Vikan - 07.02.1963, Page 23
FEGURSTU
INGAR
VISSULEGA geta drottningar verið
fagrar, þótt þær séu ekki fegurðar-
drottningar, það sanna þessar
myndir, sem við birtum héma á síð-
unni. Það mundu margar svokallaðar
fegurðardrottningar þakka sínum sæla, ef
þær væru eins fallegar og sumar hverjar
aivöru-drottningarnar.
Erlendur blaðamaður gerði það að
gamni sínu fyrir nokkm, að birta þessar
myndir í blaði sínu, og láta svo sem þær
væm í fegurðarsamkeppni sín á milli, og
bjó t'il snotra lýsingu á því er þær gengu
upp á sýningarpallinn, hver á fætur annari
til að sýna sig og keppa um titilinn:
Heimsins fegursta drottning.
Sir Winston Churchill var kynnir og
dómari, enda var þetta gert á 88 ára af-
mælisdag hans 30. nóv. s.l.
Það voru fyrst mikil vandræði með að
ákveða hvaða drottning ætti fyrst að
ganga upp á pallinn, en einhver úrræða-
góður náungi bjargaði málinu við með
því að stinga upp á því snjallræði, að sú
drottningin, sem lengst hefði setið í veldis-
stóli, skyldi fyrst ganga upp á pallinn.
Þess vegna var það, að Elizabeth Eng-
landsdrottning gekk fyrst virðulega upp á
pallinn, sneri sér í nokkra hringi til að
sýna sig mannfjöldanum, og settist svo
virðulega í eitt hásætanna, sem þar hafði
verið komið fyrir.
Síðan komu þær hver af annari, Sirikit
drottning í Thailandi, Grace frá Monakko,
Farah keisaraynja frá Persíu, Fabíóla
Beigiudrottning og lo'ks Jacqueline Kenne-
Jacqueline Kennedy.
DROTTN-
í HEIMI
dy forsetafrú Bandaríkjanna.
Greinin skýrir ekki frá því hvernig úr-
slitin urðu, enda hefðu vafaiaust orðið úr
því æðisleg mill'iríkjamál og kalt stríð, ef
ekki heil heimsstyrjöld, því alltaf hefði ein-
hver móðgazt.
En það er ekkert á móti því, að þið ger-
ið ykkur e'inhverja skoðun á því, hverja
þið munuð kjósa í fyrsta sæti, annað
o. s. frv., — en varizt bara að láta nokk-
urn vita um álit ykkar, því það gæti orð-
ið dýrt — ef einhver móðgast.
Sirikit.
Grace furstafrú.
Fabiola.
- 23
VIKAN 6. tbl.