Fréttablaðið - 12.12.2009, Síða 103

Fréttablaðið - 12.12.2009, Síða 103
27 MENNING Eftirtaldar bækur voru einnig nefndar: KARÍTAS ÁN TITILS/ÓREIÐA Á STRIGA eftir Kristínu Marju Baldursdóttur. „Mynda saman sögu af lífi íslenskrar konu sem fæðist í upphafi 20. aldar og deyr í ald- arlok. Frásögnin er full af stórkostlegum kvenlýsingum og miklum húmor um leið og mikil og þung undiralda er í verkinu öllu. Verk sem vantaði í íslenska bókmennta- sögu.“ RIGNING Í NÓVEMBER eftir Auði Ólafsdóttur. „Varla er hægt að gera upp á milli Rigning- arinnar og Afleggjarans, en þessi bók verður ofan á vegna þess að hún er ástarsaga, ferða- saga og matreiðslukver – allt í senn. Persón- urnar fylgja manni lengi eftir að lestri er lokið. Gómsæt bók.“ LOVESTAR eftir Andra Snæ Magnason „Mögnuð og hrollvekjandi saga af því hvern- ig Ísland hefði sjálfsagt orðið ef góðærið hefði haldið áfram mikið lengur, heimur þar sem markaðssetningin á ástinni og dauðan- um hefur náð fullkomnun sinni.“ LÖMUÐU KENNSLUKONURNAR eftir Guðberg Bergsson. „Bók sem er erfitt að gleyma og þolir ekki aðeins endurlestur heldur líka náin kynni. Hún sver sig á einhvern furðulegan hátt í ætt við það besta sem höfundurinn hefur gert á löngum ferli.“ MINNISBÓK eftir Sigurð Pálsson. „Að muna, að vera ungur, að lesa. Sigurð- ur nær þessari merkilegu tilfinningu, sem er meira en að segja það, óháð öllu því sem kann að hafa gleymst.“ ÓVINAFAGNAÐUR/OFSI eftir Einar Kárason. „ Einar Kárason dregur upp óborganlega og sprenghlægilega mynd af bændum og búa- liði í vígahug og báðar sýna þær svo ekki verður um villst að glíman við náttúruöflin er sú sem mestu máli skiptir hér á þessum hjara veraldar sem við búum á.“ SEGÐU MÖMMU AÐ MÉR LÍÐI VEL eftir Guð- mund Andra Thorsson. „Þegar Guðmundur Andri er góður, þá er hann með þeim bestu. Því miður sóar hann tíma sínum í dægurþras og pólitískt þvaður þegar hann ætti bara að vera að skrifa um ástina, eins og í þessari bók. Stíllinn er dás- amlegur, litmjúkar persónur dregnar upp af listfengi – og eftir allt hugsar maður um tím- ann, gildi lífsins, eilífðina.“ SKIPIÐ EFTIR Stefán Mána. „Besta og skemmtilegasta spennusaga sem skrifuð hefur verið á íslensku. Alvöru „strákabók“ með hressandi hryllingsívafi.“ SÓLIN SEST AÐ MORGNI eftir Kristínu Steinsdóttur. „Sjálfsævisögulegur tónn bókar Kristínar er ómótstæðilegur í gríðargóðri hugleiðingu um minni og fortíð.“ SÓLSKINSHESTUR eftir Steinunni Sigurðar- dóttur. „Ég á eftir að lesa Góða elskhugann sem mér skilst að sé ekki síðri.“ SÓLSKINSRÚTAN ER SEIN Í KVÖLD eftir Sigfús Bjartmarsson. „Þessi ferðasaga um rómönsku Ameríku er eins og gott og hjartastyrkjandi skot, skal drekkast hægt og helst lykta aðeins fyrst. Og hvergi hef ég lesið kjarnyrtari ensku- slettur.“ SVEIGUR eftir Thor Vilhjálmsson. „Geysilega fallegur texti, alger unaðslestur. Ljóðrænan ber lesandann frekar inn á við en áfram. Einstök tilraun til þess að flytja okkur hugmyndaheim 13. aldar og máta hann við okkar eigin.“ TRYGGÐARPANTUR eftir Auði Jónsdóttur. „Áhrifamikil táknsaga um óttann við fram- andleika og sérgæsku Vesturlandabúa. Um leið er þetta sannfærandi sálfræðileg skáld- saga – og svo eru í henni fleiri botnar.“ 39 ÞREP Á LEIÐ TIL GLÖTUNAR eftir Eirík Guð- mundsson. „Sjálfsmeðvitað verk og höfund- ur kinkar kolli til Bréfs til Láru strax í upp- hafi. Í báðum þessum verkum er verið að reyna að fanga tíðarandann sem tekst að vissu leyti en misheppnast líka vegna þess að stíll þessara rithöfunda er einungis sjálf- um sér líkur.“ Þessar bækur voru líka nefndar: Segja má að sumir höfundar hafi „goldið“ fyrir að senda frá sér hvert úrvalsverkið á fætur öðru, þar sem atkvæði dreifðust á milli bóka. Þrír höfundar voru tilnefndir fyrir þrjár bækur hver: BRAGI ÓLAFSSON Gæludýrin: „Í fyrstu tveimur skáldsögum sínum kynnti Bragi Ólafsson íslenska les- endur fyrir annars konar húmor en þeir áttu að venjast, stundum hefur hvarf- lað að mér að þessi sérstaka kímni gangi aftur í Næturvaktinni, Dagvaktinni og Fangavaktinni.“ Samkvæmisleikir:„Ekki var auðvelt að velja úr skáldsögum Braga, en þessi fær atkvæðið þó það væri ekki nema fyrir að hún breytti algjörlega hvernig ég lít á ákveðið horn af vesturbænum.“ Sendiherrann: „Makalaus skáldsaga um glæp og refsingu, skáldskap og veru- leika. Aðstæður og persónur í Sendiherr- anum er næstum því óbærilega sannar, pínlegar, sorglegar og fyndnar.“ GYRÐIR ELÍASSON Hótelsumar: „Það verður aldrei lögð nógu mikil áhersla á mikilvægi verka Gyrðis. Stöðugt færir hann okkur ný sjónarhorn á hversdag og undur.“ Sandárbókin: „Í Sandárbókinni eru náttúrumyndirnar ógleymanlegar, ein- semdin þrúgandi og myrkrið í mann- eskjunni aldrei jafn svart. Yfir öllu vakir vandvirkni Gyrðis og látlaus stíll, sem fangar mann ár eftir ár.“ Milli trjánna: „Svona gott smásagna- safn er vandfundið. Hver saga hefur sína rödd en saman mynda þær áhrifamikla hljómkviðu – maður vill ekki að þær taki enda.“ SJÓN: Skugga-baldur (sjá 5. sæti.) Rökkurbýsnir: „Það eru fáar bækur sem draga mann í undirdjúpin - jafnvel bók- staflega - eins og þessi gerir svo liggur við drukknun.“ Með titrandi tár: „Þrátt fyrir að Skugga-baldur sé verðlaunabókin þá eru þræðirnir sem Sjón vefur hér svo ótrú- lega margir og fjölbreytilegir að ég tek þessa framyfir.“ Þrír höfundar til viðbótar voru tilnefndir fyrir tvær bækur hver: JÓN KALMAN STEFÁNSSON: Sumarljós og svo kemur nóttin (sjá 3. sæti). Himnaríki og helvíti: „Í Himnaríki og hel- víti fann Kalman eitthvað hárfínt jafn- vægi sem gerir honum kleift að fjalla um líf og dauða, ást og skáldskap á hátt sem margir héldu að póstmódernisminn hefði gengið af dauðum.“ STEINAR BRAGI Áhyggjudúkkur (sjá 4. sæti) Konur: „Steinar Bragi er alltaf skemmti- lega á skjön og er gríðarlega öflugur í þessari beittu og grimmilegu sögu.“ SÖLVI BJÖRN SIGURÐSSON: Fljótandi heimur: „Það er bara svo fjandi mikill galdur, tregi og fegurð í þessari bók Sölva að þótt hún sé fljótlesin þá er nauðsynlegt að slóra aðeins með hana og leyfa henni að seitla í rólegheitum inní undirmeðvitundina.“ Síðustu dagar móður minnar: „Dem- anturinn í bókaflóðinu þetta árið. Alveg hreint frábær skáldsaga sem staurblindri bókmenntaverðlaunanefndinni tókst ein- hvern veginn að horfa fram hjá.“ ÞORSTEINN FRÁ HAMRI: Dyr að draumi. Hvert orð er atvik.(Sjá ljóð.) 1. YFIR EBRÓFLJÓTIÐ Eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. „Magnaðasta stríðsádeila sem komið hefur út á íslensku síðan Laxness sendi frá sér Gerplu.“ „Ein glæsilegasta skáld- saga áratugarins – fátt hefur magnaðra verið skrifað um stríð.“ „Ekki aðeins besta skáld- saga áratugarins heldur eitt besta íslenska skáldverkið yfirleitt.“ „Ein af merkustu skáld- sögum síðari ára á Íslandi. Stríðssaga sem stenst sam- anburð við hliðstæð verk í vestrænni bókmenntasögu, um leið og hún hefur að geyma miskunnarlaust upp- gjör við eðli hugsjóna.“ 2. YOSOY Eftir Guðrúnu Evu Mínervu- dóttur. „Guðrún Eva sýnir lesend- um sínum ekki í sér hjart- að en hún megnar að kveikja eitthvað í hugskoti þeirra sjálfra sem þeir höfðu ef til vill ekki séð þar áður. Hvernig er hægt að svara sífellt frekari kröfum í sam- tímanum eftir því að mann- eskja sýni allt og segi allt um sjálfa sig með opinská- um hætti?“ „Sýn Guðrúnar Evu á mannlega tilveru er svo skörp að maður fellur á köfl- um í stafi yfir því hversu næmur og klár höfundur hún er.“ „Guðrún Evu tekst að skapa svo magnaða jarð- tengingu í þessa fantasíu að maður efast aldrei um ónátt- úrulega hæfileika meðlima hryllingsleikhússins.“ 3. SUMARLJÓS, OG SVO KEMUR NÓTTIN eftir Jón Kalman Stefánsson. „Í fyrstu kann mann að virð- ast sem þorpið sé heimur út af fyrir sig úr tengslum við umheiminn en svo er ekki. Sýnt er hvernig aldarandinn lætur engan ósnortinn enda þótt einstaklingar kunni að vera mismóttækilegir fyrir honum.“ „Bæði nýstárleg og gam- aldags, sár og fögur í senn. Kjaftasagnaelementið sem við þorpsbúarnir á þessu örlandi þekkjum svo vel vefur upp á sig og úr verð- ur aldeilis magnaður sagna- bálkur sem umfram allt er skemmtilegur.“ 4. HÖFUNDUR ÍSLANDS Eftir Hallgrím Helgason. ÁHYGGJUDÚKKUR Eftir Steinar Braga. Um Höfund Íslands: „Frá- bær skáldsaga sem stendur í skugga höfundar síns. Virk- ar á mörgum plönum, sem raunsæissaga, menningar- pólitísk krufning og skáld- skapur um skáldskap.“ „Uppgjör við „höfundinn“ og „stærstu bók“ liðinnar aldar, hugmyndanáman rudd og stílgáfan nær hæst- um þroska.“ Um Áhyggjudúkkur: Stein- ar Bragi lýsir persónum sem lifa í varanlegu tómu núi skömmu fyrir jól við Laugaveginn sem maður sér ekki sömu augum eftir lest- ur bókarinnar.“ „Verk sem tengdist tím- unum á annan hátt en áður hafði tíðkast í íslenskum bókmenntum og er enn í dag besta lýsing á þeim sam- tíma sem nú hefur hvolfst yfir okkur með ömurlegum afleiðingum. Þetta var allt þarna.“ 5. SKUGGA-BALDUR Eftir Sjón. „Góð skáldsaga, vel skrifuð, hefur haldgóða byggingu, eftirminnilegar persónur, er spennandi aflestrar, skilar erindi sínu á gefandi hátt – hefur í raun flest sem vönd- uð skáldsaga þarf að hafa.“ „Klárlega bók áratugar- ins á Íslandi og kannski á Norðurlöndum. Sprúðlandi og margræður skáldskapur með þungum siðferðilegum undirtóni grípur mann strax en bókin heldur áfram að dýpka við hvern lestur.“ Bestu skáldverkin að mati álitsgjafa Höfundar tilnefndir fyrir flestar bækur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.