Vikan - 21.11.1963, Side 7
iti»> ®.»®i«,í n» ’«í« «•» « t *•'(!«* •?*(> - >■;* ftw #• íi* h*» Á.* i'?
Léleg þjónusta
Mig langar til að biðja þig,
Póstur, að gefa mér upplýsingar.
Ég er áhugaljósmyndari af líf og
sál og eyði svipuðum peningum
í ljósmyndaföndur og sumir í
áfengi og tóbak. Með þessu ljós-
myndadóti, sem ég kaupi, fylgja
ætíð allmiklir leiðarvísar, oftast
á fjórum tungumálum, en stund-
um fleirum.
Ég er enginn tungumálamaður,
rétt ,,rólfær“ í ensku og dönsku
— en þegar út í tékknesk orð er
komið er ég mát. Ég hef leitað i
tékkneskri orðabók, sem útgefin
var 1959, en þar finnst ekki helm-
ingur þess, sem ég þarfnast. Ég
hef jafnvel leitað á náðir manna,
sem skilja vel ensku og dönsku
og jafnvel tala hana, en þeir
stranda alveg eins og ég á sömu
orðunum.
Nú langar mig til að biðja þig,
Póstur, að benda mér á einhvem
sem tekur að sér að þýða svona
leiðarvísa, gegn þóknun auðvitað,
og hvað það muni kpsta.
í beinu framhaldi af þessari
spurningu minni langar mig til
að láta í ljós skoðun mína á þeim
innflytjendum og þeim kaup-
mönnum, sem verzla með ljós-
myndavörur. Þetta eru að mínu
áliti lélegustu verzlunar- og
kaupsýslumenn á öllu íslandi, og
jafnvel þótt víðar væri leitað.
Ég dreg ályktun mína m. a. af
því, að ljósmyndagerð þarfnast
kunnáttu og þekkingar, sem þó
er mjög auðvelt að læra og
kenna. Leiðarvísar þeir, sem
fylgja flestum ljósmyndavörum,
kenna manni 60—70% af undir-
stöðuatriðum Ijósmyndagerðar.
Ef íslenzkir leiðarvísar fylgdu
Ijósmyndavarningi héðan úr
verzlunum, myndi salan aukast
stórlega, því að þá færi maður
óhræddur lengra og lengra út í
tæknina, án þess að kvíða því
að leiðarvísirinn, hafi verið mis-
skilinn, því að það er langt frá
því að hægt sé að treysta leið-
Beiningum afgreiðslufólksins, svo
ekki sé meira sagt, og gæti ég
nefnt þess fjöldamörg dæmi,
þökk fyrir
S.K.
Ekkert framhald ...
Kæra Vika.
Ég las grein sem hét: „Var ís-
menn“ komu?“ eftir Benedikt
Gíslason frá Hofteigi í 41. tbl.
Vikunnar, en síðast þar í grein-
inni var sagt, að framhald yrði
í næsta blaði.
Ég keypti bæði 42. og 43. tbl.
en þar var hvergi framhaldið að
finna, eða var ég kannski svona
ófundvís?
Ég vona, að þú svarir mér og
segir mér í hvaða tbl. framhaldið
verði, ef það hefur ekki verið í
þcssum tölublöðum.
-----Framhaldið kemur senni-
lega seint. Línan „framhald í
næsta blaði' fór því miður undir
greinina af einskærum misgán-
ingi, og biðjumst við hér með
velvirðingar fyrir.
Rafmagn ...
Kæri Póstur.
Mér varð á sú dæmalausa
skyssa fyrir skömmu að kaupa
mér rándýra rafmagnsrakvél,
hátt upp í tvö þúsund króna grip.
Nú er ég búinn að bregða þessari
fjárans vítisvél á kjálkana á mér
í heila tvo mánuði, og enn er ég
ekki farinn að fá almennilegan
rakstur.
Svo gafst ég loksins upp á þess-
ari maskínu um daginn, en þá
bregður svo við, að ég get ekki
rakað mig með venjulegu rak-
blaði lengur, húðin verður einn
heljarmikill vígvöllur og blóðið
lekur stríðum straumum niður
um hálsmálið.
Þess vegna reyndi ég svo aftur
við maskínuna, en ekkert gekk.
Hvernig er það með þessar
maskínur, Póstur sæll, þarf mað-
ur að venjast þeim, eða henta
þær ekki nema vissum tegundum
„skeggja“? Hvað í ósköpunum á
ég að gera?
Skeggjus.
-------- Tja — kannski þú reynir
bara að safna skeggi.
Annars getur sosum veli verið, að
þessi vissa rakvélategund henti
þér ekki. Þú ættir að reyna aðra
tegund. Ef það gengur ekki (þú
skalt reyna í einn til tvo mánuði)
verðurðu víst að taka upp gömlu
aðferðina aftur, þótt það kosti
svolítið blóðbað í fyrstu.
/' .....................................
TJndishgt, franskt iímvatn
ECUSSON
Jean D ALBRET
P A R F U M S
ORLANE
PAR I S