Vikan


Vikan - 07.02.1963, Side 24

Vikan - 07.02.1963, Side 24
llrog n á ým§a vegrii Bezt er aS sjóða hrognin í málmpappír og má búa til einn eða fleiri pakka í pott- inn, eftir því sem henta þykir. Það verður að loka pökkunum vel, sérstaklega ef hrognin eru ekki heil, en þeir eru svo lagðir hlið við hlið í pott með sjóðandi saltvatni. Þau eru soðin í nákvæmlega hálftíma. Sé húðin höfð á þeim, eftir að þau eru soðin, eru þau sneidd niður, heit eða köld, en sé húðin tekin af þeim, má hræra alls konar krydd saman við þau. Það má þó ekki vera of mikið, svo að bragð hrognanna fái að njóta sín. Rifinn laukur er gott krydd í hrogn og salt og pipar er sjálfsagt að nota. Sítrónusneiðar eru góðar með hrognum hvernig sem þau eru matreidd. Hrogn eru mjög góður og næringarríkur matur, en í þeim er sér- staklega mikið af A-bætiefni — jafnmikið og í þorskalifur. Uppskriftirnar hér á eft- ir eru ætlaðar fyrir fjóra. SÍLD f HROGNFARSI. 6 síldir, 250 gr hrogn, 1 lítill laukur, 100 gr sveppir, 2 matsk. rasp, 1 egg (eða tvær eggjahvítur), 2 tsk. salt, pipar, % dl soð af hrognum, 50 gr smjörlíki. Beinin tekin úr síldinni og hún flökuð í tvennt. Húðin er tekin utan af hrogn- unum og laukurinn og sveppirnir rifnir á rifjárni. Búið til fars úr hrognunum, lauknum, sveppunum, raspinum, egginu, salti og pipar, allt hrært vel saman og smurt á hvert síldarflak, sem síðan er rúllað upp frá sporðinum og rúllurnar lagðar í eldfast fat. Ef afgangur er af fars- inu er það lagt inn á milli síldarflakanna, eða í mitt fatið. % dl af hrognasoði hellt yfir og soðið í ofni í 15—20 mín. við 170—200 gr. hita. Ristað brauð borið með. '©> IIROGNRÖND. 250 gr hrogn, svolítið soð af hrognun- um, 7 blöð matarlím, 1 tsk. salt, pipar, sítróna, humarlitur, 200 gr majones. Hrognin eru soðin og tekin af þeim húðin. Þau eru hrærð með það miklu soði, að úr þessu verði hálfur líter. Matarlímið sett í með sítrónu- safa, kryddað með salti og pipar. Hellt í hring- form, sem skolað hefur verið með kðldu vatni. Þegar það er orðið stíft er því hvolft á fat. Majones má búa til þannig: MAJONES. 2 dl matarolía, 2 eggjarauður, 1 tsk. franskt sinnep, 1 tsk. salt, pipar, 1 tsk. edik, 1 tsk. rifinn laukur, 2 rifnar sultaðar gúrkur, 1 tsk. brún sósa (H.P. eða Worcestershire). Sinnepið þeytt saman við eggjarauðurnar og olían látin drjúpa í. Kryddað með öllum hinum efnunum og sett inn í hrognhringinn. Rund- stykki eða ristað brauð borið með. AIOLI (franskur réttur fyrir 12 manns). % kg rauðsprettuflök, % kg þorskflök, 250 gr hrogn, 2 tómatar eða tvö rauð piparhulstur, 1 gúrka, 4 gulrætur, 1 salathöfuð, 25 gr smjör- líki, 400 gr majones, sem helzt hefur verið lituð gul. í þessari gömlu frönsku uppskrift er not- aður hvítlaukur í majonessósuna, en þeir sem ekki kæra sig um bragðið af honum, geta notað venjulegan rifinn lauk. Aioli getur verið veizluréttur ef rauðvín er borið með, á eftir er gott að hafa ostabakka og einhvern léttan ábætisrétt. Kartöflur og rauð- beður eru hafðar með réttinum. Fiskflökin soðin í 3—4 mínútur, vatnið látið renna af þeim og þau kæld. Hrognin soðin, kæld og skorin í sneiðar. Gulræturnar skafnar og skornar í mjög þunnar sneiðar, sem eru soðn- ar í smjörlíki í 10—15 mín., en ekki saltaðar. Fræin tekin innan úr rauða piparnum og hann skorinn í sneiðar, sömuleiðis tómatarnir og gúrkan (nota má sultaða gúrku, ef ný er ekki til). Salathöfuðið tekið í sundur og hreinsað og látið þorna vel. Majonessósan hrærð og krydduð vel (svipað og í uppskriftinni hér að framan) og lituð gul. Síðan eru salatblöðin lögð á fat, þar næst gulræturn- ar, fiskflökin og hrognin, tómatar og gúrk- ur. Majones sett yfir, en ekki þakið með henni, svo að sjá megi allt sem er í rétt- inum. HROGNSXENGUR. Ca. 200 gr hrogn, u. þ. b. 200 gr kart- öflur, 200 gr hakkað spínat, 1 lítill laukur, 1 matsk. salt, pipar. Kartöflur og hrogn soðin sitt í hvoru lagi, hrognin afhýdd og kartöflurnar mósaðar. Því síðan hrært saman og rifni laukurinn, salt og pipar sett í. Engan vökva á að láta í deigið, því að það á að vera Þykkt. Búnar til 8—10 cm langar stengur, sem velt er upp úr raspi og eggi og steiktar ljósbrúnar í smjörlíki á pönnu. Þar sem bæði hrognin og kartöflurnar eru soðin, þarf það rétt að brúnast og er borið fram strax með spínati. Sítrónusneiðar eru góðar með þessu. LJÓSRAUÐ HROGN. 500 gr hrogn, humarlitur, % tsk. sinneps- duft, 3 matsk. olía, 1 matsk. edik, % tsk. salt, kapers og sítrónusneiðar til þess að skreyta með. Hrognin soðin og húðin tekin af þeim. Humarlitnum, sinnepinu, edikinu, olíunni og saltinu bætt í og hrært saman. Sett í kringlótt eða ílangt form, hvolft úr því, þegar það hefur rétta lögun, og sett á fat og skreytt með kapers og sítrónu- stykkjum. Skorið í sneiðar og borðað með ristuðu brauði og smjörkúlum. GÓÐUR MIÐNÆTURMATUR. 8 sneiðar franskbrauð, 8 sneiðar steiktar Framhald á bls. 41. & •Ö? 24 — VIKAN 6. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.