Vikan


Vikan - 21.11.1963, Blaðsíða 2

Vikan - 21.11.1963, Blaðsíða 2
í fullri alvöru: ujjtí ■■■■>> i ■■■maitk ■■■■■■■■&F Verjið börja ycjar gegn /stormi og fegni. yoí- ijarnaregn/ötin bjóða yður í I sejnii, /þægifegq flik í fal- / legum /liti/lm qtr öru^gt t/kjól í ölíuny veðrux/i. ýÖR/ skjólfíiki^ ó eldri seni ^911-/ 1 - i I 1 I O^GRBjNEkl OLL AKLÆÐIN MOLVARIN NYJUNG: OLL AKLÆÐIN Gefjunaráklæðin breylast sífelll í litum og munztrum, því ræður tízkan hverju sinni. Eitt breyfist þó ekki, vöruvöndun verk- smiðjunnar og gœði íslenzku ullarinnar. Alll þetta hefur hjálpað til að gera Gefj- unaráklæðið vinsælasta húsgagnaáklæð- íð í landinu. LISTIN ER LÖNG A þessu hausti hafa íslenzkir myndlistarntenn hengt upp verk sín, almenningi til sýnis. Bæði hafa það verið sýningar ein- stakra listamanna svo og stór samsýning. Það var einkum og sér í lagi fróðlegt að sjá þessa samsýningu, enda þótt hún gæfi ekki neitt greinargott yfirlit þar sem myndlistarmenn geta ekki haft ein samtök. Félagsskapur þeirra er klofinn, líklega af póli- tískum ástæðum, svo kjánalegt sem það nú annars er. Fyrir vik- ið sýnir aðeins annar armurinn, þegar samsýningar eru haldnar. Það er bezt að afgreiða strax Danina, gesti sýningarinnar. Þeir báru heldur skarðan hlut frá borði, féllu í skuggann fyrir okk- ar mönnum. Verk þeirra voru tilþrifalaus og á engan hátt eft- irminnileg. Sannaðist þar orð- tækið: „Þar lágu Danir í því“. Nóg um það. Það sem oft vekur furðu mína á sýningum sem þessum er hug- myndaleysið og hræðslan við að troða nýjar slóðir. Þar er því- lík fátækt á íslenzka listaheim- ilinu að nálgast örbirgð. Svo undarlegt, sem það nú annars kann að virðast, gerir þessi íhaldssemi líklega enn meira vart við sig í þeim armi mynd- listarmanna, sem telur sig vinstri sinnaða — og þá um leið líklega framfarasinnaða — og það voru einmitt þeir, sem stóðu að sýn- ingunni í haust. Ósköp hlýtur það að vera þreytandi til lengd- ar, ár eftir ár, jafnvel áratug eftir áratug, að komast aldrei frá þess um flötum. Reglustrikan er að- eins lögð á léreftið á mismun- andi vegu; stundum lárétt stund um lóðrétt, en stundum einkum á ská. Oft hefur verið vakin at- hygli á því, að þessháttar mál- verk hafa verið sjaldgæf á er- lendum sýningum í 10—15 ár. Þar eru rrfyndlistarmenn búnir að yfirgefa þetta stundarfyrir- brigði, sem nánast er nakin teó- ría. Það er sjálfur grundvöllur myndarinnar, undirbyggingin. Og vafalaust er ágætt fyrir listmálara að kunna skil á ab- strakt myndbyggingu. En það nálgast geðveiki, þegar menn geta ekki séð út fyrir þann þrönga sjóndeildarhring, sem þetta listform skapar. Abstrakt myndsköpun kom Framhald á bls. 51.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.