Vikan


Vikan - 21.11.1963, Síða 15

Vikan - 21.11.1963, Síða 15
wmm WMMM I '■ Ifilllllf .: '., v • . Wmm "ss ' ^ í’ : : ■ ■ :: : : í§l:'"''í';.:-':! ! : líili WM11111 i iilti "mmmí, sér snöggt frá henni og skálmaði út úr garðinum. Ása horfði á eftir honum. Eitt andartak lá við að hún veitti honum eftirför — var það ekki grimmilegt af henni að láta hann fara svona, eftir allt sem hann var búinn að gera fyrir hana? Þessi hlýja, sem hún bar til hans, var það ekki í raun og veru ástin, ást konu til karlmanns, elskaði hún hann ekki þegar öllu var á botninn hvolft? Henni var nær að halda það, og það var ljótt að láta hann bíða í þrjá daga enn; honum myndi sjálfsagt líða illa strákgreyinu. Mynd Bergs Þorsteinssonar brá snöggvast fyrir í huga hennar: fallega drengjasvipnum, heið- ríkjunni í augum hans. En svo hristi hún höfuðið: það var ekki hægt, það kom ekki til nokkurra mála. Ef hún giftist ekki Sig- tryggi, gat hún auðvitað ekki tek- ið bezta vin hans, slík ótukt var hún ekki. Hún laut höfði og hljóp upp tröppurnar að steinbænum. Mamma hennar sat í stofunni, þegar hún kom inn. Þær heils- uðust með kossi. Spákonan var döpur á svip, en þó harðleg nokk- uð. „Jæja, dóttir mín, hvernig hefur þetta gengið hjá ykkur; skemmtir þú þér ekki vel?“ Ása Sigurlinnadóttir horfði á móður sína; einnig í hennar aug- um las hún spurningu, sem henni var erfitt um vik að svara. „Það var indælt“, sagði hún dálítið kæruleysislega. „Og hvernig líð- ur ykkur þá hérna?“ Okkur líður vel,“ anzaði spá- konan stuttaralega. Eftir andar- tak bætti hún við í hálfum hljóð- um: „Bróðir þinn er byrjaður að vinna á eyrinni". Ása brosti. „Já, en það er ein- mitt það sem hann hefur alltaf viljað, mamma mín. Ef hann er ánægður með það, þá er allt í iagi. Hvers vegna ætti hann að þurfa að gera eitthvað sem hon- um er á móti skapi“. „Nei, auðvitað -— þetta er nátt- úrulega alveg rétt hjá þér, dótt- ir mín“. Framhald á bls. 30. FRAMHALDSSAGAN - 12. HLUTI Eftir KRISTMANN Teikning: Þórdis Tryggvadóttir GUÐMUNDSSON VIKAN 46. tbl. 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.