Vikan


Vikan - 21.03.1963, Síða 31

Vikan - 21.03.1963, Síða 31
Er nýr flugvÖllur æskilegur? Framhald af bls. 8. byggðar í námunda við hann. Til dæmis er Bæjarspítalinn í Fossvogi í svo til miðri aðflugslínu frá austri. Vegna nærveru flugvallarins við byggð, er ónæðið vegna hávaða frá flugvélum mjög tilfinnanlegt fyrir íbúana. Þetta á ekki sízt við um sjúkrahús, en þau eru mörg stað- sett mjög nærri flugvellinum. Það er einnig farið að valda okk- ur miklum vandræðum, að geta ekki keyrt flugvélahreyfla okkar á nótt- unni í sambandi við bilanir, þótt mikið liggi við, enda hagar yfirleitt svo til, að flugvélarnar koma að kvöldi og fara að morgni, en þá þurfa þær að sjálfsögðu að hafa fengið sínar viðgerðir. Þetta er þó bara eitt lítið brot af hindrunum á þróuninni hjá okkur. Verst er það með flugskýlin, en inn í þau komum við aðeins sumum af flugvélateg- undum ,okkar til viðgerðar, nema með sérstökum hætti. Við verðum að skáskjóta þeim inn, en það tek- ur stundum fleiri klukkutíma, og er því oft heldur neyðzt til að vera við viðgerðirnar úti. En engum dettur í hug að reisa ný flugskýli á velli, sem kannski verður fluttur á morgun. Það má ennfremur benda á þá staðreynd, sem að vísu hefur kom- ið í ljós nú nýlega, að krapableyta og pollar á flugbrautum hafa mörg- um sinnum meiri stöðvunaráhrif á flugvél, sem er í flugtaki, en áður hefur verið vitað. Samkvæmt nýj- ustu rannsóknum getur eins til tveggja tommu kraplag á flugbraut hemlað hraða vélarinnar svo mikið að hún þurfi allt að 80% lengri braut til flugtaks en ella. Þetta at- riði sýnir enn betur þá nauðsyn, sem er á því að hafa lengri brautir en hér eru nú; og hindrunarlausar framundan. Ég, og starfsbróðir minn, Halldór Sigurjónsson, sem mest hefur með öryggismál Loftleiða að gera, erum sammála um það, að betra sé að fara á malarbrautir á Álftanesi til að byrja með, heldur en að nota Reykjavíkurflugvöll áfram, þótt steyptur sé, þar sem hann er einnig malarborinn mikinn hluta ársins. Á Álftanesi væri hægt að hafa full- nægjandi brautir og allt öryggi í sambandi við aðflug og flugtak mik- ið meira. Að malbika eða steypa brautirnar mætti svo gera seinna, og þá þegar þær eru að fullu signar. Það hefur verið látið í veðri vaka, að erlendir sérfræðingar teldu allt í fyllsta lagi hvað Reykjavíkurflug- völl snertir. Ekki væri úr vegi að birt væru frá þeim ummæli eða skýrslur í blöðum bæjarins. Ég hef lesið skýrslur frá banda- rískum sérfræðingum um flugvall arstæði fyrir Reykjavík og ná- grenni, en þar segir að eigi skuli eyða neinum eyri í núverandi Reykjavíkurflugvöll, því hann sé ekki þess virði. Annars væri ekki á móti því að fá þær skýrslur einn- ig birtar í blöðum borgarinnar. Kostnaður við lagningu nýs flug- vallar á Álftanesi hefur sýnilega vaxið mönnum mjög í augum, og ekki að furða þar sem nefndar hafa verið tölur allt frá 500 til 800 mill- jónir króna. Mér er kunnugt um að Ólafur Pálsson, verkfræðingur Flug- málastjórnarinnar hefur gert kostn- aðaráætlun við lagningu slíks vallar á Álftanesi og nam hún ekki meiru en 130 milljónum fyrir utan flug- vélastæði. Ég hefi persónulega átt tal við Kristin Guðbrandsson forstjóra fyrirtækisins Björgun h.f., sem á sanddæluskipið Sandey. Hann tjáði mér að hann teldi það sennilega auðvelt verkefni fyrir Sandey að Breytingar á Reykjavíkurflug- velli væru óðs manns æði. í fyrsta lagi af því að hann gæti aldrei orð- ið neitt í líkingu við Álftanesflug- völlinn hvað gæði og öryggi snertir, og í öðru lagi af því að breytingin yrði sjálfsagt dýrari en þótt byggð- ur yrði nýr völlur, eins og Banda- rísku sérfræðingarnir héldu fram. Á Álftanesi væri hægt að láta alla brautarenda vita til sjávar og það þótt þrjár brautir yrðu byggðar, svo ekki þyrfti að óttast byggingar fyrir brautarendum. Næsta byggð við brautarenda yrði næstum í þriggja kílómetra fjarlægð, og má það telj- ast mjög gott, þegar tillit er tekið Tvöfalt CUDO-eiuangrunargler gegn kulda og hávaða. MERKIÐ SEM NÝTUR TRAUSTS ER ICUDQl CTOOaLER SKÚLAGÖXU 26 — SÍMAR 12056, 20456. dæla efni upp í undirstöður flug- brauta á Álftanesi og að kostnaður við hvern rúmmeter mundi líklega ekki verða fjærri 25—30 kr., og verkið taka svo sem hálft ár, ef vel gengi. Það mun ekki fjarri lagi að það þurfi um eina milljón rúm- metra af uppfyllingu fyrir tvær brautir með öryggisbeltum (slétt svæði til öryggis meðfram flug- brautum). Heildarkostnaður á upp- komnum malarvelli með bindiefni í endum mundi ekki verða fjarri 40—50 milljónum króna. Undirstöður undir fyrirhuguðum brautum á Álftanesi eru mjög góð- ar og moldarlög aðeins 1—2 metrar á litlum kafla á annarri brautinni, eða nánar tiltekið á 400—500 metra löngum kafla. Upplýsingar þessar eru frá mönnum, sem eru mjög kunnugir staðháttum á Álftanesi. til öryggis og truflana fyrir byggð. Sumir telja það fráleitt athæfi að láta sér detta í hug að leggja nið- ur mannvirki eins og Reykjavíkur- flugvöll, sem við höfum fengið gef- ins, og hefur gert þá giftusamlegu þróun mögulega, sem orðin er, og þá sérstaklega þegar þess er gætt, hve mikil verðmæti í flugvélakosti noti völlinn að staðaldri. Er það ekki jafnvel fráleitara, að láta þessi verðmætu tæki — flugvélarnar — þurfa að notast við úr sér genginn og ófullnægjandi flugvöll, og stofna ef til vill þar með öryggi véla og farþega í hættu eða tvísýnu? Er það ekki jafnvel enn fráleitara að tefja eðlilega framþróun flugmál- anna með því að berja höfðinu við steininn og gera ekki aðbúnað nýrri og stærri tækja eins góðan og kost- ur er? Það er ekki fyrirsjáanlegt að til þess komi á næstu áratugum, að lendingarbrautir styttist, eins og sumir vilja álíta, vegna þess að flugvélar muni yfirleitt ekki þurfa eins langar brautir. Tilraunir hafa verið gerðar alla tíð með slíkar flugvélar, en lítill árangur hefur náðst með vélar, sem hafa mikið flugþol og fara langar leiðir milli landa. Það má telja öruggt að ekki verði þess langt að bíða að við fá- um þotur til millilandaflugs, og þær þurfa töluvert lengri brautir en aðrar vélar jafnstórar. Næsta stig á eftir þotunum er sennilegt að verði „supersonic“-þotur, sem fara hraðar en hljóðið. Þær þurfa ennþá mikið lengri brautir. Þróun- in liggur í þá átt að auka hraðann og annað er ekki sjáanlegt en að brautarlengdir verði meiri um leið. Að öllu þessu athuguðu er það mitt eindregið álit að sú stefna að halda áfram Reykjavíkurflugvelli í þessari mynd, sem nú er, sé ekki til annars en að bjóða hættunni heim og eyða fjármunum til einskis. JÓHANN GÍSLASON, deildarstj. flugrekstrardeildar F. í. Þegar rætt er um framtíðarlausn flugvallamála byggðarinnar við inn- anverðan Faxaflóa, er æskilegt að flugvallarstæðið uppfylli eftirfar- andi skilyrði og stærðir: 1. Aðal- og blindlendingarbraut, sem stefni sem næst 25° rétt- vísandi, með byrjunarlengd 7.000 fet og lendingarmöguleika upp í 12.000 fet. 2. Þverbraut, sem stefni sem mest 115° réttvísandi með byrjunar- lengd 6.400 fet og lengingar- möguleika upp í 9.000 fet. 3. Svæði fyrir aðflugsljós. 4. Blindlendingarkerfi — I.L.S. við aðflugsbraut. 5. Óhindrað aðflugs- og skipti- svæði bæði fyrir blindlendingar- flugbraut og þverbraut. 6. Óhindrað lárétt loftrými í 150 feta hæð yfir flugvelli, innan svæðis er takmarkast af hring með 15.950 feta radius með miðju í flataþungamiðju vallarins. Sem lausn á þessu vaxandi vandamáli hefur helzt verið bent á núverandi Reykjavíkurflugvöil, Keflavíkurflugvöll og bygging nýs flugvallar á Álftanesi. Núverandi Reykjavíkurflugvöllur uppfyllir í dag engin af framan- greindum 6 skilyrðum og stærðum, en það sem er öllu lakara er, að vegna staðsetningar sinnar, getur hann t. d. aldrei uppfyllt skilyrðin um óhindrað lárétt loftrými í um- ferðahring. Um lengingu á núverandi flug- brautarkerfi upp í æskilegar byrj- unarlengdir, get ég verið fáorður. Núverandi austur/vesturbraut stefnir á Öskjuhlíðina, sem tak- marka lengingarmöguleika til aust- urs, hafa því komið fram tillögur um að breyta stefnu flugbrautar- innar, þannig að hún lægi fyrir sunnan Öskjuhlíðina og næði við fulla stækkun um 400 mtr. í sjó VIKAN 12. tbl. — gj

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.