Vikan - 18.07.1963, Page 32
Kaníer’s
Býður yður sundbolatízku 1963.
Einlita, tvílita, rósótta eða röndótta
m/pilsi eða pilslausa.
Ljósa liti Dökka liti
Lausa hlýra eða fasta hlýra
Litlar stærðir, stórar stærðir, yfirstærðir
Flegið bak eða háa í bak
Við kynnum nýja gúmí þráðlausa teygjuefnið
„Spandex“ fislétt og fallegt
— Ennfremur í Helanca efnum —
Kanter£s er kjörsundbolur allra kvenna.
Veljið
Kanter’s
Kaitter's
OF SCANDINAVIA
— og þér fáið það bezta.
: & £
ðHrútsmerkið (21. marz—20. apríl):
Framan af vikunni verða dagarnir mjög hvers-
dagslegir. En skyndilega kemur ný persóna fram
á sjónarsviðið sem feykir grámóðu hversdagsleik-
ans burtu. Þessi persóna og þú munu eiga saman
ógleymanlegar stundir. Heillatala er 4.
©Nautsmerkið (21. apríl—21. maí):
Þú færð vitneskju um eitthvað sem á eftir að
hafa mikil áhrif á einkalif þitt og gera þér mikið
'ott. Geta þín og starfsorka er meiri en þú heldur
og skaltu því ekki slá h^ndinni á móti nýjum
verkefnum sem verða til þess að færa þér aukna möguleika.
Xvíburamerkið (22. maí—21. júní):
Þú gerir niikla iukku í hópi félaga þinna, ekki
hvað sizt ef þú umgengst fólk úr Krabba-' Bog-
manns- og Steingeitarmerkinu. Allar aðstæður
haga því svo til að þú færð góð tækifæri til að
umgangast þá sem þér þykir vænzt um.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí):
Það fer mikill tími til spiliis fyrir þér sökum áhuga
þíns á mönnum og málefnum. Ef þú villt bera eitt-
hvað úr býtum verðurðu að taka þig fastari tökum,
sem þú átt hægt með. Á vinnustað virðist allt standa
i stað, en gættu þolinmæði þinnar.
©Ljónsmerkið (24. júlí—23. júlí):
Óvænt muntu verða í hóp gamalla kunningja inn-
an tíðar og verður það til þess að þú munt taka upp
sérstaka vináttu við fólk úr þeim hópi. Bezt er að
umgangast fólk úr Hrútsmerkinu, Krabbamerkinu og
Tvíburamerkinu. Taktu ekki neinar ákvarðanir sem varða
fjölskyldu þína sérstaklega.
Mcyjarmerkið 24. ágúst—23. sept.):
Vertu vel vakandi og láttu ekkert tækifæri ónotað
sem þér býðst til að fara út á meðal fólks. Kurteisi
og tilhliðrunarsemi ættu að vera einkunnarorð vik-
unnar. Ef þú ert um það bil að leggja út í einhverja
fjárfestingu ættirðu að hinkra við þar til eftir helgi,, ef því
verður við komið.
Vogarmerkið (24. september—23. október):
Atburðarásin er mikið komin undir afstöðu þinni
til málanna, hafðu í huga að þú kemst lengra mcð
þolinmæði og lipurð en stærilæti, hrektu allar slík-
ar tilhneigingar burtu. Þú færð tækifæri til að
styrkja samband þitt við menn sem hafa síðar meir mikið að
segja fyrir þig.
Drekamerkið (24. októþej^—23. nóvember):
Þú umgengst vini þina og gamla kunningja raikið
í vikunni. Líklegt er að þú eigir skemmtilega ferð
fyrir höndum. Umgengni við menn Vatnsberamerk-
isins er happadrýgst. Hjartans málin eru fremur í
lausu lofti, þú ert ekki viss hvernig þú átt að snúa þér.
Bogmannsmerkið (24. nóvember—21. descmber):
Þér berst hjálp frá vinveittu fólki sem þú skalt
Þiggja. Þú færð mótstöðu úr átt sem þú áttir sízt
von á, vertu við öllu búinn. Vertu vingjarnlegur
og ákveðinn þá berðu mest úr býtum. Gættu þín
sérstaklega á manni sem reynir að breyta skoðunum þínum.
Geitarmerkið (22. desember—20. janúar);
Þrátt fyrir nokkra erfiðleika miðar allt í rétta átt
fyrir þér og máttu vel við una. Þú skalt hafa góð-
ar gætur á verkefni sem þér berst en gæti reynzt
nokkuð varasamt. Þó þú þurfir dálítið fyrir því að
hafa, skaltu samt hafa samband við vin þinn, sem þú veizt að
þarfnast þín.
Vatnsbcramerkið (21. janúar—19. fcbrúar):
Kunningi þinn hefur gert þér greiða sem stendur
í nánu sambandi við tómstundaiðkun þína, eitt-
hvað í sambandi við þennan greiða hefur þú ekki
staðið við, en sem þú skalt kippa núna í lag. í mál-
efnum hjartans skaltu ekki ana að neinu, þaö væri rétt að
hafa i hug'
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz):
Eitthvað í umhverfi þínu hefur þvingandi áhrif á
þig og hindrar framkvæmdir þínar. Samningslip-
urð gæti komið þér að góðu gagni, aðallega á svið-
um einkalífsins. Persónuleiki þinn mun fwra þér
0
§