Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 69
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þetta er ákveðin vertíð og margir
biðja mig að koma og tala um jólin.
Þó er misjafnt hvað fólk vill að ég
tali um enda er þetta víðfeðmt efni
og sumt auðvitað talsvert útþvælt,“
segir Árni Björnsson, sem heldur
í dag fyrirlestur um íslenska jóla-
siði í Þjóðminjasafninu þar sem
hann starfaði í þrjátíu ár.
„Í þetta skipti ætla ég þó ekki
að vera með neinar jólaþulur eða
-guðspjöll heldur langar mig að
fletta ofan af ýmiss konar vit leysu
sem veður uppi,“ segir hann og
bætir við að fólk sé jú alltaf að
skálda. „Jón Árnason, sem var nú
frumkvöðull í því að safna þjóð-
sögum, bað til dæmis um það í
formála að fólk skyldi varast að
halda að fólk hefði trúað þjóð-
sögunum. Þær væru skáldskapur
þjóðarinnar sem sífellt endurnýj-
aðist.“
Sem dæmi um algengan mis-
skilning nefnir Árni jólaköttinn.
„Á hann er lauslega minnst í þjóð-
sögunum og alls ekki klárt hvað
það fyrirbæri er. Síðan fóru menn
að geta í eyðurnar og halda því
fram að jólakötturinn hefði étið
börn en það stendur hvergi í þjóð-
sögunum,“ segir hann. Hann bætir
við að í kvæði Jóhannesar í Kötl-
um um jólaköttinn geri Jóhannes
köttinn að tákni auðvaldsins sem
leggist á fátæka fólkið.
„Fólk er því sífellt að skálda út
frá litlum heimildum og mig lang-
ar að útskýra fyrir fólki hvernig
sumar hugmyndir urðu til,“ segir
Árni. Hann mun hefja fyrirlestur
sinn á því að gera grein fyrir því
hvernig skammdegishátíðir hafi
verið til um víða veröld óháð trú-
arbrögðum. „Slíkar hátíðir eru
ekkert endilega kristilegt fyrir-
brigði og það er spaugileg saga
hvernig þetta varð að fæðingarhá-
tíð Jesú Krists. En þeir sem vilja
vita meira um það verða bara að
mæta,“ segir Árni glettinn.
Árni þykir helsti sérfræðingur
Íslendinga í hátíðasiðum þjóðar-
innar enda hefur hann skrifað bók
um alla hátíðisdaga ársins, Sögu
daganna. Því er oft leitað til hans
um svör við ýmsum spurningum
sem vakna varðandi þessa daga.
„Það er skemmtilegt en getur
verið svolítið þreytandi því fólk
ætlast til að maður viti alla skap-
aða hluti, sem getur verið dálítið
íþyngjandi,“ segir hann kíminn
en ekki er óalgengt að fólk svífi á
hann á förnum vegi og spyrji hann
út í eitt og annað.
Árni segir marga siði sem flest-
ir telji rótgróna í raun fremur
nýja af nálinni. „Verslunin síðast-
liðin 100 ár hefur búið til mikið af
þessum jólasiðum,“ segir hann og
tekur sem dæmi aðventukransa,
sem hann segir að blómaverslan-
ir hafi komið á kreik fyrir fimm-
tíu árum.
Árni segir nýja siði þó ekki
endilega síðri en gamla. „Mér
finnst hins vegar skemmtilegra ef
jólasiðir eru sjálfsprottnir fremur
en innfluttir,“ segir hann en tekur
fram að einnig séu til innfluttir
jólasiðir sem síðan hafi fengið
séríslenskt snið. Sem dæmi megi
nefna þá hefð að börn fái í skóinn.
„Fólk sem er fætt fyrir 1950 man
ekki eftir þessum sið. Hann er til
úti í Evrópu við sjávarsíðuna, en
þar er hann bara eitt kvöld eða
mesta lagi á hverjum sunnudegi
í aðventu,“ segir Árni og telur að
siðurinn hafi borist hingað með
sjómannsfjölskyldum. Um 1960
hafi mjög margar fjölskyldur
verið farnar að fylgja siðnum en
þó virðist engin almenn regla hafa
gilt um hann. „Þessi eldgamli evr-
ópski siður varð í raun að plágu
þangað til Þjóðminjasafnið, í sam-
vinnu við leikskóla og fósturfélag-
ið, kom böndum á hann og miðað
var við að byrjað væri að gefa í
skóinn þegar fyrsti jólasveinninn
kæmi til byggða.“
Þeir sem vilja fræðast enn frek-
ar um jólasiði geta hlýtt á Árna í
dag í Þjóðminjasafninu en fyrir-
lestur hans hefst klukkan 13.
solveig@frettabladid.is
Flettir ofan af vitleysum
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur þekkir vel til íslenskra jólasiða enda mun hann í dag flytja fyrirlestur
um það efni í Þjóðminjasafninu. Þar ætlar hann að leiðrétta ýmsan misskilning er varðar siði og venjur.
Árni Björnsson heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafninu í dag klukkan 13 um íslenska jólasiði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JÓL Í KOTI, JÓL Í BORG Minjasafn Reykjavíkur býður gestum í
sögugöngu í dag klukkan 11 en í henni verður fjallað um helgihald í
Kvosinni í Reykjavík allt frá tímum fyrstu landnámsmanna til dags-
ins í dag. Þá fræðast göngumenn um hvar fyrsta jólatrésskemmtunin
fór fram í Reykjavík og hvenær jólakortin komu til sögunnar. Gangan
hefst við Landnámssýninguna í Aðalstræti.
Jólagjafirnar hans
póker - billiard - dart
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið • Laugavegi 176 • Sími 533 2220 • www.lindesign.is