Vikan - 21.03.1963, Qupperneq 3
I ÞESSARI VIKU
Útgelatiai Hilmir ii. I.
Ritstjóri: /
Gisli SiffwrSsson (ábm.).
Auglýsingastjóri:
Jóna Sigurjónsdóttir.
BlnSamemt:
GuSmnndiir Sarlsson os
SigurSnr Hreiðar.
Útlitsteikning:
Snorri Frsðriksson.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33.
Símar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreiösla og dreifing:
Blaöadreifíng, Laugavegi 133, simi
36720. Dreifingarstjóri Oskar Karlsson.
Vevö f lausasölu kr. 20. Askriítarverð
er 250 kr. ársþriðjungslega, greiöist
íyrirfram. Prentun Hilrnir h. f. Mynda-
mót: Rafgraf h. f.
Í 'NÆSTA BLAÐI
ÞAÐ ER TÍZKA AÐ TRÚA EKKI.
Vikan ræðir við sr. Emil Björnsson um
stöðu kirkjunnar í nútíma þjóðlífi,
kirkjusókn, skírn og fermingu og margt
annaö, sem þessum málum heyrir til.
í SKAMMDEGISFJÖTRUM. Mjög at-
hygSisverð saga eftir Rick Rubin um
ungan mann sem verður haldinn und-
arlegri geðveilu; bilar í kapphlaupinu
um frama í stóru fyrirtæki, leggst í
rúmið, bindur fyrir augu og eyru og
svo ...
LAUSNARGJALDIÐ. Smásaga eftir
hinn heimskunna höfund Pearl S.
Buck. Hún fjallar um barnsrán og
viðbrögð foreldranna.
FEGURÐARSAMKEPPNIN. Nú er það
keppandi nr. 4 í úrslitum og hún heitir
Thelma Ingvarsdóttir. Hún er nú sem
stendur fótómódel í Kaupmannahöfn
og París.
ÆTLARÐU Á LÝÐHÁSKÓLA? Vikan
hefur talað við Bjarna M. Gíslason um
danska lýðháskóla og Bjarni segir allt
af létta um þessar menntastofnanir.
VARAHLUTIR í HJARTAÐ. Fram til
þessa hefur reynzt ófært að bjarga því,
þegar hjartalokur bila. En nú eru þær
einnig búnar til. Grein og myndir.
LIÐSVEIT MYRKURSINS. IV. hluli.
FORSÍÐUMYND: Barnahópur framan
við kirkju Óháða fríkirkjusafnaðarins.
ER NÝR FLUGVÖLLUR
ÆSKILEGUR?
Flugvélarnar vcrða stærri og stærri, byggingarnar
hækka í kringum gamla Reykjavíkurflugvöllinn
og nú hefur verið gripið til þess að leggja braut út í sjó.
Vikan hefur leitað álits hjá níu mönnum, sem fiestir
eru tengdir fluginu á einhvern hátt.
AÐ ELSKA NÁUNGANN.
Ekkert er eins þreytandi og það þegar ekkert gerist.
Þá verður að Ieita að fréttaefni og reiðhjól nágrannans hjá
húsi grannkonunnar verður grunsamlegur hlutur.
Sérstaklega þegar það stendur þar dag eftir dag. Svoleiðis
hneyksli lætur maður ekki viðgangast ef maður
elskar náungann.
Smásaga cftir Unni Jörundsdóttur.
ÉG FER ALDREI Á ÚTSÖLUR.
Ónei, karlmenn fara ekki á útsölur. Ég lít þar kannski
inn af forvitni, en ég kaupi aldrei neitt af þessu
útsölurusli, nema það séu alveg afbragðsflíkur,
sem augsýnilega hafa lent þar fyrir mistök.
Grein og myndafrásögn.
SONJA EGILSDÓTTIR
er jafngömul lýðveldinu, ung og falleg stúlka,
sem stundar nám í Verzlunarskóla íslands. Hún er nr. 3
í úrslitum og myndir af henni sjáið þið
hér í blaðinu.
fílDCÍ D A II Að Þessu sinni birtum við forsíðumynd innan úr Vatnagörðum
I* |J || ^ | fj f\ |t| við Viðeyjarsund. Esjan er að baki. Þetta er eftirlætisstaður
fyrir unga elskendur — meðan ekki er búið að fylla þar allt
af pússningasandi — og þið sjáið að þetta unga fólk, sem lieitar einverunnar, hefur
sannarlega framhærilegan farkost meðferðis. Það er Singer Vogue, einn sá ágætasti bíll,
sem unnt er að fá fyrir 182 þúsund og vel þess virði: Vélin er 62 hestöfl, 4 strokka og
framaní. Skipting er ýmist í stýri eða gólfi. Bíllinn er fimm manna, unaðslegur í akstri
og vinnur mjög vel. Þið sjáið, að hann hefur mjög virðulegan svip. Lengd hans er 4.19 m
og dyr fjórar. Guðbjartur Pálsson í Bílaleigunni Bíllinn hefur nokkra slíka bíla í
leigu og mælir mjög með þeim. Umboð fyrir Singer Vogue hefur Raftækni h.f., á homi
Nóatúns og Laugavegar.