunar- kryddi . Í munni er það áfengt, paprika, mikið bragð. Aðgengilegt þrátt fyrir kraft. Það mundi henta með villibráð, til dæmis gæs. Dominique Plédel Jónsson Vínið er léttpiprað. Í því eru möndlur, marzipan,vanilla. Gott ef ekki græn paprika Gunnar Páll Rúnarsson Vínið er sætt í nefi og ég finn keim af fjólum. Ólafur Björn Guðmundsson Mjög fínt og frambærilegt vín í góðu jafnvægi. Ekki mjög krefjandi en þarna má greina keim af kónga- brjóstsykri. Með þessu ætti að borða kjöt og vínið hentar með jólamatn- um. Ólafur Örn Ólafsson Möndludeig og papriku er að finna hér. Það eina sem er afgerandi í munni er áfengi. Ávöxtur og tannín og sýra meldar sig í munni. Mjög skemmtilegt og ágætlega balans- erað. Elísabet Alba Valdimarsdóttir CUNE RIOJA CRIANZA Þetta vín er með feimið nef, púður, steinefni. Í munni er það milt, öflugt og heildarjafnvægi í því. Tannín, lakkrís, dökkir ávextir. Kirsuberjaeftir- bragð. Hentar með svínakjöti og carpaccio. Dominique Plédel Jónsson Þarna kemur fram vanilla og lakkrís. Þetta er mjög þægilegt vín. Gunnar Páll Rúnarsson Þetta vín er þroskað. Ólafur Björn Guðmundsson Þægilegt vín sem býður upp á heilm- ikið. Keimur af byssupúðri, rakettum og ryðguðu járni. Ég gæti hugsað mér að éta hrátt nautakjöt með þessu. Ólafur Örn Ólafsson Hér er keimur af leir og lakkrís. Þurrt og þroskað vín í góðu jafnvægi. Mætti borða Carpaggio með. Elísabet Alba Valdimarsdóttir GUIGAL COTES DU RHONE Sprittað, súkkulaði og svört ber, mynta, pipar. Í munni er það sæt, þurrt tannín. Vel gert vín. Dominique Plédel Jónsson Hérna er súkkúlaði, spritt og pipar. Gunnar Páll Rúnarsson Ég finn pipar. Vínið er lokað. Ólafur Björn Guðmundsson Þetta vín þarf smá tíma til að opna sig og þá verður það nokkuð gott en maður þarf að hafa svoltíð fyrir því. Mætti jafnvel geyma það í nokkur ár. Ólafur Örn Ólafsson Mikið sprittað en feimið líka. Pipar og leður. Maður þarf að hafa dálítið fyrir víninu. Með því má hafa rautt kjöt. Elísabet Alba Valdimarsdóttir CANTINA ZACCAGNINI MONT- EPULCIANO D’ABRUZZO Áfengt með keim af soðnum plómum og dökkum berjum, þykkur safi. Pipar, sólber, bakað, mold og steinefni. Vínið kallar á mat eins og villibráð með sósu. Dominique Plédel Jónsson Mjög berjaríkt í nefinu en þurrt og jarðvegsbundið í munni. Gunnar Páll Rúnarsson Nefið ruglar mann í þessu. Eik, sólber, vínið þurrkar munninn og mold í bragðinu. Ólafur Björn Guðmundsson Þurrt í munninn og á nóg inni. Þetta er þykkur skratti sem þarf að geyma í nokkurn tíma. Kraftmikið og flott. Vínið er sætt svo það mætti borða eitthvað sætt með því. Ólafur Örn Ólafsson Í munni kemur ávöxturinn strax inn. Pínulítið í væmnari kantinum en ekkert óþægilega mikið. Fer úr krækiberjum yfir í plómur. Væri auðvelt að para vínið meðmat. Elísabet Alba Valdimarsdóttir BARON DE LEY FINCA MONA- STERIO Vínið er opið, ég finn fyrir bleki, cassis, kjötkrafti, karamellu, vanillu. Bragðið er flókið, hér eru jurtir og krydd, tóbak. Nef samsvarar sér í munni, eikin er sæt og nokkur nýjaheimsfílingur í þessu. Dominique Plédel Jónsson Eikað og sýran er góð. Nokkuð áfengt og jafnvægið mætti vera meira. Þægilegt vín. Gunnar Páll Rúnarsson Vanilla og sæta, mikil eik og karamella. Þægilegt vín, þroskað tannín. Mætti borða rauðkál og svínaskanka með. Ólafur Björn Guðmundsson Ólafur Örn náði ekki að smakka síðasta vínið áður en hann sótti barn sitt á leikskólann(Í vínsmökkun er ekki kyngt). Ólafur Örn Ólafsson Vínið er bleklitað. Það er ýmislegt sem vill brjótast út í því. Lakkrís, ferskt tóbak, fita, karamella og mikil eik. Þetta helst allt saman í hendur. Það er meiri ávöxtur í munni en nefi. Elísabet Alba Valdimarsdóttir 10 VÍNDÓMAR Vín & veisla fékk til liðs við sig fimm þaulreynda vínunnendur til að blindsmakka fimm hvítvín og fimm rauðvín. Vín-gúrúarnir hittust á veitingastaðnum Dill í Norræna húsinu í góðu yfirlæti. Í blindsmökkuninni var vínunum tíu pakk- að inn í álpappír svo enginn vissi hvað hann var að drekka hverju sinni og gat því fordómalaust sagt sína skoðun. Til starfsins völdust Dominique Plédel Jónsson hjá Vínskólanum, Ólafur Örn Ólafsson og Ólafur Björn Guðmunds- son hjá Dill, Elísabet Alba Valdimarsdóttir yfirvínþjónn á Vox og Gunnar Páll Rúnarsson á Vínbarnum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.