Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 134
78 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 16 á morgun á Gljúfra-
steini
Þriðja í aðventu munu enn koma góðir
gestir í stofuna á Gljúfrasteini. Lesin
verða ljóð, brot úr ævisögu og skáld-
sögu. Eyþór Árnason les úr Hundgá úr
annarri sveit, Vilborg Davíðsdóttir úr
Auði, Sigurður Pálsson úr Ljóðorku-
þörf og Sólveig Arnarsdóttir úr Góða
elskhuganum eftir Steinunni Sigurð-
ardóttur. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir. Upplesturinn hefst þegar
gamla klukkan í forstofunni slær fjög-
ur högg, kl. 16.
> Ekki missa af...
Á morgun lýkur sýningunni Evudætur
í Listasafninu á Akureyri, en sýningin
hefur staðið frá 24. október. Evudætur
er samsýning þriggja listakvenna,
Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur, Þor-
bjargar Halldórsdóttur og Hrafnhildar
Arnardóttur, en á sýningunni má sjá
úrval saumaverka og innsetninga.
Listakonurnar vinna allar með fundna
hluti og ýmiss konar lífræn og ólífræn
efni og aðferðir – lopa, silki, gervihár,
tvinna, blúndur, bútasaum, kross-
saum og flesta aðra sauma og efni
sem tilheyra hinni kvenlegu arfleifð.
Listasafnið er opið í dag og á morgun
frá 12 til 17 og er aðgangur ókeypis í
boði Akureyrarbæjar.
Á morgun kl. 17 verða
haldnir veglegir jólatónleik-
ar í Grafarvogskirkju. Til-
efnið er ekki smátt og varð-
ar allt helgihald í kirkjunni
við voginn næstu áratugi:
það er verið að safna í sjóð
til að kaupa orgel í kirkj-
una. Aðgangseyrir rennur í
orgelsjóð Grafarvogskirkju.
Á tónleikunum koma fram margir
af helstu listamönnum þjóðarinn-
ar. Má þar nefna tenórsöngvarana
Jóhann Friðgeir Valdimarsson og
Gissur Pál Gissurarson, fiðluleik-
arann Hjörleif Valsson og píanó-
leikarann Arnhildi Valgarðsdótt-
ur. Allir fimm kórar kirkjunnar,
yfir hundrað manns, koma fram
ásamt stjórnendum sínum en þeir
eru Hákon Leifsson, Oddný J. Þor-
steinsdóttir, Arnhildur Valgarðs-
dóttir og Guðlaugur Viktorsson.
Mikið verður því um dýrðir á
þessari aðventustund kirkjunn-
ar. „Til stendur að fylla kirkjuna
himneskum hljómi og flytja jóla-
tónlist af ýmsum toga. Markmið
tónleikanna er að koma gestum
í jólaskap og fylla hug og hjörtu
okkar allra tilfinningu fyrir
nálægð jólanna og boðskap hinn-
ar miklu hátíðar,“ segir Hákon
Leifsson, organisti kirkjunnar,
sem stendur fyrir tónleikunum.
Um þessar mundir er Grafar-
vogssókn tuttugu ára. Á uppvaxt-
arárum sóknarinnar hefur margt
gerst. Helgihald í sókninni, sem
áður var í skólastofum, er nú í einni
stærstu kirkju landsins. Í upphafi
var aðeins einn prestur starfandi
í sókninni en nú eru prestarnir
orðnir fjórir, auk djákna og fjölda
annarra starfsmanna. Mikil starf-
semi af öllum toga fer fram í veg-
legri kirkjubyggingunni.
Í hinni lútersku kirkju er alda-
gömul hefð fyrir því að orgelið
sé meginhljóðfæri helgihaldsins.
Mestur meistara hinnar lútersku
kirkjuhefðar er J.S. Bach og hefur
hann æ síðan verið fyrirmynd ann-
arra meistara innan kirkjunnar. Í
öllum kirkjum landsins er hljóð-
færakostur undirstaða tónlistar-
flutnings við stórhátíðir, útfarir,
hjónavígslur, skírnir og ferming-
ar. Allar þessar stundir eiga sér
djúpa merkingu í hugum þeirra
einstaklinga sem taka þátt í þeim.
Tónlistin er líka undirstaða dag-
legs og almenns helgihalds, þannig
að miklu skiptir að vel sé vandað
til verka þegar hljóðfærakostur
er valinn. Orgelið er hljómmikið í
eðli sínu og endurspeglar því eðli-
lega kraftbirtingarhljóm guðdóms-
ins þegar vel tekst til.
Um árabil hefur verið á dagskrá
sóknarinnar að fjárfesta í org-
eli fyrir Grafarvogskirkju. Orgel
hefur verið hannað með aðkomu
færustu sérfræðinga úr ýmsum
áttum og valinn hefur verið einn
virtasti orgelsmiður heims til
verksins, Ernst Seifert. Vel hefur
tekist til við að safna fjármunum
til þessarar framkvæmdar. Fyrir
hrun hafði tekist að safna fé fyrir
bróðurparti af andvirði orgels-
ins en gengi íslensku krónunnar
hefur fallið gríðarlega og hefur
það tafið þessar fyrirætlanir í
bili. Fjármunirnir liggja fyrir en
hrökkva skammt eins og ástandið
er og vænta menn þess að krónan
styrkist innan tíðar á nýjan leik
þannig að fyrirætlanir og bygg-
ing orgelsins nái nýju flugi í náinni
framtíð. Orgel endast um aldir og
ævi sé þeim vel viðhaldið. Orgelið
mun þjóna og prýða þessa veglegu
kirkju á sorgar- og gleðistundum
komandi kynslóða.
Tónleikarnir til styrktar orgel-
sjóði kirkjunnar eru liður í því að
hvetja alla hlutaðeigendur til þess
að fylgja eftir því verðuga mál-
efni að smíða orgel í kirkjuna sem
kirkjubyggingunni hæfir. Því kall-
ar tónlistarfólkið sem fram kemur
á morgun til sóknarbarna og ann-
arra velunnara sinna nær og fjær
að koma til samkomunnar á morg-
un og leggja sitt lóð á vogarskál-
arnar.
pbb@frettabladid.is
Orgelsjóður studdur
TÓNLIST Stórtónleikar eru á morgun til styrktar kaupum á orgeli í Grafarvogskirkju.
FRÉTTABLAÐIÐ/
Sérðu muninn? Í dag kl. 14 verður dagskrá í Listasafni
Íslands þar sem gestum er boðið að skyggnast á bak
við tjöldin. Ólafur Ingi Jónsson, forvörður safnsins, mun
fræða gesti um falsanir og fjalla um þær í tengslum við
það sem kallað hefur verið „Stóra málverkafölsunarmál-
ið“.
Enn fremur mun rithöfundurinn Ragna Sigurðardóttir
kynna bók sína Hið fullkomna landslag, sem fjallar á
spennandi hátt um íslenskan listheim og hvaða atburða-
rás fer af stað þegar falsað verk ratar inn á gólf í virtu
safni.
Nú stendur yfir sýning á verkum listmálarans Svavars
Guðnasonar í safninu og mun Ólafur Ingi skoða höf-
undarverk Svavars í þessu samhengi. Þekkir þú í sundur
frumgerð og fölsun? Gestum gefst tækifæri til að ræða
viðfangsefnið við Ólaf Inga og Rögnu í lokin.
Fölsuð verk og ófölsuð
MYNDLIST Verk eftir Svavar en hann hefur
verið yndi falsara til þess MYND LISTASAFN ÍSLANDS
Deleríum Búbónis gerist á aðventunni í Reykjavík
á sjötta áratugnum á heimili Ægis Ó. Ægis forstjóra
Gleðilegra jóla hf. og eiginkonu hans, frú Pálínu
Ægis listunnanda og menningarfrömuðar. Forstjór-
inn ætlar að flytja inn jólatré og ávexti fyrir jólin,
en óvænt atvik setur strik í reikninginn. Þá eru góð
ráð dýr og fátt vænna í stöðunni en að fresta jólun-
um fram í mars! En þá kemur það sér vel að eiga
góðan að á þingi, því mágur forstjórans er sjálfur
jafnvægismálaráðherra Íslands.
Það var í nóvember 1954 að Jón Múli kom með
nýtt leikrit til þáverandi leiklistarstjóra Útvarps,
Þorsteins Ö. Stephensen, og sagði að það væri skrif-
að fyrir útvarp og væri eftir tvo höfunda, þá Ein-
björn og Tvíbjörn. Svo vel leist Þorsteini á leikrit-
ið að hann ákvað að flytja það þá strax, fyrir jólin,
„enda er það, eins og allir vita, rétti tíminn til að
flytja þetta verk“, sagði Þorsteinn þegar hann rifj-
aði upp hvernig Deleríum Búbónis barst fyrst í
hendur hans.
Þannig hófst sigurganga söngvaleiksins Deleríum
Búbónis, með frumflutningi í Útvarpsleikhúsinu á
aðventu 1954. Höfundarnir, Einbjörn og Tvíbjörn,
reyndust vera bræðurnir góðkunnu Jón Múli og
Jónas Árnasynir.
Útvarpsgerðin er frumgerð þessarar jóla- og bíl-
númerarevíu, sem síðar stækkaði á alla kanta og fór
ljósum logum um leiksvið landsins og naut mikilla
vinsælda meðal þjóðarinnar.
Útvarpsgerðin frá 1954 skartar vinsælum leik-
urum þessa tíma: Haraldur Björnsson er í hlut-
verki forstjóra Gleðilegra jóla hf. Frú Pálínu Ægis
konu hans leikur Emilía Jónasdóttir. Dóttur þeirra,
Guðrúnu Ægis listdansara, leikur Kristín Anna
Þórarinsdóttir. Jafnvægismálaráðherrann, bróð-
ir frúarinnar, er leikinn af Þorsteini Ö. Stephensen
og fóstursonur hans, Leifur Róberts tilvonandi tón-
skáld, er leikinn af Lárusi Pálssyni. Sigga, vinnu-
kona á Ægis-heimilinu, er leikin af Nínu Sveinsdótt-
ur.
Tónlistinni stjórnaði og útsetti Carl Billich og um
hljóðfæraleik sá Karl Lilliendahl, en leikstjóri var
Einar Pálsson. Á undan flutningi leikritsins kl. 14
á Rás 1 á sunnudaginn er fluttur formáli sem Þor-
steinn Ö. Stephensen samdi og flutti við endurflutn-
ing leikritsins árið 1973.
Deleríum Búbónis
LÁRUS PÁLSSON SYNGUR Á MORGUN upphaflega útgáfu af Áin
er alltaf að vaxa sem er eitt magnaðasta djasslag í útgáfu Carls
Billich frá árdögum lýðveldisins.
„Vel grunduð þroskasaga frá upph
ndu aldar, spennandi ogníu
forvitnilegum tíma.“
páll baldvin baldvinsson / frét tablaðið
2. PRENTUN
KOMIN
átakamikil uppvaxtarsaga eins
þekktasta landnema íslands