Vikan - 21.03.1963, Blaðsíða 30
JHodel
Buxnabeltið MODEL 620 er
f ramleitt úr 1. f lokks amerískrj
nylonteygju.
Einkar vinsælt undir kvöld-
kjóla og síðar, þröngar buxur.
Fyrsta flokks snið og vinna.
Stærðir: Small - Medium -
Large.
Litur: Hvítt, en væntanlegt
í svörtu.
Dömur: Kaupið MODEL 620 og sannfærist um
ágæti þess.
Dömur: Biðjið um MODEL 620, það fæst í flestum
vefnaðarvöruverzlunum um land allt.
Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co., h. f.
Reykjavík.
Framleiðandi:
LADY H.F.
Líf stykk j averksmiðj a.
Laugavegi 26. — Sími 10-11-5.
II
4
’DLiPftar
Stjörnuspáin gildir írá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið' (21. marz—21. apríl): Þar sem þú ert
fæddur undir þessu merki ertu að eðlisfari mjög
skarpskyggn og úrræðagóður og munu þessir hæfi-
leikar þínir fá tækifæri til að njóta sín þessa vik-
una, hvort sem þú ert heima eða heiman. Láttu
öfundarmenn þína ekki hafa of mikil tök á þér.
Nautsmerkið (22. apríl—21. maí): Ef þú kemst að
hvaða persónur eru þér óvinveittar, þrátt fyrir
smjaður þeirra og góða hæfileika til að villa á sér
heimildir, muntu núna næstu daga geta komið þér
mjög vel fyrir. En gættu þess að hafa augun vei
opin og tala ekki af þér.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú munt verða
að beita öllu þínu viljaþreki til að ná settu marki,
og mikið undir sjálfum þér komið að þú náir því,
þó að stjörnurnar séu þér vinveittar. Bjartsýni og
samneyti við góðan félaga mun verða þér til mikils
gagns og léttis. Misstu ekki trúna á hæfileika þína.
Krabhamerkið (22. júní—23. júlí): Þú hefur eitt-
hvert erfitt verkefni til úrlausnar og kemst í tals-
verð vandræði með það sökum skorts á hugkvæmni.
Heima hjá þér verður þér eitthvað á sem þú get-
ur þó fljótt kippt i lag. Þú ættir ekki að tefla á
neina tvísýnu í fjármálum.
Ljcnsmerkið (24. júlí—24. ágúst): Þar sem þér er
Gk alltaf að detta eitthvað nýtt í hug, gæti svo farið
^ að einhverjar breytingar verði á vinnustað eða á
9 heimili þínu. Regluseml þín og útsjónarsemi fá nú
gott tækifæri til að haldast í hendur og skapa þér
betri aðstöðu, en þú nú hefur.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. september): Skemmti-
©legar stundir með þínum nánustu, vinnufþlögum
eða vinum, lífga vikuna heilmikið upp. Eitthvert
óhapp getur hent þig, vegna þinna eigin gerða. Ráð_
legt er að halda sig sem mest heima fyrir. Heppilegt
væri að halda smáboð í byrjun vikunnar.
Vogarmerkið (24. september—23. október): Þú færð
tækifæri til að sýna hæfileika þína í vikunni ef
þú hugsar skarplega og ferð að hlutunum með gát.
Gættu þess að láta fljótfæmina ekki hlaupa með
þig í gönur. Þú ættir að dveljast meðal rólegri
hóps félaga þinna og láta skemmtanir liggja á milli hluta.
Drekamerkið (24. október—2. nóvember): Þú skalt
vera opinskárri við þína nánustu og leita ráða hjá
þeim. Vikan er ekki heppileg fyrir þá sem láta
sína eigin duttlunga ráða. Láttu ekki sérvizku þína
spilla fyrir þér. Þú hefur hæfileika til að sannfæra
fólk um ótrúlegustu hluti vegna mælgi þinnar og slepptu
henni núna.
Bogmannsmerkið (23. nóvember—21. desember): Þér
eldri persóna eða yfirmaður er ekki sem ánægð-
W&' S ust með frammistöSu þíha. Vertu rólegur og þolin-
»• rnóður, því málin eiga eftir að skýrast þér í vil.
Gættu þin á öllum bréfaskriftum, það eru líkur
til þess að skoðanir þínar verði rangtúlkaðar.
Geitarmerkið (22. desember—20. janúar): Gættu
þín i öllum viðskiptum. Einhver sem þú umgengst
mikið gerir sig líklegan til að bregða fyrir þig fæti.
V íj Þú skalt ekki hafa þig mikið í frammi og vera
minnungur takmarkanna þinna. Vinur þinn gerir
þér greiða sem þú færð fljótlega tækifæri til að endur-
gjalda.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar): Þú hef-
ur lengi trassað að heimsækja kunningja þinn sem
hefur þráfaldlega boðið þ0r heim. Láttu hann nú
ekki verða að ganga á eftir þér lengur. Þú munt
hafa gaman af ferðinni og frétta eitthvað sem lík-
legt er að þér finnist matur í.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz): Þú hefur verið
©í vondu skapi undanfarið en nú fer að lyftast á þér
brúnin. Amor er hliðhollur ástföngnu fólki sem
fætt er undir þessu merki, en ekki er ráðlegt að
stofna til nýs ástasambands í vikunni. Þú ættir að
geta skemmt þér vel á miðvikudag.
m
30
VIKAN 12. tbl.