Fréttablaðið - 12.12.2009, Qupperneq 142
86 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
Hinir árlegu X-mas-tónleikar X-
ins 977 verða haldnir í ellefta
sinn á Sódómu föstudagskvöldið
18. desember. Á meðal þeirra sem
koma fram eru Ourlives, Dikta,
Agent Fresco og Mammút. Allir
listamenn gefa vinnu sína og allur
aðgangseyrir rennur til Stígamóta,
grasrótarhreyfingar kvenna gegn
kynferðislegu ofbeldi. „Okkur
finnst mjög mikilvægt að styðja
við bakið á Stígamótum. Þessi
málaflokkur hefur orðið svolít-
ið útundan hjá ríkisstjórninni að
undanförnu,“ segir Þorkell Máni
Pétursson hjá útvarpsstöðinni X-
inu. „Síðan erum við karlmenn
sem vinnum á stöðinni og flest-
ir hlustendur eru karlmenn. Við
skömmumst okkur stundum fyrir
kynbræður okkar þegar þeir haga
sér eins og aumingjar.“
Aðgangseyrir á tónleikana er
sá sami og undanfarin ár, eða 977
krónur. Miðasala á tónleikana hefst
á hádegi 18. desember á Sódómu.
X-mas í ellefta sinn
OURLIVES Hljómsveitin Ourlives spilar á
X-mas-tónleikum sem verða haldnir 18.
desember.
Algengt er að skartgripa-
hönnuðir úti í heimi not-
færi sér áhrifamátt fræga
fólksins til þess að auglýsa
vörur sínar. Gullsmiðurinn
Sigurður Ingi hefur fetað í
þau fótspor.
„Það er náttúrulega toppurinn að fá
þetta fólk í lið með sér,“ segir Sig-
urður Ingi Bjarnason, gullsmiður
og hönnuður Sign skartgripalínunn-
ar. Í nýrri auglýsingu fyrir línuna
fékk hann fjölda þjóðþekktra ein-
staklinga til að sitja fyrir á mynd,
svo sem söngkonurnar Jóhönnu
Guðrúnu Jónsdóttur, Heru Björk
Þórhallsdóttir, hár- og förðunar-
meistarann Karl Berndsen, spákon-
una Sigríði Klingenberg og bakara-
meistarann Jóa Fel.
„Hugmyndin kviknaði út frá því
að ég var búinn að vera að vinna
fyrir svo marga á árinu. Ég hafði
ekki gert neitt úr þessu, en það var
eiginlega ekki annað í stöðunni en
að kalla liðið saman í myndatöku.
Auglýsingin var gerð með rosa-
lega skömmum fyrirvara, en ég
var búinn að hafa orð á þessu við
nokkra og það voru allir tilbúnir
í þetta,“ segir Sigurður Ingi sem
hefur meðal annars smíðað skart á
íslenskar fegurðardrottningar og
hannaði til dæmis áberandi hring á
Jóhönnu Guðrúnu sem hún var með
í Eurovisonkeppninni í Moskvu.
Sigurður Ingi hefur starfað sem
gullsmiður í tuttugu ár, en Sign
vörulínan kom til sögunnar fyrir
fjórum árum. Í fyrra opnaði hann
svo gallerí við smábátahöfnina í
Hafnarfirði þar sem hann breytti
gamalli verbúð í gullsmíðaverk-
stæði. „Ég sérsmíða gjarnan skart-
gripi fyrir fólk við hin ýmsu tæki-
færi og geri þá yfirleitt svolítið
ýkta og öðruvísi. Þá nota ég oft yfir-
gengilega stóra steina sem gera það
að verkum að fólk nær athyglinni
með skartinu. Annars eru stóru
krossarnir eflaust mitt helsta vöru-
merki,“ segir hann en Sign vörurn-
ar fást meðal annars í galleríi hans
í Fornubúðum 12.
alma@frettabladid.is
Frægir auglýsa
Sign skartgripi
LANDSÞEKKT Margir þekktir einstakling-
ar sitja fyrir í auglýsingunni fyrir Sign.
MYND/JÓN PÁLL
SÉRHANNAÐIR SKARTGRIPIR Sigurður Ingi Bjarnason hefur sérhannað skartgripi fyrir
alla í auglýsingunni fyrir Sign. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
> AFMÆLISBARN
Leikkonan Catherine Zeta-Jones fékk lítinn
hvolp í afmælisgjöf frá eiginmanni sínum,
leikaranum Michael Douglas. Zeta-Jones
dvelur í New York um þessar mundir þar
sem hún fer með hlutverk á Broadway,
en fjölskyldan býr þó á Bermúda.
folk@frettabladid.is
B
arna- og unglingabæ
kur 09.12.2009
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki