Vikan


Vikan - 21.03.1963, Page 30

Vikan - 21.03.1963, Page 30
JHodel Buxnabeltið MODEL 620 er f ramleitt úr 1. f lokks amerískrj nylonteygju. Einkar vinsælt undir kvöld- kjóla og síðar, þröngar buxur. Fyrsta flokks snið og vinna. Stærðir: Small - Medium - Large. Litur: Hvítt, en væntanlegt í svörtu. Dömur: Kaupið MODEL 620 og sannfærist um ágæti þess. Dömur: Biðjið um MODEL 620, það fæst í flestum vefnaðarvöruverzlunum um land allt. Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co., h. f. Reykjavík. Framleiðandi: LADY H.F. Líf stykk j averksmiðj a. Laugavegi 26. — Sími 10-11-5. II 4 ’DLiPftar Stjörnuspáin gildir írá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið' (21. marz—21. apríl): Þar sem þú ert fæddur undir þessu merki ertu að eðlisfari mjög skarpskyggn og úrræðagóður og munu þessir hæfi- leikar þínir fá tækifæri til að njóta sín þessa vik- una, hvort sem þú ert heima eða heiman. Láttu öfundarmenn þína ekki hafa of mikil tök á þér. Nautsmerkið (22. apríl—21. maí): Ef þú kemst að hvaða persónur eru þér óvinveittar, þrátt fyrir smjaður þeirra og góða hæfileika til að villa á sér heimildir, muntu núna næstu daga geta komið þér mjög vel fyrir. En gættu þess að hafa augun vei opin og tala ekki af þér. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú munt verða að beita öllu þínu viljaþreki til að ná settu marki, og mikið undir sjálfum þér komið að þú náir því, þó að stjörnurnar séu þér vinveittar. Bjartsýni og samneyti við góðan félaga mun verða þér til mikils gagns og léttis. Misstu ekki trúna á hæfileika þína. Krabhamerkið (22. júní—23. júlí): Þú hefur eitt- hvert erfitt verkefni til úrlausnar og kemst í tals- verð vandræði með það sökum skorts á hugkvæmni. Heima hjá þér verður þér eitthvað á sem þú get- ur þó fljótt kippt i lag. Þú ættir ekki að tefla á neina tvísýnu í fjármálum. Ljcnsmerkið (24. júlí—24. ágúst): Þar sem þér er Gk alltaf að detta eitthvað nýtt í hug, gæti svo farið ^ að einhverjar breytingar verði á vinnustað eða á 9 heimili þínu. Regluseml þín og útsjónarsemi fá nú gott tækifæri til að haldast í hendur og skapa þér betri aðstöðu, en þú nú hefur. Meyjarmerkið (24. ágúst—23. september): Skemmti- ©legar stundir með þínum nánustu, vinnufþlögum eða vinum, lífga vikuna heilmikið upp. Eitthvert óhapp getur hent þig, vegna þinna eigin gerða. Ráð_ legt er að halda sig sem mest heima fyrir. Heppilegt væri að halda smáboð í byrjun vikunnar. Vogarmerkið (24. september—23. október): Þú færð tækifæri til að sýna hæfileika þína í vikunni ef þú hugsar skarplega og ferð að hlutunum með gát. Gættu þess að láta fljótfæmina ekki hlaupa með þig í gönur. Þú ættir að dveljast meðal rólegri hóps félaga þinna og láta skemmtanir liggja á milli hluta. Drekamerkið (24. október—2. nóvember): Þú skalt vera opinskárri við þína nánustu og leita ráða hjá þeim. Vikan er ekki heppileg fyrir þá sem láta sína eigin duttlunga ráða. Láttu ekki sérvizku þína spilla fyrir þér. Þú hefur hæfileika til að sannfæra fólk um ótrúlegustu hluti vegna mælgi þinnar og slepptu henni núna. Bogmannsmerkið (23. nóvember—21. desember): Þér eldri persóna eða yfirmaður er ekki sem ánægð- W&' S ust með frammistöSu þíha. Vertu rólegur og þolin- »• rnóður, því málin eiga eftir að skýrast þér í vil. Gættu þin á öllum bréfaskriftum, það eru líkur til þess að skoðanir þínar verði rangtúlkaðar. Geitarmerkið (22. desember—20. janúar): Gættu þín i öllum viðskiptum. Einhver sem þú umgengst mikið gerir sig líklegan til að bregða fyrir þig fæti. V íj Þú skalt ekki hafa þig mikið í frammi og vera minnungur takmarkanna þinna. Vinur þinn gerir þér greiða sem þú færð fljótlega tækifæri til að endur- gjalda. Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar): Þú hef- ur lengi trassað að heimsækja kunningja þinn sem hefur þráfaldlega boðið þ0r heim. Láttu hann nú ekki verða að ganga á eftir þér lengur. Þú munt hafa gaman af ferðinni og frétta eitthvað sem lík- legt er að þér finnist matur í. Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz): Þú hefur verið ©í vondu skapi undanfarið en nú fer að lyftast á þér brúnin. Amor er hliðhollur ástföngnu fólki sem fætt er undir þessu merki, en ekki er ráðlegt að stofna til nýs ástasambands í vikunni. Þú ættir að geta skemmt þér vel á miðvikudag. m 30 VIKAN 12. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.