Vikan


Vikan - 21.03.1963, Síða 34

Vikan - 21.03.1963, Síða 34
Veliið aðcins það bczia , \nslccTi\jV undirfatnaður úr þyklcu nælon er bæði fallegur og svo sterkur, að hann er nær óslítandi. einhverjar tilslakanir að ræða, mis- jafnlega miklar eftir aðstæðum. Reykjavíkurflugvöllur hefur ver- ið lyftistöng fyrir flugsamgöngur fslendinga, fyrst og fremst fyrir það hve vel flugvöllurinn uppfyllir tvö framangreindra skilyrða, 2. og 3. Hins vegar mun flugvöllurinn í sinni núverandi mynd ekki fullnægja þeim flugtæknilegu kröfum, sem gerðar verða til hans í næstu fram- tíð og er því augljóst, að eigi að nota hann til frambúðar, verður ekki hjá komizt, að gera á honum dýrar og víðtækar endurbætur og breytingar. M. a. með tilliti til þessa, hefur sú spurning vaknað, hvort heppi- legra kynni að reynast, og jafnvel ódýrara, að gera nýjan flugvöll annars staðar í nágrenni Reykja- víkur. Nefnd sérfræðinga starfaði að athugun þessa máls og komst að þeirri niðurstöðu, að margt benti til, að framtíðarflugvöllur höfuð- staðarins væri betur staðsettur á Álftanesi. Nefndin taldi þó, að áð- ur en endanlega yrði úr þessu skorið, þyrfti að gera ýmsar athug- anir, m. a. jarðvegsrannsóknir á Álftanesi og á núverandi flugvallar- svæði. Einnig taldi hún nauðsynlegt, að gerðar yrðu ráðstafanir til stöðv- unar frekari byggingarframkvæmda á Álftanesi á meðan slíkar rann- sóknir færu fram. Ég tel rök nefndarinnar og niður- stöður skynsamlegar og er þeim sammála í meginatriðum. Margt bendir til að Álftanessvæðið full- nægi fjórum af fimm framan- greindra skilyrða jafnvel, og að sumu leyti betur, en núverandi flugvallarsvæði. Aðeins 3. atriðinu fullnægir núverandi flugvöllur bet- ur en Álftanessvæðið, en þó ekki svo, að mikill munur sé á. Ég tel því að hið bráðasta beri að framkvæma þær athuganir og rannsóknir, sem umrædd nefnd hef- ur gert tillögur um. Að því loknu er hægt að taka ákvörðun um það á hvorum staðnum framtíðarflug- völlur Reykjavíkur skuli vera. Aðra staði en þessa tvo tel ég ekki koma til greina. Ríki og bær þurfa að taka hönd- um saman um örugga og hagkvæma lausn þessa máls. Að því þarf að vinna af einurð og einlægni og án allra hleypidóma. Það verður mörgum vafalaust á að spyrja hvers vegna Vikan hafi ekki haft samband við flugmála- stjóra, Agnar Kofoed Hansen, til þess að spyrja um afstöðu hans í þessu máli, því það liggur bein- ast við að álíta að hann hafi þar ákveðnar skoðanir og sé ekki feim- inn við að láta þær í ljósi, enda mun hann vafalaust sá maður, sem mest áhrif hefur — og ætti að hafa — til þess að beina framkvæmdum á réttar brautir. Jú, Vikan hafði samband við flugmálastjóra, og ræddi við hann góða stund. Á grundvelli þeirra við- ræðna var skrifuð stutt grein, sem síðan var send honum til athugun- ar, breytinga og samþykkis. En honum leizt ekki á greinina. Kannski hefur hún bara verið illa skrifuð, og hann ekki mátt vera að því að lagfæra hana. Hvað sem því líður þá neitaði hann að skrifa undir hana, en samþykkti að svara nokkr- um ákveðnum spurningum, sem lagðar væru fyrir hann í sambandi við þetta mál. Spumingarnar voru skrifaðar og sendar honum, en þegar hann var búinn að sjá þær, þá neitaði hann algjörlega að svara þeim og vildi ekki ræða málið meira. Sagði að það væri „að bera í bakkafullann lækinn“ að hann færi að segja meira um þetta mál. Það er ekki víst að lesendum Vikunnar finnist það sama, og vafa- laust má álykta að þeir, sem finna mest fyrir hávaða frá vellinum og geta hvenær sem er átt von á að fá 100 farþega vél niður um þakið hjá sér, vilji gjarnan fá að heyra svör flugmálastjóra við spurning- um Vikunnar. Hér á eftir eru spurningarnar, sem A. K. H. neitaði að svara í Vik- unni. Hann hefur ennþá möguleika til að svara þeim, — í Vikunni eða einhvers staðar annars staðar opin- berlega. SPURNINGAR: 1. a. Verður suður-norðurbraut Reykjavíkurflugvallar sam- kvæm reglum ICAO um hindr- anir fyrir brautarenda, þegar hún hefur verið lengd eins og áformað er? b. Er hún það í dag? 2. Myndar Öskjuhlíðin ekki hindr- un samkvæmt sömu reglum á austurbrautinni? 3. Eru erlendir (bandarískir) sér- fræðingar þeirrar skoðunar, að flugvöllurinn í Reykjavík full- nægi þeim kröfum, sem gera verður til hans, og álíta þeir að heppilegasta leiðin í flugvallar- málum sé að endurbæta hann og stækka? 4. Hefur kostnaður við byggingu nýs flugvallar á Álftanesi ver- ið athugaður á þeim grundvelli að sanddæluskip yrði fengið til að dæla þangað undirstöðu und- ir brautir? 5. Hafið þér óskað eftir því við viðkomandi ráðherra eða ríkis- stjórnina í heild, að áframhald- andi rannsóknir verði gerðar á flugvallarstæði á Álftanesi. 6. Ef slík rannsókn yrði jákvæð, munduð þér þá leggja til að framkvæmdir þar yrðu hafnar strax og mögulegt er? G. K. Liðsveit myrkursins. Framhald af bls. 15. Gibson skoðaði þær lengi. Siðan lagði Cochrane fjalirnar aftur yfir. „Nú vitið þér þá, við hvað 'þér eigið að fást,“ sagði hann. „Farið nú aft- ur á fund Walliss og finnið mig, þegar þér komið til baka.“ Hið fyrsta sem Wallis spurði, var: „Treystið þér yður til þess?“ „Það gengur vel í dagsbirtu, ekki sérlega vel 1 myrkri,“ svaraði Gib- son. „Það er beinlínis ómögulegt að — VIKAN 12. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.