Fréttablaðið - 12.12.2009, Síða 152

Fréttablaðið - 12.12.2009, Síða 152
 12. desember 2009 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Aðeins munar tveim- ur stigum á toppliðunum í ensku úrvalsdeildinni fyrir helgina. Chelsea tapaði um síðustu helgi og Man. Utd tókst því að minnka muninn með sigri. Bæði lið eiga heimaleik um helg- ina. Chelsea tekur á móti Everton en Aston Villa sækir United heim. Chelsea verður án Michaels Essi- en sem meiddist í Meistaradeildar- leiknum gegn Apoel Nicosia. Petr Cech og Frank Lampard verða aftur á móti með en þeir voru ekki í liði Chelsea í vikunni. Everton fær John Heitinga aftur í sitt lið en hann var í leikbanni í síðustu viku. Tim Cahill er aftur á móti kominn í leikbann eftir að hafa fengið fimm gul spjöld í vetur. Svo verður Everton einnig án Josephs Yobo sem er meiddur og spilar ekki fyrr en eftir ára- mót. Stuðningsmenn Chelsea geta leyft sér að vera bjartsýnir fyrir leikinn enda hefur Everton ekki unnið Chelsea í níu ár. Liðin hafa leikið 23 leiki á þessum níu árum. David Moyes hefur stýrt Evert- on í 21 leik af þessum 23. Hann er kannski aðeins bjartsýnni núna enda hefur Chelsea verið að gefa eftir upp á síðkastið. Chelsea hefur ekki unnið þrjá síðustu leiki sína. Það eru meiðslavandræði sem fyrr hjá Man. Utd. Þrír lykilmenn gætu þó snúið til baka. Það eru þeir Wayne Rooney, Dimitar Berbat- ov og Nemanja Vidic. Ryan Giggs verður í byrjunarliðinu eftir að hafa hvílt í vikunni. Það eru engir leikmenn meiddir hjá Aston Villa. United hefur haft algjört hreðja- tak á Aston Villa. Villa lagði Man. Utd í opnunarleik deildarinnar leik- tíðina 1995-96 en hefur ekki unnið United síðan. Villa hefur ekki tekist að landa sigri í síðustu 27 leikjum liðanna í deildinni og United er þess utan búið að vinna síðustu 12 af 13 leikjum liðanna. Ekkert annað lið hefur haft annað eins tak á Villa í sögunni og tak United á Villa er það mesta í sögu úrvalsdeildarinnar. Það er svo stórleikur á sunnudag þegar Liverpool tekur á móti Ars- enal. Liverpool þarf sárlega á sigri að halda. Fernando Torres gæti byrjað deildarleik í fyrsta skipti í sex vikur og Alberto Aquilani gæti jafnvel fengið annað tækifæri. Alexandre Song snýr til baka úr leikbanni og mun líklega byrja á miðjunni hjá Arsenal. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vonast einn- ig til þess að þeir Eduardo og Abou Diaby verði klárir í slaginn. Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur sagt að tímabilið hjá þeim byrji núna sem eru út af fyrir sig áhugaverð ummæli. Liverpool er í sjöunda sæti en þó aðeins fjór- um stigum á eftir Arsenal sem er í þriðja sæti. Þrjú stig á morgun myndu því gefa liðsmönnum Rafa mikið. henry@frettabladid.is Nær United toppsætinu? Manchester United getur náð toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag fari svo að liðið leggi Villa og Chelsea misstígi sig. Bæði lið eru reyndar líkleg til þess að vinna leiki sína enda hafa þau ekki tapað gegn andstæðingunum í fjölda ára. SIGURMARK Federico Macheda skorar hér sigurmark United gegn Villa í fyrra. Villa vann United síðast í deildinni árið 1995. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES LEIKIR HELGARINNAR Laugardagur: Stoke - Wigan Birmingham - West Ham Bolton - Man. City Burnley - Fulham Chelsea - Everton Hull - Blackburn Sunderland - Portsmouth Tottenham - Wolves Man. Utd - Aston Villa Sunnudagur: Liverpool - Arsenal Vínlandsleið 6-8 113 Reykjavík Opið: Virka daga kl. 11-18 Laugardaga kl. 11-16 Sunnudaga kl. 12-16 FRÁBÆR VERÐ! Puma First Round Stærðir 36-41 Verð kr. 16.990 Puma First Round Stærðir 37-41 Verð kr. 16.990 Puma First Round Stærðir 36-39 Verð kr. 16.990 Puma Etoile Fade Stærðir 36-41 Verð kr. 12.990 K-Swiss götuskór Stærðir 37-41 Verð kr. 13.990 Vans götuskór Stærðir 41-46 Verð kr. 14.990 Puma rennd peysa Stærðir XS-M Verð kr. 11.990 Puma bakpokar Mikið úrval Upprunalegt verð er breytilegt milli poka Outlet verð: Kr. 11.9 90 O utlet ve rð: Kr. 11.9 90 Outlet verð: Kr. 8.99 0 Ou tlet ver ð: Kr. 11.9 90 Outlet verð: Kr. 6.99 0 Ou tlet ver ð: Kr. 7.99 0 Outlet verð: Kr. 2.99 0 Ou tlet ver ð: Kr. 7.99 0 HANDBOLTI Þórir Ólafsson verð- ur frá næstu tvær vikurnar að minnsta kosti eftir að hann reif vöðva í kálfa á æfingu með þýska úrvalsdeildarfélaginu Tus-N-Lübb- ecke nú fyrr í vikunni. Hann fór í sneiðmyndatöku í gær þar sem hann fékk þetta staðfest. „Ég held að það sé ljóst að þetta mun kosta að ég verði frá næstu tvær vikurnar hið minnsta. Það vill oft gerast að leikmenn fara of snemma af stað eftir svona meiðsli og því vil ég gefa þessu nægan tíma,“ sagði Þórir við Fréttablað- ið í gær. „Þetta er óneitanlega svekkj- andi því tímasetningin er mjög slæm. Fram undan eru afar mik- ilvægir leikir í deildinni og ekki bætir þetta mína möguleika á að komast á EM í Austurríki,“ bætti hann við. Þórir hefur átt frábæru gengi að fagna á árinu. Hann hefur náð sér afar vel á strik með sínu félagsliði en þar er hann orðinn fyrirliði. Hann hefur einnig verið fastamað- ur í landsliðinu á árinu og þar til hann meiddist þótti mjög líklegt að hann myndi halda sínu sæti í landsliðinu og spila á EM. Þórir segir að þó það sé lík- legt að hann verði orðinn heill af meiðslum sínum þegar landsliðið hefur æfingar í byrjun janúar er slæmt að missa af leikjunum fram undan í þýsku úrvalsdeildinni. „Ég vildi auðvitað vera í mínu besta mögulega standi þegar und- irbúningurinn hefst fyrir EM. En það verður bara að koma í ljós hvernig það fer. Ég reyni að vera bjartsýnn og gera mitt allra besta til að halda mér í sem bestu formi.“ - esá Þórir Ólafsson verður frá næstu vikurnar: Tímasetningin slæm ÞÓRIR ÓLAFSSON Þakkar hér áhorfendum fyrir stuðninginn að loknum leik með TuS- N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í haust. Þórir er fyrir miðju. NORDIC PHOTOS/BONGARTS SUND Íslenska boðsundssveit- in hafnaði í áttunda sæti af tíu þjóðum í 4 x 50 metra skriðsundi á EM í stuttri laug í Istanbul í Tyrklandi. Íslenska sveitin missti þær írsku fram úr sér á loka- sprettinum en stelpurnar settu nýtt Íslandsmet með því að synda á 1:42,88 mínútum. Ragnheiður Ragnarsdótt- ir synti fyrsta sprett og var í sjötta sæti eftir fyrstu fimm- tíu metrana eftir að hafa verið aðeins 3/100 hlutum frá því að jafna Íslandsmet sitt. Ragnheið- ur synti á 24,97 sekúndum. Ingi- björg Kristín Jónsdóttir, Hrafn- hildur Lútersdóttir og Inga Elín Cryer tóku síðan við af henni og kláruðu þetta sögulega sund. Gamla landsmetið var orðið fimm ára gamalt eða frá því íslenska boðsundssveitin synti á 1:46,97 sekúndum í Vín 9. desem- ber 2004. Holland vann gull á nýju heimsmeti en sveitin synti á 1:33,25 mínútum. Fyrr um daginn kepptu þrír Íslendingar í fjórum greinum í undanrásum. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson var sá eini sem bætti sig en það gerði hann í 50 metra baksundi. Hrafnhildur (200 m bringusund) og Inga (800 m skriðsund) voru nokkuð frá sínu besta í greinunum. - óój Heimsmet í boðsundi: Ísland í 8. sæti SIGURSVEITIN Sveit Hollands fagnaði sigri í boðsundinu í gær en hún setti um leið nýtt heimsmet í greininni. NORDIC PHOTOS/AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.