Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 144
88 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
Susanne Boyle hefur upplýst að
hún þjáist af þunglyndi. Hún eigi
það til að fá reiðiköst en þetta sé
afleiðing af því einelti sem hún
mátti þola í æsku. Boyle hefur
skotist upp á stjörnuhimininn
eftir að hún sló í gegn í Britain
Got Talent-sjónvarpsþættinum
og nýleg plata hennar hefur selst
í bílförmum úti um allan heim.
„Ég get farið upp og niður, skapið
er alveg eins og jójó,“ segir Boyle
í samtali við The Sun.
Boyle átti erfitt með nám eftir
að hafa orðið fyrir súrefnisskorti
sem barn og söngkonan upplýs-
ir í viðtalinu að henni líði best á
sviði fyrir framan troðfullan sal
af áhorfendum. „Ég gleymi bæði
stund og stað, ég næ einhverri
tengingu við áhorfendur og mér
hefur verið sagt að ég sé allt
önnur manneskja þar.“
Susan Boyle
er þunglynd
ÞUNGLYND EFTIR EINELTI Susan Boyle
hefur stigið fram og upplýst að hún sé
þunglynd eftir einelti í æsku.
Söngkonan Rihanna lýsti því
yfir í breskum fjölmiðlum að
hún vildi leggja sitt af mörkum
til að koma Cheryl Cole á fram-
færi í Bandaríkjunum. Cheryl,
sem er gift Chelsea-leikmannin-
um Ashley Cole, var að gefa út
sína fyrstu sólóplötu en hún er
ein aðalsprautan í stúlknasveit-
inni Girls Aloud. Cheryl hefur
jafnframt sinnt dómarastörfum
með miklum glæsibrag í breska
X-Factor ásamt Simon Cowell og
það var einmitt í þeim þætti sem
Rihanna fékk þessa hugmynd.
„Ég hitti hana eftir þáttinn og
spurði hvort hún vildi ekki koma í
tónleikaferð með mér um Banda-
ríkin. Ég er alveg sannfærð um
að Bandaríkjamenn eigi eftir að
elska hana því hún er bæði falleg
og frábær,“ sagði Rihanna og var
augljóslega ekkert að spara lofið.
Rihanna mun syngja og dansa
í Bandaríkjunum og Evrópu á
næsta ári en tónleikaferð-
in hefst í Belgíu í apríl.
Rihanna vill
Cheryl Cole
Í
TÓN-
LEIKA-
FERÐ
Rihanna
vill fá
Cheryl
Cole til
að ferðast
með sér um
Bandaríkin.
Nokkrar vinkonur tóku sig til og héldu
fyrsta stelpu-uppistandið á Næsta bar á mið-
vikudaginn var. Á meðal þeirra sem tróðu
upp var Ugla Egilsdóttir leikkona, sem var
síðust á svið en vakti rífandi lukku meðal
gesta.
„Ég held að við höfum allar haft gaman
af uppistandi nokkuð lengi, mér finnst til
dæmis Sarah Silverman mjög skemmtilegur
uppistandari, þannig að þegar Nadia fór að
skipuleggja þetta var ekki hægt að slá hend-
inni á móti því,“ segir Ugla. Aðspurð segist
hún ekki hafa æft sig eins vel fyrir kvöldið
og hún hafi ætlað sér og þess vegna fengið
vinkonu sína til að taka að sér starf hvísl-
ara. „Ég var ekki búin að æfa mig nógu vel.
Ég ætlaði að vakna klukkan níu um morg-
uninn og læra þetta allt utan að, en ég svaf
yfir mig og þurfti að mæta beint í vinnu
þannig að ég náði ekki að læra þetta nógu
vel. Ég ákvað þá að nota vinkonu mína sem
hvíslara og innlima það í atriðið,“ útskýr-
ir Ugla og segist ekki hafa átt í vandræðum
með að finna umræðuefni heldur hafi hana
fyrst og fremst langað að segja aulabrand-
ara.
Viðburðurinn var mjög vel sóttur og
var staðurinn troðinn út úr dyrum. Ugla
segir að það hafi komið henni á óvart
hversu margir létu sjá sig. „Þetta var mjög
skemmtilegt og gekk mjög vel. Ég hélt að
maður þyrfti að bjóða vinum og ættingjum
til að fylla staðinn þannig að það kom mér á
óvart hversu stórt í sniðum þetta varð.“
Því má með sanni segja að stúlkunum hafi
tekist ætlunarverk sitt og sannað það í eitt
skipti fyrir öll að stelpur eru víst fyndnar.
- sm
Ugla fór á kostum
FYNDIN STÚLKA Ugla Egilsdóttir vakti mikla lukku með
uppistandi sínu á Næsta bar á miðvikudaginn var.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sloggi Romance
20%
afsláttur