Vikan


Vikan - 07.09.1961, Blaðsíða 22

Vikan - 07.09.1961, Blaðsíða 22
Herbergið Það verður að nota plássið vel, þegar her- bergið er lítið. En þessi stúlka hefur það, sem er nauðsynlegt og þar að auki huggulegt. Hún hefur fjölda af púðum á dívaninum, og þeir eru einnig notaðir sem sæti á gólfinu, þegar krakk- arnir koma í heimsókn. Falleg hengiplanta í fuglabúri og standlampi með áföstu litlu borði gera herbergið vistlegt og sérkennilegt. Bréfaviðskipti Ólöf FriSfinnsdóttir, Mararbraut 13, Húsavík, S.-Þing., óskar eftir bréfaviðskiptum við pilta á aldrinum 16—17 ára. — Guðfinna Guðlaugsdóttir, Maria Arnlaugsdóttir og Vallý Sigurðardóttir vilja skrifast á við pilta á aldrinum 21—25 ára og Þórður Þórðarson við stúlkur á aldrinum 17—21 árs. Þau eru öll á pósthúsinu í Keflavík. — Björg Lötveit, Nygárdsvikveg 36, LakSevag, Norge, Jangar til að skrifast á við pilta og stúlkur á aldrinum 17—19 ára. Áhugamál hennar eru teiknun, bækur, hljómlist, leikhús, kvik- myndir, iþróttir og útilíf. Hún ætti ekki að eiga erfitt með að finna sér pennavin með sameiginleg áhugamál, og hún skrifar á norsku, dönsku eða ensku. — Sigrún Grímsdóttir biður um adressu einhvers norsks blaðs, og hér er ein, sem við vonum, að gagni: Norsk Ukeblad, Sörkedalsvn. 10A, Oslo NV. — Annars gæti hún skrifað til Bjargar, hér að ofan. ÍF~I£>> Elvis Presley Elvis Presley var ný- lega spurður af blaða- manni, hvers konar stúlku hann vildi gift- ast, þegar þar að kæmi. Hér er svarið: Auð- vitað gifti ég mig, þeg- ar þar að kemur og þeg- ar hin rétta birtist. Háraliturinn skiptir að minnsta kosti engu máli. Hún getur verið rauð- hærð eða ljóshærð, brúnhærð eða svart- hærð. Aðalatriðið er, að hún sé í sannleika kvenleg. Ég ætlast til þess, að konan min líti upp til mín, ekki sem goðs á stalli, heldur eins og hver góð kona lítur upp til mannsins síns, vegna þess að hann er nú einu sinni sá sterkari, — sá, sem veitir henni öryggi og ber ábyrgð á velferð hennar. Það er á fleiri stöðum en Islandi, sem hljómsveitir ferðast um i furðu- legum bílum, máluðum með alls kon- ar myndum og hendingum. Þeir mundu víst ekki kippa sér mikið upp fyrir norðan, þó að einn bíllinn enn kæmi þangað svona útlits. Þessir eru bara óvart ekki íslenzkir, heldur banda- riskir og heita Johnny and the Hurri- canes. Þeir eru heimsfrægir og að segja má eingöngu fyrir „rock“. Þeir voru ein af þeim gorkúlum, sem þutu upp á tímum „rocksins“ og hafa haldið velli síðan. Söngvari er enginn með hljóm- sveitinni, þeir treysta eingöngu á hljóðfærin, og eins og sjá má, eru gít- ararnir tveir, svo að hann er aðalhljóð- færið. Leik þeirra hefur einhvern tima verið lýst þannig, að þeir séu blátt áfram og harðir af sér, taktmiklir og 'þersónulegir. Og annar gagnrýnandi sagði, eftir að hann hafði heyrt í þeim: Áður hét það lag og taktur, nú er það taktur og lag. — Ein af skemmtilegustu plötum þeirra er Red River Rock, en það er hið gamla, góða lag Red River Valley, og þótt furðulegt megi virðast, hefur lagið sloppið nokkurn veginn óbrenglað gegnum hreinsunareld „rocksins", nafninu var aðeins eilítið breytt. Það eru Johnny and the Hurri- canes sjálfir, sem sjá um útsetningu laga sinna. Hér er svo virðulegri mynd af hljóm- sveitinni. 22 VIKAN ÞAÐ VAR FAÐIRINN, SEM BYRJAÐI. — Þetta er pabba að kenna, segir Frankie Avalon og brosir feimnislega. — Hann er mjög músíkalskur, og þegar hann var ungur, hafði hann eigin liljómsveit, sem vann fjölda- mörg verðlaun í samkeppnum. Hann hafði í huga að gerast hljómlistarmaður að at- vinnu, en fannst of áhættusamt að segja upp góðri stöðu, — ekki síður vegna þess, að hann giftist mömmu mjög ungur. Svo kom eldri systir mín, Teresa, til sögunnar, og þá gerði pabbi út af við alla drauma um hljóm- listarbrautina. — Mamma er einnig mjög söngvin. Hún söng með skólahljómsveit, áð- ur en hún kynntist pabba, en þegar ég og Teresa komum í heiminn, sneri hún sér al- veg að lieimili og börnum. Allir vinir for- eldra minna eru samt með söng- og hljóm- listardellu, og alla ævi hef ég haft söng og hljómlist í kringum mig. Mamma vildi lika, að ég syngi, og pabbi vildi, að ég spilaði. Þe-ss vegna gaf hann mér trompet, en ég nennti ekki að æfa mig á hann, ég vildi heldur leika mér. Og mamma gat ekki held- ur fengið mig til að syngja þá söngva, sem hún hafði kennt mér, þegar gestir voru. MAMMA KOM MÉR AF STAÐ. — Við bjuggum i iFiladelfíu, og einu skiptin, sem ég söng opinberlega, voru, þeg- ar við fóruin í kirkju: Pabbi vildi endilega koma mér i drengjakór kirkjunnar, en ég vildi það ekki. — Svo Jar það dag nokkurn, að við mamma vorum úti að verzla. Við settumst inn í stórt veitingahús til að hvíla okkur svolítið og fengum okkur ís. Þarna voru skemmtiatriði, og liljómsveitarstjórinn sagði, að ef einhver börn væru í salnum, sem vildu koma upp á sviðið og skemmta, þá skyldu þau fú stóra súkkulaðikringlu hvert. Og siðan áttu áheyrendur að velja þann bezta, og vinningurinn var kúrekaföt og 25 dollarar. Mér fannst súkkulaðikringlur mjög góðar, en var samt efins. Þá ýtti mamma vingjarnlega i mig, svo að ég stóð á fætur, og hijómsveitarstjórinn brosti og kallaði á mig. Ég var dauðfeiminn, en kynn- irinn gat samt haft upp úr mér, að ég kynni nokkur lög utan að. Og svo fékk hann mig til að syngja nokkur þeirra. Fyrst söng ég svo lágt, að enginn heyrði neitt, en þá hélt hann magnaranum alveg upp í andlitið á mér, og hljómsveitin hætti að spila, og allt i einu söng ég hástöfum. Fólkið hló og klappaði, ég fékk súkkulaðikringluna, en svo var ég kallaður upp aftur og féklc kúrekafötin og peningana. Og nú varð ég að syngja Give Me Five Minutes More og Nevertlieless einu sinni til.. Þarna kom ég fram í fyrsta skipti. En mamma gat samt ekki fengið mig til að syngja fyrir gesti heima, ég var enn þá of feiminn. Samt byrjaði ég í kyrrþey að æfa mig á trompetinn. TROMPETINN AFLAÐI MÉR MEIRI YERÐLAUNA. — Ásamt nokkruin skólafélögum stofnaði ég hljómsveit, og við.lékum á dansæfingum og seinna einnig á dansleikjum. Við tókum einnig þátt í kappmótum og sigruðum á mörgurn þeirra. Perry Como var dómari í einu þeirra og bauð mér að leika einleik í einum af sjónvarpsþáttum sinum. Ég kom einnig fram hjá Paul Whiteman og Jackie Gleason, en svo nennti ég ekki að vinna meira og einbeitti mér í staðinn að skól- FRANKIE AVALON segir fáein orð um sjálfan sig. Flestir unglingar kannast við dönsku lukkutröllin, þessa litlu, feitu, en ómótstæðilegu karla. Stúlkan þarna á myndinni heitir Lajla, en það er faðir hennar, sem býr tröllin til. Hún lijálpar upp á með því að klæða þau, greiða þeim, fægja á þeim nefið og setja skemmtilega spékoppa í kinnar þeirra. Þarna eru mörg þeirra að fara í heimsókn á veitingakrá, en það tilheyrir uppeldinu. Þeir verða jú að læra að haga sér vel, þegar þeir fara út ... Byrjunin á þessu öllu saman var sú, að pabbi Lajlu var vanur að segja henni sögur um tröllin, sein byggju í fjöllunum, og auðvitað varð Lajla að fá að sjá tröllin. Og árangur af hugmyndaflugi þeirra beggja varð svo þessi. Nú skreyta þessir litlu, skemmtilegu karlar unglingaherbergi út um allan heim. STOFNAÐI KLUBB. — Félagar mínir héldu þó áfram að æfa, og þeir fengu mig með aftur. Og dag nokk- urn komumst við að því, að okkur vantaði táningaklúbb i götunni. Við fengum leyfi til að innrétta nokkur herbergi i kjallara í einni blokkinni og höfðum opið hús þrisvar í viku. Það var dálítið erfitt fyrir okkur að sjá um skemmtiatriðin á eigin spýtur, én það kom svo mikið af hljómlistarmönnum og söngvurum heim til mín, —■ vinir foreldra minna, — og þeir komu öðru hverju og skemmtu. Tveir af beztu vinum pabba voru textahöfundurinn Bob Marcucci og tónskáldið Peter de Angelis. Þeir bjuggu til nokkur lög handa okkur, og fljótlega talaði ekki aðeins öll gatan um okkur, heldur allur bærinn. Við komum fram í útvarpi og sjónvarpi, og Bob frændi og Pétur frændi, eins og ég kallaði þá tvo, skrifuðu samning við mig og útveguðu mér starf á hljómleikum og sáu um, að ég söng inn á fyrstu plötur mínar fyrir plötufélagið California. Það urðu metsöluplöt- ur, — og síðan fór allt af stað. Hollywood sendi eftir mér og Broad way, og Pe-rry Como tók mig upp að nýju i sjónvarpsþætti sínurn. Hið fyrsta, sem ég söng, voru lögin Cupid, Teachers Pet, Shy Guy, Ginger Bread, Venus og Bobby Sox. Siðan söng ég inn á hæggengis-plötur, og þegar aðdáenda- bréfin byrjuðu að streyma inn, voru stórar myndir af mér settar á plötu- umslögin og stór andlitsmynd af mér í litum, sem stúlkurnar áttu að geta hengt upp á vegg. Hið nýjasta er hæggengis-plata, sem hÖggmynd af mér fylgir með. Hvað ætli verði næst? EINKENNILEG TILFINNING AÐ VERA FRÆGUR. — Ég var allt í einu orðinn frægur, og það er einkennileg tilfinning, þegar maður á annað borð er dauðfeiminn. Auglýsingastjórarnir kunnu þó ráð við því og undirstrikuðu einmitt feimni mína. Það var sérstaklega lögð áherzla á hana, þegar þeir fundu Fabian og auglýstu hann sem mótsetningu. Skömmu seinna komust þeir að raun um, að ég ætti ekki að syngja rokk, heldur eitt- hvað rómantískara. Smám saman fór ég meira út í annað, og það er ágætt, þvi að það hæfir mér betur. Það er kannski þess vegna sem Frank Sinatra og Pat Boone eru eftirlætissöngvarar mínir. Það er auðvitað skemmtilegt að vera frægur, en það getur verði dá- lítið þreytandi. Ég get ekki ferðazt í lest eða flugvél án þess að hitta ein- hverja af aðdáendum mínum, og hvað sem ég er þreyttur, verð ég að vera glaðlegur og vingjarnlegur. Ég hef ekki ástæðu til annars, og aðdáendur mínir ætlast til þess af mér. Alls staðar hitti ég vingjarnlegar manneskjur, sem óska þess, að ég segi þeim allt um sjálfan mig. EINKALÍFIÐ. — Ég er jú ekki mjög gamall, svo að ég er ekki trúlofaður. Ég er ekki einu sinni með sérstakri stúlku. En auðvitað fer ég út og skemmti mér, þegar ég get. Ég skil vel núna, að pabbi hafi orðið að segja skilið við frama- brautina, þegar hann giftist mömmu og eignaðist barn. Sé maður á annað borð i „showbusiness“, hefur maður ekki tíma til einkalífs. Ég nýt þess að geta eytt einu og einu notalegu kvöldi með foreldruin mínum og Teresu. Ég á indælan „lassie“-hund, sem heitir De-De, því að ég féklc hann, þegar lag mitt De De Dinah sló öll sölumet. Mér finnst gaman að leika knattspyrnu með strákunum heima i Fíladelfíu, og ég Framhald á bls. 30. VIKAN 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.